Foringinn - 01.10.1975, Blaðsíða 21

Foringinn - 01.10.1975, Blaðsíða 21
 PÓSTUR HÖFUM VIÐ LÆRT AÐ LÆRA AF BÐRUM Hollandi 17. ágúst 1975. Nú þegar blessuöu Jamboríinu er lokiö,þá fara endurminningarnar aö skjúta fram kollinum og menn fara aö rifja þaö upp sem þeir hafa séö og veriö þátttakendur í. Eins fara margir af staö og reyna aö notfæra sár þær hugmyndir sem þeir hafa séö. Þá kemur fram sú spurning: "Höfum viö lært aö læra af öörum?" Eöa meö öðrum oröum getum viö útfært þær hugmyndir sem viö sáum, í þann búning sem okkur hæfir og viö getum notaö, því þær koma frá ýmsum áttum, frá mörgum löndum og þar af leiö- andi mismunandi fólki. Ég hef kynnst frá minni reynslu að oft vilji þaö brenna viö aö þær hug- myndir sem foringjar fá, fari frá þeim ébreyttar og geti geng- iö foringja fram af foringja án breytinga. Ég minnist þess þegar sveitarforingi minn var nýkominn af Gilwellskólanum þá kom hann meði nýja skátaleiki fyrir okkur, og svo þegar ég var þess heiö.urs aönjótandi aö komast þangaö í skólann tæpum 10 árum síöar, þá rekst ég á þessa sömu leiki aftur svo þaö er engin furða aö menn spyrji: Geturðu útfært leik svo aö hann hafi sama markmiö en aö skátarnir taki ekki eftir því aö þetta sé sami leikurinn. Þetta er þaö sama og ef einhver listmál- ari fær yndi af einhverjum staö þá reynir hann aö útfæra hann í sem flestum myndum, en ekki gera hverja kópíuna á eftir annari frá sama stað. Því ætti þaö aö komast á aö reyna hugmyndaflug foringja meö því aö láta þá spreyta sig á aö útfæra leiki. Þaö getur ver- iö erfitt fyrst á meöan þeir eru aö fikra sig áfram, i þaö kemur þegar foringinn veit ívaö hann má og getur leyft ’ - eins og einhver hefur lái 5 útúr sér. „Róm var ekki byggö einum degi" eins er hægt aö segja : Þú en ekki góöur foringi um leið og þú færð skipunarbréfið - þú verður aö vinna til þess og þaö getur kostað sitt svitabaö. Meö skátakveðju. Haukur Björnsson. Kæru skátavinirT Þó aö ég hafi, sem drengur, tekið sérpróf í aö rekja slóð, sem enn er mjög vinsælt, þá get ég samt sem áður ekki rakið slóðina til hvers og eins þeirra mörgu skáta- vina minna, sem héldu upp á fimm- tugsafmæli mitt, fyrst á Nordjamb og síöar heima í Turku. Ég heföi gjarnan viljaö þakka ykkur öllum persónulega, en verö að láta nægja aö gera þaö á þenn- an hátt. Ég sendi mínar innilegustu þakkir fyrir, aö þið geröuö afmælisdag minn skemmtilega og ógleymanlega skátahátíð - eina af stíerstu stundum lífs míns. Meö skátakveöju, fulltrúi Finlands í Mótsnefnd Nordjamb. 21

x

Foringinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.