Bændablaðið - 31.08.1999, Side 5
ÞrityticIdgitP '31. Úgástl999 ^
BÆNDABLAÐIÐ:í!öAJÖA0tf3\8
Frá aðalfundinum á Akureyri.
Norrænn bændasamtökin
þinguðu á Akureyri
í byrjun ágúst var aðalfundur
Norrænu bændasamtakanna,
NBC, haldinn á Akureyri en
slíkur fundur var síðast haldinn
hér á landi haustið 1989. Alls
komu ríflega 100 á fundinn og
þar af voru um 80 frá Svíþjóð,
Noregi, Finnlandi og Danmörku.
Á fundinum voru ýmis innri
mál samtakanna til umræðu og auk
þess var sérstakur dagskrárliður
um stöðu kvenna í norrænum land-
búnaði þar sem fyrirlesarar frá
hverju þátttökulandi fluttu erindi
og gerðu grein fyrir stöðu kvenna,
hver í sínu landi. Frummælandi af
íslands hálfu var Anna Margrét
Stefánsdóttir.
Aðalefni fundarins var undir-
búningur næstu WTO-samninga
sem hefjast um næstu áramót. Á
fundinum voru einnig veitt menn-
ingarverðlaun NBC en þeim er
úthlutað annað hvert ár og ætlað
að styðja menningarstarf sem
snertir landbúnað á Norðurlönd-
unum.
NBC, Nordens Bondeorg-
anisationers Centralrád, eru sam-
tök bænda á Norðurlöndunum
fimm. Þau voru stofnuð árið 1934
og íslendingar gerðust meðlimir
árið 1950. Aðilar að íslandsdeild
NBC eru Bændasamtök íslands,
Framleiðsluráð landbúnaðarins og
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðn-
aði. Helstu áhersluatriði í starfi
samtakanna á seinni árum hafa
verið að fjalla sameiginlega um
þátttöku landanna í alþjóðlegu
samstarfi, s.s. Alþjóðasamtökum
bænda (IFAP) og Alþjóðavið-
skiptastofnuninni (WTO), auk
þess að vera vettvangur umræðu
um ýmis mál sem efst eru á baugi í
landbúnaði á Norðurlöndunum
hverju sinni, s.s. erfðatækni og
gæði matvæla. Löndin skipta með
sér forystuhlutverkinu á tveggja
ára fresti. Ari Teitsson var forseti
NBC en nú hefur Svíinn Hans
Jonsson, formaður LRF, tekið við
því starfi. Nýr ritari Islandsdeildar
er Ema Bjamadóttir en Guðmund-
ur Stefánsson, framkvæmdastjóri
Lánasjóðs landbúnaðarins gegndi
því starfi.
Páll Lýnsson íékk
menningarverðlaun NBC
Árið 1945 ákvað sænska land-
búnaðarsambandið, sem þá var
við lýði undir því nafni, að af-
henda Norrænu bændasamtök-
unum, NBC, sjóð sem var til
kominn vegna framlaga frá ýms-
um landbúnaðarfélögum í Sví-
þjóð. Sjóðurinn var kallaður
Frelsissjóður NBC, „Stiftelsen
NBC's Frihetsfond". Vexti af
sjóðnum mátti nota til verkefna
sem væru samstarfi innan nor-
ræns landbúnaðar til framdrátt-
ar á ýmsan hátt.
Menningarverðlaun Norrænu
bændasamtakanna að þessu sinni
vom veitt Páli Lýðssyni bónda og
sagnfræðingi í Litlu-Sandvík í
Flóa, fyrir margháttuð félagsmála-
störf og störf að menningarmálum.
I umsögn með verðlaunaveit-
ingunni segir: „Páll Lýðsson er öt-
ull fræðimaður og hefur lengi
stundað fjölþætt ritstörf, sem flest
tengjast sögu byggðarlags hans og
þeirra félaga sem þar hafa starfað.
Þar má nefna sögu búnaðarfélags
sveitarinnar, sögu Búnaðarsam-
bands Suðurlands í afmælisriti
þess, sögu ungmennafélags, skóg-
ræktarfélags og hestamannafélags
í heimabyggðum hans svo og sögu
mjólkurbús landshlutans.
I sveit sinni var hann alllengi
oddviti og hreppsstjóri og hefur
hann komið að málum fyrir sveit
sína á fjölmörgum sviðum, verið í
sýslunefnd síðar héraðsnefnd,
komið að stjóm samvinnusamtaka
héraðsins og landshlutans; kaup-
félags, mjólkursamlags og mjólk-
ursamsölu og sláturfélags, en for-
maður Sláturfélags Suðurlands
hefur hann verið um langt skeið og
er þó ekki allt talið.
