Bændablaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 6
6 Bœndablaðið Þriðjudagur 18. mars 1997 Blokkin verdur tiL Eins og fram kemur igreininni leggja verksmiðjurnar gifurlega mikla áherslu á gœdi og hafa m.a. tekið upp staðalinn ISO 9001 tilþess aó tryggja gceðin. Þá má geta þess að einn starfsmaður er ábyrgurfyrir vélinni eftir að helstu hlutir hennar eru komnir úr málmsteypunni. Ef eigendur Valmet dráttarvéla skoða vélina geta þeir fundið nafn mannsins sem setti hana saman. Sisu Disel fagnar fimmtíu ára afmæli Upphaflegaframleiddi verksmiðjan flugvÉlamútora Fyrir nokkrum árum varð mikill samdráttur í Evrópu í sölu diselvéla og ináttu vélaframlcið- endur hafa sig alla við til að drukkna ckki í öldudalnum. Fyrirtæki voru endurskipulögð, sum hurfu í alþjóðlega hringi og samvinna á milli þcirra jókst frá því sem áður þekktist. Sisu Disel í Finnlandi er citt þcirra fyrir- tækja scm hér um ræðir en Bændablaðið heimsótti höfuð- stöðvar þess fyrr á árinu. Til- efnið var reyndar 50 ára afmæli Sisu Disel. Þar á bæ varð sam- drátturinn tilefni mikillar upp- stokkunar sem hcfur skilað sér margfalt til baka. A liðnu ári framleiddi Sisu Disel 13000 diselvélar, stórar og smáar, og mælt í hestöflum er hlut- deild Sisu Disel í evrópska mark- aðnum um 12% og 14% í hestöfl- um annarra landbúnaðartækja. Hvað varðar Valmet sem er einnig eitt dótturfyrirtækja Sisu Corpora- tion, og notar að sjálfsögðu aðeins vélar frá Sisu Disel, þá er Valmct mest selda dráttarvélin á Norður- löndunum. Frá ársbyrjun 1996 til og með 1. desember seldust 4.083 traktorar á Norðurlöndunum sem er 34,3% af markaðnum. Afmælisbamið er í borginni Linnavuori, sem er umlukin klett- óttum hæðum, svo ekki sé minnst á himinhá tré. Staðsetning verk- smiðjunnar hlýtur að vekja athygli ókunnugra en leiðsögumaður fræddi Bbl. á því að í síðari heim- styrjöldinni hefðu flugvélamótorar verið framleiddir í verksmiðjunni og að henni hefði verið valinn staður með tilliti til þess hve erfitt hefði verið fyrir andstæðinga Finna að gera loftárásir á húsa- kynnin. Þess má geta að Linna- vuori þýðir Kastalafjöll og í ná- grenninu eru rústir virkis sem eitt sinn þjónaði þýðingarmiklu hlut- verki. Vélaverksmiðjan Sisu Disel var sett á fót árið 1942 en fram- leiðsla diselvéla hófst fimm árum síðar. Óhætt er að fullyrða að diselvélaflóra verksmiðjunnar er fjölbreytt en núverandi vélar voru allar hannaðar í upphafi níunda áratugarins. “Hér snýst allt í kringum gæði og umræða um gæðamál er mikil meðal starfsmannanna,” sagði einn þeirra sem sýndu blaðamönnum fyrirtækið. “Við höfúm tekið upp staðalinn ISO 9001 en það skiptir kaupendur véla frá okkur afar miklu máli. Þeir geta nú gengið að því sem vísu að hér er fylgt ákveðnum vinnureglum sem tryggja gæði framleiðslunnar.” Stjómendur Sisu Disel hafa sett markið hátt. Framleiðsla verk- smiðjunnar hefur aukist jafnt og þétt á liðnum árum og er nú um 12.000 vélar á ári. Ætlunin er að um aldamót framleiði verksmiðjan um 20.000 vélar árlega. Bróður- parturinn er framleiddur í Finn- landi en auk þess rekur Sisu Disel vélaverksmiðju í Brasilíu. En hvaða vélar þekkjum við frá Sisu Disel? Svarið er einfalt - þær