Foringinn - 01.12.1975, Qupperneq 21
Bandaríksa þjóöin mun
halda upp á 200 ára afmæli
sitt næsta ár. I tilefni
þessa afmælis hafa banda-
rískir kvenskátar boðið tveim
íslenskum skátastúlkum til
Bandaríkjanna næsta sumar.
Dagana 10.-26. júnx verður
haldið nokkurs konar mót í
Þjóðgarði í Virginíufylki og
rammi mótsins er: "Þú ert
ábyrg fyrir náttúrunni".
Eftir mótið verður dvalið á
heimilum í um þrjár vikur.
1 allt eru þetta um 40 dagar.
Allur dvalarkostnaður er
borgaður af gestgjöfunum, en
umsækjendur verða að borga
ferðirnar frá Reykjavík til
Bandaríkjanna og heim til
Islands aftur. Einnig verða
þátttakendur aö sjá sár fyrir
vasapeningi.
Þátttakendur eiga að vera
á aldrinum 15 - 18 ára eða
aðeins eldri. Vegna þess að
mótið er einskonar hike mót
þá þurfa þátttakendur að vera
líkamlega hraustir og hafa
mikinn ahuga á útilífi.
Góð reynsla í skátastarfinu
er nauðsynleg eins og hjálp
í viölögum, eldun á hlóöum
og fleira.
Viö hvetjum alla félags-
foringja aö íhuga þetta boö
og þeir sem vilja sækja um eru
beðnir aö snúa sér til skrif-
stofu Bandala|s ísl. skáta
fyrir 15. januar 1976.
Einnig hefur borist boð
frá norskum kvenskátum, þar
sem þær bjóða til ráöstefnu
um skátamót og útilíf. ís-
lenskum skáta hefur verið
boðið að koma og taka þátt í
þessari ráðstefnu, sem haldin
er í Shiffield dagana 9-12.
apríl 1976. Þetta boö er
ætlað foringjum og leiðbein-
endum, sem hafa áhuga á úti-
lífi og dagskrárgerö á mótum.
Þátttakandi verður að greiða
fargjaldið sjálfur frá Reykja-
vík til Shiffield en uppi-
hald er greitt af gest|jöfum.
Þeir sem hafa áhuga snui sér
til Bandalags xsl. skáta.
Ef til vill er hægt að sam-
eina þetta meö ferð til
London.
★ ★ ★
Boð frá norsku K.F.U.K.
skátunum um þátttöku á alþjóð-
legu móti í Noregi n.k. sumar.
Tími: 1-14. ágúst
1. 7. ágúst á heimili
en^á mótinu frá 7-14.
ágúst.
Staður: NORDTANGEN, þjálfunar-
miðstöð KFUK skátanna
um 80 km norður af Osló.
Leyfileg þáttt.: 10 skátast.
og einn til tveir
foringjar.
Þátttökugjald: Mótsgjald N.kr.
250,- Ferðakostnaður
frá Osló til Nordtangen
og til baka um N.kr. 45,-.
Tungumál: Allir verða að geta
talað ensku.
Dagskrá: listir og verkefni,
leiklistar verkefni,
sólarhrings hike, varð-
eldar og fl. (Lutherskar
helgiathafnir).
Ötbúnaður: Persónulegur út-
búnaður og svefnpokar,
tjöld og mataráhöld munu
verða útveguð.
Löndum sem veröur boöið:
Bretland, U.S.A., Kanada,
Finland, Frakkland,
Luxemborg, Island og
Sviss.
Þátttökutilkynningar veröa að
berast fyrir 20. janúar 1976.
21