Foringinn - 01.12.1975, Qupperneq 18

Foringinn - 01.12.1975, Qupperneq 18
AGÆTI FLOKKSFORINGI Þil sem hefur jafnaldra þína í flokknum þínum. Nenni ekki - vil ekki - get ekki. Hefur þú ekki einhvern- tíma heyrt þessi orö? Hefur þú kanski ekki einmitt þessi vandamál? Að hafa jafnaldra í flokk, er mjög svo erfitt, ef þú ert þá ekki foringi, skapaðir af guös náð. Ef þetta eru vandamál sem þú kannast viö þá höfum við hár nokkra púnkta til umhugsunar, einmitt fyrir þig. Reyndu þá. Þeir gætu orðið þér til hjálpar. 1 lok fundar getur þú skýrt frá dagskrá næsta fundar og lýst eftir hvort nokkrir viji mæla nokkru í mót, ellegar breyta nokkru. Gefðu flokknum kost á að segja álit sitt á tillögunum en spurðu EKKI hvaö þeir vilji gera. Gefðu þeim nokkrar hugmyndir og leifðu þeim að velja. Komi fram aðrar hugmyndir, ..sem ekki eru eins góðar, þá taktu tillit til þeirra. Gættu þín. Notaðr þú kanski skipandi rödd, sem hinir eiga erfitt með að meötaka? 1 gömiu skátabókunum okkar stend ur oft eftirfarandi ráð: Þegar flokkurinn (og þú sjálfur) er frískur og fjörugur, þá byrja þú ekki fundinn með kennslu og verkefnum, heldur skuliö þiö frekar fara í leiki, út að hjóla fara í laugarnar, heimsækja ná- grannaskáta o.s.fr. Þar á eftir getið þiö tekið fyrir dagskrá fundarins og farið að sinna verk efnum. Þegar flokkurinn hefur fengið starfsáætlun sveitarinnar og veit hvað frammundan er hjá Sveitinni, deildinni og félag- inu, getið þið byrjað á að semja ykkar eigin starfsáætlun fyrir flokkinn. Komdu með hug- myndir þínar og legðu þær fyrir flokkinn og láttu ræða þær. 18 1 flokknum eiga allir að vinna saman og allir eiga að geta komiö með tillögur í starfsáætlunina, t.d. um útilegur, dagferðir, Þjónustuverkefni og fl. Flokkurinn skal vera sam- heldinn hópur, hópur,sem deil- ir gleði og sorg saman, hjálpa hverjir öðrum og skifta verk- efnum og embættum bróöurlega á milli sín, en vinnur þó samt sem áður saman að þeim. DÆMI um verkefni eða embætti: FLOKKSFORINGI.(f1.f.) AÐST; FL.FOR. (a.fl.f.) RITARI: Skráir fundargerðir ferðir, útilegur ofl GJALDKERI: Sér um fjármál flokksins t.d. fyrir útilegur ferðir ofl. BRYTI: Sér um skipulagningu matarinnkaupa og innkaup ásmt. gjaldkera. ÁHALDAVÖRÐUR: Sér um að eignir flokksins séu í lagi og séu yfirfarnar, þ.e. leggur fram tillögur um úrbætur fyrir flokk- inn. VARÐELDASTJÖRI: Og fleiri embætti. Hefurðu fleiri tillögur um emb- ætti? Sé svo, Þá berður þessar tillögur undir flokkinn og síðan getur hann þ.e. flokkurinn í

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.