knýja Valmet dráttarvélamar sem hafa gert sig gildandi á íslenskum markaði á liðnum árum. Það er fyrirtækið Bújöfur sem flytur vélamar til Islands. “Við erum hreykin af því að geta boðið ís- lenskum bændum Valmet dráttar- vélar með diselvélum frá Sisu Disel,” sagði Þorgeir Elíasson, framkvæmdastjóri Bújöfurs, “því Finnamir þekkja vel til erfiðra að- stæðna sem menn búa við á norð- urhveli jarðar. Finnskir bændur þurfa að geta treyst vélum sínum við ólíklegustu aðstæður - rétt eins og starfsbræður þeirra á Islandi. Hönnun vélanna tekur mið af þessari staðreynd. Valmetinn hefur náð fótfestu hér á landi og er nú með söluhærri vélum.” “I verksmiðjum okkar er gífur- lega mikil áhersla lögð á gæði og eitt af því sem við höfúm gert er að gera starfsmenn mun ábyrgari fyrir vélunum. Þannig er það einn mað- ur sem setur hverja vel saman og ber ábyrgð á henni - setur reyndar nafn sitt á vélina svo vitað sé hvar var að verki,” sagði einn talsmanna Sisu Disel. Það vekur líka athygli að vélar eru ekki framleiddar á lager - þvert á móti. Hver og ein einasta vél er seld þegar fram- leiðsla á henni er hafin. Þannig er enginn lager nýrra véla í húsa- kynnum Sisu Disel. “Þetta skiptir höfuðmáli því það er dýrt að liggja með nýjar vélar,” sagði sami við- mælandi. En Sisu vélamar eru ekki að- eins í dráttarvélum Valmet. Þær er einnig að finna í dráttarvélum frá Massey Ferguson og Steyr en Sisu Disel selur umrædduin fyrirtækj- um umtalsvert magn diselvéla. Samstarf fjölþjóðlegra samsteypna er með ólíkindum og sem dæmi má nefna að fyrirtækið framleiðir Valmet dráttarvélar fyrir nokkur önnur fyrirtæki sem aðeins mála þær sínum litum - og selja síðan á mörkuðum sem Valmet hefúr ekki haslað sérvöll á. Sisu Disel er þekkt nafn í Finn- landi. Sú staðreynd kemur vel fram þegar rætt er við Finna en í samtali við einn þeirra kom fram að hann - rétt eins og fleiri - sökn- uðu þess tíma er diselvélar frá Sisu Disel knúðu jámbrautarlestar um landið þvers og kruss. Eina þeirra var t.a.m. að finna skammt frá Valmet dráttarvélaverksmiðjunum en við nánari athugun kom í ljós að jámbrautarlestin var í eigu finnska þjóðminjasafnsins. Sú vél var knú- in 180 hestafla, 8 cyl vél sem var hreint engin smásmíði. Nýjar vélar frá Sisu Disel, sem búa yfir sama afli, eru aðeins brot af þeirri stærð. Framleiðsla Sisu-Valmet á traktorum í Finnlandi hefur aukist ár frá ári. Því til sönnunar má gcta þcss að árið 1971 nam framleiðslan 2.340 vélum en á liðnu ári voru smíðaðar 7.200 dráttarvélar. Rétt eins og í diselvélum þá setja menn markið hátt þegar kemur að traktorum. Um aldamót er gert ráð fyrir að árleg framleiðsla á Valmet traktorum í Finnlandi og Brasilíu vcrði 20.000 stykki árlega. Rétt cins og í vélaverksmiðjunni eru ckki framleiddar dráttarvélar á lager. Allar vélar sem renna út úr verksmiðjunni eru þcgar scldar. „Vinsælasta tcgundin hér á landi er 65 gerðin en hún er með 75, 80 og 86,5 hö vélar. Vélin með 86,5 hö vélinni licfur verið nýlega kynnt hér á land og vakið verðskuldaða athygli,“ sagði Þorgeir Elíasson hjá Bújöfri. Á myndinni er nýr Valmct að skríða saman. 'il ’ jf 1 jjji 1

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.