Alþýðublaðið - 07.02.1924, Blaðsíða 4
4
ESLP‘f ÐUBERÐK&
Babuackiu,1) starfaemi sína.meðal
veikaiýðsins í Petrograd Pet-
erburg, nú Leningrad, o: Lenins-
borg). Þeir undiibjuggu verkföll
og gáfu út flugrit. Hann átti þá
í ritdeiium við ýmsa merka for-
ingja frjálslyndu stefnunnar (m.
a. Michailovskij) um kenningar'
Maix. Greinar þær um hagfræði-
leg og þjóðfræðileg efni, sem hann
reit undir dulnefninu >Ilin< vöktu
eftirtekt gömlu foringjanna á hou
um. Skrif hans sýndu óvenju-
skýran skilning á fræðikerfi Maix
og hárfína rökvísi, enda var hon-
um þá varpað í fangelsi. Skömmu
eftir að hann slapp út, gaf hann
út flugrit >Viðfangsefni social-
demokrata-flokksins rússneska<.
Ritið hlaut afarmikla útbreiðslu í
Rússiandi og barst með flótta-
mönnum til Sviss, en þar voru
margir merkir Rússar iandfiótta,
m. a. Plechanov, Akselrod og Vera
Sassulitsch, stofnendur jafnaðar-
mannahreyfingarinnar rússnesku.
PJechanov, sem síðar varð and-
stæðingur Lenins, lét svo um
mælt, að nú færi að birta af degi
í Rússlandi, því að hér væri kom-
inn foringi, sem myndi móta fram-
tiðina.
Lenin var alla ævi ósveigjan-
legur. Hlífðarlaust benti haun á
þá galla, sem voru á hreyfingunni.
Hann híkaði aldrei við að benda
á þá; kom það greinilegast fram í
árásum hans á Peter Struve, sem
mjög hefir komið við sögu Rúss-
lands. Hann þýddi >Das Kapital<
eítir Ma\x á rússnesku og stóð
framarlega í baráttunni. Lenin
róðst á hann og tætti sundur
skrif bans. >í*ór eruð burgeis og
munuð ekki hika við að hlaupa
úr liði verkalýðsins — yflr til
buigeisanna<, skrifaði Lenin; —
orð hans rættust.
í ársbyrjun 1891 flýði hann
fyrst úr slandi, en kom fljótt heim
aftur og giftist þá eftirlifandi
ekkju sinni Nadjeschda Konstan-
tmovna Krupskaja, sem var starfs-
maður við blað byltingamanna
>Iskra< (Neistinn) í Petrograd.
Sama ár hóf hann laganám við
háskólann í Petrograd og útskrif-
aðist þaðan. 1895 fór hann aftur
1) Skotinn 1907 í Síberíu samkvœmt
BkipunRenneBkamfpsjhershöföingja, sem
þektur er frá orustunni við Mukden
og ósigrunum við masurÍBku vötnin.
utan, en kom heim árið eftir og
hélt þá áfrarri ritstörfum sínura
undir dulnefninu >Tumin<.
1896 hóf lögreglan herferð gegn
socialistum i Petrograd. Leijin var
þi tekinn fastur og 29. jan. 1897
dæmdur í þriggja ára útlegð til
Austur-Síberíu. Hann dvaidi lengst
af í Irkutsk og Krasnojarsk. 1900
hólt hann enn utan.
Plechanov og Pavl Akselrod
voru þá foringjar flokksins, en
voru teknir að fjarlægjast kenn-
ingar Marx. Lenin tók þátt í deil-
unum innan flokksins sem fyrr;
— hver sá, sem ekki viðurkendi
róttmæti marxismans, varð fyrir
barðinu á honum, m. a fornvinur
hans Martov. í blaðinu >Iskra<
róðst hann heiftarlega á social-
revolutionera bændaflokkirin og
ævintýra stefnu hans. Margir gaml-
ir narodvoltsi (fyrri flokksbræður
úr >Narodnaja Volja<) höfðu lent 1
í flokknum. Piægt er orðið ávarp
hans til þeirra árið 1902. >Þór
eruð, herrar mínir, socialrevolu-
tionerir! fulltrúar smáborgaranna
og ekkert. annað.^1) 1903 klofnaði
jafnaðarmannaflokkurinn rússneski
í tvent. Pylgismenn Lenins, bols-
cheviki, urðu í meiri hluta, en
Martov, Plechanov, menscheviki,
í minni hluta. (Prh.)
Um dv. Gieorg Brandes held-
ur dr. Kort Kortsen fyrirlestur í
kvöld kl. 6 í háskólanum. Að-
gangur er ókeypis og fyrir alla.
Sala aðgðugumiðaiina að fyr-
irlestrinum um Vilhjálm Stefáns-
son byrjaði í gær. Viljum vér
ráða þeim, sem vilja tryggja sér
miða, að kaupa þá fyrir helgina,
því að mikil aðsókn er að fyrir-
lestiinum, eins og von er, því að
margir vilja heyra um Vilhjálm,
þennan frægasta landa vorn.
1) Rættiit eftir nóvemberbyltingun*,
þegar þeir slógust í fylgd með Djenikin
og Ko tschak.
Afgreiðsla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
' Ingólfsstræti.
Sími 988.
Auglýsingum só skilað fyrir kl., 8
að kveldinu fyrir útkomudag þang-
að eða í prentsmiðjuna Bergstaða-
stræti 19 eða í síðasta lagi kl. 10
útkomudaginn.
Áskriftargjald 1 króua á mánuði.
Auglýsingaverð 1,50 cm. eindálka.
Útsölumenn eru beðnir að gera
skil afgreiðslunni að minsta kosti
ársfjórðungslega.
Nýkomið: Hveiti, sérlega gott
og ódýrt. Enn fremur kartöflur,
ostur, tólg og kæfa. Verzlun
Guðjóns Guðmundssonar Njáls-
götu 22. Sími 283.
Bæjarstjórnarfnndur er í dag
kl. 5 síðdegis. Á dagskrá eru
kosningar forseta, skrifara og
nefnda, erindi um byggingu lands-
spítalans inni við laugar frá
Guðm. próf. Hannessyni, ráðstaf-
anir gegn inflúenzu 0. fl. auk
venjulegra dagskrármála.
Smásöluverð hór í Reykjavík
hefir til jafDaðar staðið í stað síðan
í október, og er verðtalan sama
nú sðmþá, 168% hærri en 1914.
Sykur heflr hækkað í verði um
32 % síðan í fyrra vetur.
Næturlæknir er í nótt Guðm.
Thoroddsen Lækjargötu 8, simi
231.
Borgarstjóri heflr látið hætta
atvinnubótum í Rauðarárholti.
Unnu þar um 70 manns.
Leikfélagið varð að hættá
sýningu í kvöld vegna veikinda
eins leikendans, frú Guðrúnar
Indriðadóttur.
Leifur heppni kom frá Eng-
landi í nótt.
Rltstjóri og ábjrrgðarmaðnr: HaUbjörn Haíldó»a®i«,
Pr«Rtsoiiðj» HaiSgrííB# BfBwWrtwónarj' Bsrgstsðistrseti 19,