Bændablaðið - 04.05.1999, Síða 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. maí 1999
íslensk hreinsiefni fyrir íslenska mjólkurframleiðendur
Vbrblboð
í tiiefni hækkandi sólar og komu vorsins bjóðum við Þvol extra
sem kaupauka með okkar vinsæla
þvottadufti iP 456 fyrir mjaltakerfin, tankana ofl., sem nú er komin
í nýjar umbúðir,! 0 Itr fötur (sterkar og endingargóðar)
Og aSfit þetta ó sanriB có'ðs verðémj.
Hafið samband við okkar endursöluaðila um land allt.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Mikilvægur samningur
nm vallarfoxgras
Rannsoknastofnun landbúnað-
arins hefur nýlega samið við
fjögur plöntukynbótafyrirtæki á
hinum Norðurlöndunum um
frærækt, markaðssetningu og
hlutdeild í arði af nýjum yrkjum
af vallarfoxgrasi sem koma á
markað á næstu árum. Að-
dragandi samningsins er all-
langur enda langtímaverkefni að
kynbæta ný yrki. í upphafi
níunda áratugarins hófst sam-
starf um kynbætur túngrasa
fyrir ísland, Grænland og
nyrstu héruð Skandinavíu sem
styrkt var af Norrænu ráðherra-
nefndinni.
Verkefnið hefur gengið undir
nafninu Nordgras. Starfsmenn
RALA hafa lengst af leitt
samvinnuna og verkefnisstjóri er
dr. Áslaug Helgadóttir,. sviðsstjóri
jarðræktarsviðs. Vallarfoxgras er
mikilvægasta grastegundin í tún-
rækt á norðurslóð og þess vegna
var lögð áhersla á að kynbæta þá
tegund.. Árangurinn er nú að koma
í Ijós. Von er á tveimur nýjum
yrkjum úr þessu samstarfi. Þau eru
í formlegri prófun á tilraunastöðv-
um á öllum Norðurlöndunum og
verða væntanlega komin á markað
eftir þrjú ár. Þessi yrki munu auka
öryggi í ræktun túna hér á landi og
á norðurslóð hinna landanna.
Einnig er vonast til þess að
markaður verði fyrir yrkin í
Kanada Alaska og jafnvel víðar.
Ef vel tekst til skilar yrkisrétturinn
(höfundarréttargjald) hagnaði til
RALA en þeir sem væntanlega
bera mest úr býtum eru íslenskir
bændur sem fá betri yrki til
ræktunar.
Búfræðingar - kúabú
Við leitum að fjölskyldu með reynslu af bústörfum, til að sjá um
mjólkurþátt kúabús á Vesturlandi. Öll aðstaða í góðu lagi heitt vatn
og nýtt bjálkabyggt einingahús sem reist yrði sérstaklega fyrir við-
komandi. Grunnskóli í 5 km fjarlægð - skólabíll. Kvóti er rúmlega
130 þús. lítrar. Laun reiknuð sem hlutfall af mjólkurframleiðslu. Hér
er um hvetjandi starf til a.m.k. 7 ára. Nánari uppl. í síma 566-8630
e.kl. 20.
Sláturfélag Suðurlands hefur hafið innflutning á tilbúnum áburði frá Norsk Hydro, stærsta
áburðarframleiðanda heims. Áburðurinn er afhentur í stórsekkjum frá Grundartanga og
Þorlákshöfn. Flutningsstyrkur er 500 kr. á tonn í Vestur-Skaftafellssýslu, Dalasýslu, Snæfells-
og Hnappadalssýslu og Vestur-Húnavatnssýslu. Staðgreiðsluafsláttur er 3% í apríl og 2% í maí.
Tryggðu góða sprettu með góðum áburði, túnin græða á því.
Nánari upplýsingar og móttaka pantana hjá SS, Fosshálsi I, Reykjavík
í síma 575 6000, netfangi birna@ss.is og fax 575 6090.
Tegund N PzOs K2O Ca S Mg B Verð kr./tonn Verð kr./tonn án vsk. með vsk.
Hydro 5 I5 I5 I5 3,3 20.697 25.768
Hydro 7 2I 8 I2 I.8 2,7 1,2 0,02 19.592 24.392
Hydro 8 I7 I0 I6 2,3 2,2 1,2 0,02 19.124 23.809
Hydro 9 27 6 6 1.2 19.650 24.464
Takmarkað magn
HYDRO