Foringinn - 01.12.1975, Blaðsíða 11
sem áöur var eingöngu skátastarf.
Aftur á móti höfum við tekið upp
heldur lítið af nýjungum, til
þess að bjóða upp á £ þessari
samkeppni. Ég held, að ef við
ætlum að standa okkur í
sumarbúðasamkeppninni, þurfi að
finna fleiri leiðir og átta sig
vel á því, sem keppinautarnir
bjúða umfram okkur.
í 4. tbl. Foringjans 1975,
segir Björn Finnsson: ... að
skátahreyfingin lifi í hugmynda-
fræðilegu búri. Hann bendir á
fjölmörg ný atriði sem taka
mætti upp sem nýjar leiðir fyrir
skátastarf, ág leyfi már að vísa
til greinar hans um þær tillögur.
Hann telur þær vera aðferðina
tii þess að opna dyrnar á búrinu.
Ég vil taka undir þessi orð
Björns, og óska þess að okkur
takist að opna búrið okkar og
hleypa inn í það ferskum hug-
myndum. Viö þurfum á þv£ að
halda £ vaxandi samkeppni.
Með skátakveðju
Bragi Þórðarson, Akranesi.
Erlend mót
15. Skotlandsmótið.
Staður: Blair Atholl (skosku há-
löndin).
T£mi: 70-30. júl£ 1976 á
mótinu og vika á eftir £ heimboði
Mótið verður flokkamót, þar sem
sex manna flokkar verða myndað-
ir og þeir látnir starfa saman
allan tfmann. Hverju landi er
heimilt að senda tvo flokka
fyrir utan fararstjóra.
Aldur: 13-16 ára.
Mót f Austurrfki.
Skátafélagið Bregens Austurrfki
býður skátum hvaðanæva að úr
heiminum til móts sumarið 1977.
Meðal hins mikla úrvals af verk-
efnum eru: sund, siglingar, hike
og klifurferðir f öllum erfið-
leikagráðum með reyndum leið-
sögumönnum.
Ef þið hafið áhuga,þá sendið inn
umsóknir á skrifstofu B.l.S.
fyrir 20. feb. 1976.