Páll Lýðsson hefur í störfum
sínum, sem bóndi, félagsmálamað-
ur, kennari, fræðimaður og sagna-
ritari sameinað það sem um aldir
var aðalsmerki margra íslenskra
bænda og haldið því merki á lofti."
Páll Lýðsson er bóndasonur fæddur í Litlu-Sandvík, 7. október 1936. Þar
er hann upp alinn og hefur stundað búskap með fjölþættum öðrum
störfum allt frá því að hann lauk háskólanámi í sagnfræði árið 1959. Hér
tekur hann vlð verðlaununum úr hendi Ara Teltssonar, formanns BÍ.
5 Þ
r
Nokkrar umrœður hafa orðið um útflutningsskyldu sauðfjár
eftirað ákveðið varað útflutningsskylda nú íágústyrði 10%. Rétt
þykirþví að gera grein fyrir málavöxtum.
Búvörulög
í 29. grein búvörulaga segir: „Allir sauðfjárframleiðendur
skulu taka þátt í útflutningi eða sœta útflutningsupgjöri vegna
úflutningskvaðar fyrir sama hlutfall af framleiðslu sinni að
undanskyldu því magni sem
framleiðandi tekur til eigin nota
samkvœmt heimild í reglugerð.
Undanþegnir útflutningsuppgjöri eru
þó þeir framleiðendur sem hafa 0,7
vetrarfóðraðar kindur eða minna á
hvert œrgildi greiðslumarks, enda
liggi fyrir fullncegjandi vottorð um
ásetning þeirra. Þá getur ráðherra
ákveðið, að fengnum tillögum
Bændasamtaka Islands, að kjöt af
sauðfé sem slátrað er á ákveðnum
tímabilum utan haustsláturtíðar sé
undanþegið útflutningsuppgjcn. “
Samdráttur
og birgðaaukning
Verulegur samdráttur liefur orðið í sölu dilkakjöts á
yfirstandandi verðlagsári og þvífyrirsjáanlegt að birgðaaukning
verður milli ára og við áœtlanir um sölu kindakjöts á komandi ári
verður að taka tillit til þessara þátta
beggja. Um 2,7% fjölgun varð á ásettu
sauðfé á liðnu hausti sem einnig gefur
tilefni til að spá aukinni framleiðslu.
Eftir að sölutölur maímánaðar lágu
fyrir þótti því líklegt að
útflutningshlutfall á komandi hausti
þyrfti að vera nálœgt 25%. Slík
hœkkun á útflutningshlutfalli gaf
tilefni til endurskoðunar undanþágu
frá útflutningi enda blasti við að
ávinningur kynni að verða af að slátra
í lok ágúst eða byrjun nóvember til að
komast hjá útflutningsskyldu sem þá
leiddi til birgðaaukningar og hœrri
útflutningsskyldu síðar.
Sami % munur á útflutningsskyldu
í ágúst og sept og var á síðasta ári
Málið var rœtt í Markaðsráði kindakjöts sem er
samráðsvettvangur Landssamtaka sauðfjárbœnda, Bœndasamtaka
íslands og Landssamtaka sláturleyfishafa og niðurstaðan þar varð
að einhver útflutningsskylda þyrfti að vera í ágúst og nóvember en
ef til vill œskilegast að hún vœri
aðeins síðari hluta ágúst og fyrri hluta
nóvember. Að mati Framleiðsluráðs
landbúnaðarins yrði slík útfærsla
mjög erfið og dýr íframkvæmd og
lagði því stjórn BÍ til við
landbúnaðarráðherra með bréfi 15.
júli að 10% útflutningsskylda yrði
allan ágúst sem síðan var ákveðið.
Var þessi % tala m.a. ákveðin með
tilliti til að þáyrði vœntanlega sami %
munur á útflutningsskyldu í ágúst og
sept. og var á síðasta áriþ.e. 15%. Þótt
útflutningsskylda sé vissulega
íþyngjandi hlýtur að vera matsatriði
hve langt er liægt að ganga í að veita
undanþágur frá henni því slíkt leiðir
til aukins útflutnings hjá þeim sem
ekki njóta undanþágu. Framleiðendur sem slátra meginhluta
lambanna utan hefðbundins sláturtíma geta eigi að síður uppfyllt
útflutningsskyldu með slátrun í sept. og okt. Miðað við þann mun
á framleiðendaverði sem virðist hafa verið haustið 1998 milli
innanlandssölu og útflutning má ætla að 10 % útflutningsskylda
þýði um 100 kr. álag á dilk og 25% skylda um 250 kr. á dilk.
Vafalaust eru skiptar skoðanir um hvort þetta telst hæfilegur
munur en hafa verður íhuga að sérstakt hvatningarframlag er
greitt til bœnda af fjármunum sauðfjársamnings
v.sumarslátrunar og er greiðslan 500 kr. á dilk í annarri viku og
400 kr. í þriðju viku ágúst.