Bændablaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 30. september 1997 Bœndablaðið 15 „Eylingarðll og uppgræOsla" - er he'iti sýningar sem Landgræðslan og Orkustofnun settu upp í Kirkjubæjarstofu Kirkjubæjarstofa var opnuð formlega fjórða september sl. af Guðmundi Bjarnasyni land- búnaðar- og umhverfisráð- herra. Viðstaddir opnunina voru um 70 manns. „Mikill áhugi er bæði meðal vísindamanna og heimamanna um stofnunina. Kirkjubæjarstofa mun verða virk stjórnsýsluleg miðstöð í tengslum við öflun nýrrar þekkingar og mun jafnframt vinna að því að koma henni áfram til þeirra sem unna síkvikri náttúru eða áhugaverðri sögu og menn- ingu. Eitt er víst, að ekki mun skorta áhugaverð viðfangsefni" sagði Helga Guðmundsdóttir fram- kvæmdastjóri Kirkjubæjarstofu. Kirkjubæjarstofa er lifandi vettvangur fyrir rannsóknir og kynningu á hinni sérstæðu og sí- virku iðju náttúruaflanna í héraðinu og þeirri menningu, sem náttúruöfl og fjölmargir aðrir áhrifaþættir hafa skapað. Styrk- leiki stofnunarinnar er náið sam- starf við vísindastofnanir og í ráð- gjafanefnd stofnunarinnar eru full- trúar frá langflestum vísinda- stofnunum í landinu. Sett hefur verið upp sýning í samvinnu við Orkustofnun og Landgræðslu ríkisins sem ber yfir- skriftina: „Eyðingaröfl og upp- græðsla“. Sýning þessi er hlaðin fróðleik og vísast er að þeir sem gerðu sér ferð til að skoða um- merki eftir hlaupið á Skeiðarár- sandi sl. vetur myndu hafa sér- staklega gaman að að kynna sér þann fróðleik, því eyðingaröflun- um er gerð skil með ítarlegri um- fjöllun í máli og myndum af hlaupinu á Skeiðarársandi. Þeir sem ekki náðu að sjá ummerkin geta hins vegar myndað sér afar glögga mynd á sýningunni. I kjöl- far þess að eyðingaröfl náttúrunnar láta til sín taka hér í héraðinu, taka oft við umfangsmikil verkefni á sviði uppgræðslu. Því er einnig fjallað um uppgræðslustarf í máli og myndum og til að komast sem næst raunveruleikanum er líkan úr náttúrulegum efnum sem sýnir hvemig eyðingaröflin vinna á landinu og hvemig þróuninni er svo snúið við og landið nær fyrri gæðum. Talsverð áhersla verður í vetur lögð á að kynna fyrirtækjum og fé- lagasamtökum aðstöðu hér í héraðinu bæði til fundar- og ráð- stefnuhalds svo og vegna skemmtiferða starfsfólks. Einnig verður boðið upp á sérstaka þjónustu við skólahópa í vett- vangsferðum. Með þessu vonast aðstandendur Kirkjubæjarstofu til að geta átt þátt í auknum ferðum fólks í héraðið utan eiginlegs há- annatíma ferðafólks. Næsta sumar verður opið alla daga vikunnar í Kirkjubæjarstofu og áhersla verður lögð á að með tilkomu þessarar nýju stofnunar megi takast að fá ferðafólk til að staldra enn lengur við, þegar það leggur leið sína í Skaftárhrepp. Sýningin er opin að jafnaði alla virka daga frá kl. 14:00-16:00 og utan þess tíma samkvæmt sam- komulagi. Hægt er að hringja í síma 487 46 45 alla daga vikunnar og reynt verður að verða við öllum beiðnum um heimsókn í Kirkju- bæjarstofu. Heyskerar Heyskeri - margreyndur á íslandi til fjölda ára. Búvélar ehf Síðumúli 27 108 Reykjavík Sími 568 7050, fax 581 3420 Guðmundur Bjarnason landbúnaðar- og umhverfisráðherra heilsar Jóni Helgasyni, fyrrverandi ráðherra, og formaður stjórnar Kirkjubœjarstofu. A milli þeirra er Helga Guðmundsdóttir, framkvœmdastjóri Kirkjubœjarstofu en Árni Johnsen alþingismaður er lengst til vinstri á myndinni._ Kirkjubæjarstofa opnuð Mest selda dráttarvélin á Norðurlöndum. Valmet er í þriðja sæti á íslandi sam- kvæmt nýjustu tölum frá Bílgreinasambandinu. Tíundi hver Valmet eigandi á nú tvær Valmet vélar. Á annað- hundrað vélar á notkun. Mezzo 6000 serían er ein íburðarmesta og vandaðasta dráttarvélin á íslandi. Nú fáanleg á verði frá kr. 2.300.000,- án VSK. Ef menn eru tímanlega á ferðinni, er hægt að sérpanta vélina eftir óskum hvers og eins. Tryggðu þér vél samkvæmt þínum óskum til afgreiðslu fyrir áramót. Fáðu þér vél sem þú getur skipt milli allra gíra án þess að stíga á kúplinguna. Talaðu við ánægða dráttarvélaeigendur. Talaðu við Valmet eigendur. Stórsending á leiðinni. BÚIJÖFUR Krókhálsi 10,110 Reykjavík, sími 567 5200, fax 567 5218, farsími 854 1632 Dúnframleiðendur! Fyrir ágústlok hafði ég hreinsað fyrir rúmlega 50 framleiðendur og miðlað útflutningi á æðardúni þeirra, samtals yfir 400 hreinum kg úr hráefni tíndu í vor. Framleiðendur fengu 60.000 kr/kg, fría hreinsun og í hverju tilfelli uppgert innan tveggja vikna frá útflutningsdegi, flestir innan ágústmánaðar. Þakka tryggum framleiðendum sýnt traust og gott hráefni sem hefur tryggt gagnkvæman hag. Dúnframleiðandi, þú finnur örugglega einhverja viðskiptavina minna. Taktu þeirra orð en ekki mín fyrir: gæðavinnslu, viðskipta- öryggi og engri mismunun eftir stærð framleiðenda. Jón Sveinsson - dúnhreinsun/útflutningsmiðlun - Miðhúsum, 380 Króksfjarðarnes Sími 434 7721 og 588 9924 TRAKTORDRIFNAR STEYPUHRÆRIVELAR Traktorstengdar þvingunarhrærivélar. + Lágbyggðar - Auöveld mötun með traktor. + Afkastamiklar og öflugar. -Ar Margra ára reynsla hérlendis. Hentugar fyrir baendur, búnaðarfélög og fleiri. BÁSMOTTU, /////'/ / //' / Básmotturriar éru'slitsterkar og endingargóðar.Þær einangra gólfkulda mjög vel, eru auðveldar í þrifum og skapa betra heislufar búpenings. Básmotturnar eru 1,0 m á breidd og fást í eftirfarandi lengdum: 1,10m, 1,20m, 1,40m og 1,50m. Mest seldu mjólkurmælar í heiminum. Öll notkun og sýnataka mjög auðveld. Uppsetning einföld og öll þrif auðveld. Áratuga reynsla hér á landi Háþrýstiþvottatæki með einfasa rafmótor. Afköst við hámarksþrýsting 160 bar: 8 l/mín. Háþrýstiþvottatæki ffyrir aflúrtak traktors. Afköst við mesta þrýsting 200 bar: 15 l/mín. ummm ÞÓR HF ■■■■■ f. sa ■ u { ' 01 i Reykjavík - Akureyri 1 J REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími: 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461-1070

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.