Bændablaðið - 18.03.1997, Qupperneq 1

Bændablaðið - 18.03.1997, Qupperneq 1
5. tölublað 3. árgangur Þriðjudagur 18. mars 1997 ISSN 1025-5621 Nýtt byggyrki frð Rannsökna- stofnun landbúnaðarins Nú í vor kemur íslenskt bygg- yrki á markaðinn. Um margra ára skeið hefur verið unnið að kynbótum byggs á Rann- sóknastofnun landbúnaðar- ins. Fyrir þremur árum var ákveðið að leggja kapp á að koma fyrirliggjandi efniviði í nýtanlegt horf. Til að koma því í kring var stofnað til sam- vinnuverkefnis Rala, tveggja búnaðarsambanda og korn- bænda um að þróa byggyrki og koma því á markað. Rann- sóknasjóður íslands og Framleiðnisjþður styrktu verkefnið. í tengslum við landsfund kornbænda, sem haldinn verður á Keldnaholti föstudaginn 21. mars næst komandi, verður haldin ráð- stefna þar sem niðurstöður verkefnisins verða kynntar. Veðurfar á íslandi er að mörgu ólíkt því sem gerist í komræktarlöndum. Sumur hér eru að vísu nokkuð löng, en svöl og hvassviðri eru tíð. Erlend byggafbrigði, þótt fljótþroska séu, nýtast misjafnlega þess vegna. Á Rala hefur verið lagt kapp á að kynbæta bygg þannig að það þoli ágang veðra og nýti sér hið tiltölulega langa sumar. í tilraunum hafa bestu islensku Ketfir varasamip (Qártiúsum Nú, þegar styttist í sauðburð, er við hæfi að minna fjár- bændur á þá óbeinu hættu sem sauðfé landsmanna getur stafað af köttum í fjárhúsum. Hættan er fólgin í örsmáu sníkjudýri sem lifir í köttunum. Berist það í ær á meðgöngu getur það leitt til fósturláts eða vansköpunar, séu ærnar að smitast í fyrsta sinn. Sjá nánar á bls. 10 Norðlensk hross í vetrarveislu um ii tækjum Búnaðarsamband Suðurlands hefur ákveðið að efna aftur til útboðs á tækjum vegna bú- rekstrar. Þetta kemur fram í fréttabréfi sambandsins. Að þessu sinni verður leitað eftir magninnkaupum á heyvinnu- tækjum, þ.e. sláttuvélum, múga- vélum og snúningsvélum. Bændablaðsmynd/JE kynbótalínurnar skilað 10-15% meiri uppskeru en þau erlendu yrki sem eru í notkun. Eins og nú horfir eru í korn- ræktinni fólgnir helstu vaxtar- möguleikar í hefðbundnum land- búnaði. Við framleiðum núna innan við tíunda hluta þess fóð- urkorns sem notað er í landinu. Þá framleiðslu má fimmfalda án verulegrar áhættu og kom á að vera hægt að rækta á helmingi allra bújarða á landinu. Hinu nýja byggyrki er ætlað að auka öryggi ræktunarinnar. Fleiri yrki eru á mótunarstigi og munu koma fram á næstu árum./AH Þróun framleiðenda- og smásöluverðs sýnir glögglega framlag bænda til bættra lífskjara í landinu Laonafölk getur nú keypt meira al búvfirum en fyrir nokkrum úrum Á markaðssíðu Bændablaðs- ins er að þessu sinni fjallað um þróun framleiðendaverðs og smásöluverðs á ýmsum búvörum, á árunum 1981 - 1996. Einnig er tímabilinu 1981 - 1995 deilt upp í þrjú tímabil og sýnt á mynd hversu langan tíma (í mínútum) verka- fólk var á hverjum tíma að vinna fyrir kílói eða lítra af ýmsum búvörum. Glögglega má sjá hvernig verð á bú- vörum (bæði til bænda og neytenda) hefur farið lækkandi á tímabilinu. Sú staðreynd að það tók launa- fólk skemmri tima að afla tekna til kaupa á algengum búvörum á tímabilinu 1991 - 1995 en áður undirstrikar framlag landbúnaðar- ins til bættra kjara í landinu á þess- um tíma. Þessi þróun verður þrátt fyrir t.d. það að vísitala kaupmáttar ráðstöfunartekna hafi verið að meðaltali lægri á þessu tímabili en t.d. 1986- 1990. Allt ber þetta að sama brunni, sá árangur sem náðst hefur m.a. með framleiðniaukn- ingu, skilar sér til neytenda. Þróun vísitölu neysluverðs frá árinu 1992 undirstrikar þetta enn frekar. Samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá Hagstofú íslands þann 10. mars sl. þá voru innlendar búvörur háðar verðlagsgrundvelli, 5,2% af vísitölugrunninum í nóvember 1992 en höfðu lækkað í 4,7% í mars 1997. Neysluverðsvísitalan hækkaði úr 164,1 stigi í nóvember 1992 í 178,4 stig í mars 1992 en á sama tíma lækkaði vísitala fyrir búvörur háðar verðlagsgrundvelli úr 145,9 stigum í 145,6 stig í mars 1996. „Þessi niðurstaða er í fullu sam- ræmi við það sem bændur hafa hald- ið ffam undanfarin misseri. Bændur hafa lagt mikið af mörkum og nú er svo komið að þeir mun ekki sætta sig við að sitja hjá við útdeilingu kjarabóta á komandi mánuðum," sagði Ari Teitsson, formaður Bænda- samtaka íslands. „Markmið þjóðar- sáttarsamninganna árið 1990 var að draga úr verðbólgu, skapa stöðug- leika í íslensku efhahagslífi og trey- sta þannig afkomu þjóðfélagsins og (regna jress til lengri tíma litið. Til að ná þessum markmiðum var ljóst að færa þyrfti fómir um stund. Það gerðu margir þjóðfélagshópar en óhætt mun jró að fúllyrða að hlut- fallslega mestu fómir að því er varð- ar afkomu færðu bændur. Þeir sem fómina færðu gerðu það í þeiiri trú að [reir legðu grunn að batnandi hag þjóðfélagsins. Nú þegar hagur þjóðarinnar er að vænkast hljóta þeir sem undirstöðuna sköpuðu að vænta hlutdeildar í efhahagsþatanum. Eg er þess fullviss að ríkis- stjóm sem og aðilar vinnumarkað- arins og neytendur almennt hafa fullan skilning á þessari sann- gjörnu kröfu bænda - en á það mun reyna á næstunni,“ sagði Ari.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.