Bændablaðið - 18.01.2000, Qupperneq 1
1. tölublað 6. árgangur
Þriðjudagur 18. janúar 2000
ISSN 1025-5621
Sigurður Líndul lög-
Milegur réðgjali í
málflulningi lyrir
ðbyggðenelnd
Bændasamtökin hafa fengið
Sigurð Líndal lagaprófessor til að
vera lögfræðilegur ráðgjafi í mál-
flutningi fyrir Obyggðanefnd.
Samkvæmt þjóðlendulögum er
stefnt að því að skera úr um eigna-
rétt hálendisins fyrir árslok 2007,
þ.e. hvar mörkin eru á milli
eignarlanda og þjóðlendna sem
eru í eigu rrkisins. Óbyggða-
nefndin úrskurðar í því máli og
fyrir henni fer fram málflutningur.
Amessýsla var tekin fyrir fyrst og
hafa aðilar lýst kröfum, en áætlað
er að málflutningur í fyrstu
málunum hefjist næsta vor. Jarð-
eigendur hafa ráðið þrjá lögmenn,
en Sigurður Líndal mun veita
þeim ráðgjöf eftir ástæðum, og er
þessi ráðstöfun ákveðin í samráði
BÍ og lögmannanna.
Sigurgeir Þorgeirsson fram-
kvæmdastjóri BI segir að sam-
tökin meti stöðuna þannig að
málflutningurinn í Amessýslu og
úrskurðir Óbyggðanefndar um það
svæði gefi ákveðið fordæmi fyrir
önnur landssvæði. „Þess vegna
telja Bændasamtökin það skyldu
sína að styrkja eftir kostum þá
lögfræðilegu málsmeðferð sem
landeigendur geta komið við í
þessum málarekstri."
Þegar Óbyggðanefnd hefur
lokið við að úrskurða hvaða svæði
í Amessýslu teljast þjóðlendur
mun hún taka Snæfellsnes fyrir á
sama hátt og smám saman verða
öll landssvæði tekin fyrir.
Bændablaöiö
kemur næst út
1. febrúar
Breyttar
úthlutunarreglur
AfleysingasjóOs
kúabænda
Úthlutunar-reglum Afleysinga-
sjóðs kúabænda hefur verið
breytt. Að sögn Snorra Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
LK, auðvelda þessar nýju reglur
kúa-bændum að sækja styrk til
greiðslu hluta launa afleysinga-
fólks. „Eftir þessar breytingar
geta allir starfandi kúabændur
með meira en 5.000 lítra
greiðslumark fengið styrk úr
sjóðnum. Aður var óheimilt að
styrkja aðra en þá sem voru
aðilar að afleysingahringum.
Sjóðurinn ætti því að nýtast
mun fleirum.“
Samkvæmt útreikningum
Landssambands kúabænda mun
Afleysingasjóðurinn renna til
þurrðar á árinu. "Eini gallinn við
þessar nýju reglur er í raun sá að
nú er farið að minnka verulega í
sjóðnum og því fyrirsjáanlegt að
þetta starfsár verði það síðasta.
Því er ástæða til að brýna fyrir
bændum að sækja um sem fyrst,"
sagði Snorri að lokum. Sjá bls. 21.
FramleiOsluráfi lagt nið-
ur og skipulagi Bí breytt
Hinn 1. janúar sl. tóku gildi lög, urn breytingar á lögum vegna
niðurlagningar Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Við gildistöku
laganna tóku Bændasamtök Islands við meginþorra verkefna
Framleiðsluráðs. Um leið var skipulagi Bændasamtakanna breytt
en það var árangur af skipulagsvinnu sem staðið hefur yflr í
nokkra mánuði. Búnaðarþing samþykkti á sínum tíma ályktun um
nauðsyn endurskipulagningar, en það var Bjarni Snæbjörn
Jónsson, rekstrarhagfræðingur sem leiddi skipulagsvinnuna. Til
þess að mæta sífellt fjölbreyttari þörfum bænda til þjónustu og fé-
lagsstarfsemi hafa tvö megin starfssvið verið sett á laggirnar,
félagssvið og ráðgjafarsvið, en auk þeirra verða starfrækar nauð-
synlegar þjónustudeildir: Útgáfu og kynningardeild, tölvudeild og
deild sam annast fjármál og skrifstofuhald.
„Tvær meginástæður lágu að
baki þess að breyta skipulagi BÍ.
Fyrir lá tillaga þess efnis að BI
tæki við flestum núverandi verk-
efnum Framleiðsluráðs landbún-
aðarins sem bæði leiddi af sé þörf
fyrir endurskipulag verkefna-
vinnslu en gaf jafnframt mögu-
leika á betri nýtingu mannafla og
aðstöðu," sagði Ari Teitsson, for-
maður BI þegar hann var inntur
eftir ástæðu þess að ákveðið var
að breyta skipulaginu. „Fjölþætt
starfsemi samtakanna gaf tilefni
til að skerpa verkaskiptingu svo
forðast mætti tvíverknað og
tryggja að viðfangsefnum væri
sinnt með hagkvæmum hætti.“
Búnaðarþing 1999 fól stjóm
BÍ að vinna að “Yfirfærslu verk-
efna Framleiðsluráðs landbúnað-
arins til Bændasamtakanna,
þannig að þau hafi tekið við þeim
1. janúar árið 2000”, en einnig fól
þingið stjóm að vinna að stefnu-
mótun samtakanna og endur-
skipulagningu skrifstofu BÍ.
-Hvert er markmiðið með
breytingum á skipulagi?
„Fyrst og fremst að skerpa
hlutverk og ábyrgð starfsmanna
gagnvart fyrirliggjandi verkefnum
með þvf að koma á öflugra hóp-
starfi við einstök viðfangsefni og
víðtækari ábyrgð á fjármálum en
einnig að skapa möguleika á
markvissara samstarfi við sam-
starfsaðila. í stuttu máli: Nýta
betur starfsmenn og fjármuni -
landbúnaðinum til styrktar.“
-Hvemig verða bændur og
aðrir varir við breytingamar?
Ari Teitsson, t.v., formaður
Bændasamtaka íslands og Sigur-
geir Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri BÍ.
„í fyrsta lagi hefur búnaðar-
gjald verið lækkað en auk þess þá
vona ég að bændur fái betri
þjónustu, beint frá BI og einnig
gegnum búnaðarsamböndin.
Hvað varðar samstarfsaðila BI
eiga þeir að merkja breytingu á
þann veg að skýrara sé hver annast
þeirra mál en sú skipting fer eftir
eðli viðfangsefna. í stuttu máli þá
eiga samtökin og þeirra viðfangs-
efni eiga að verða sýnilegri og að-
gengilegri öllum landsmönnum
Flest verkefni, sem áður voru á
könnu Framleiðsluráðs, heyra
undir félagssvið
Að sögn Emu Bjamadóttur for-
stöðumanns félagssviðs, heyra flest
verkefni Framleiðsluráðs landbún-
aðarins undir félagssvið s.s. þau
sem lúta að útreikningum á beinum
greiðslum, umsjón með greiðslu-
marksskrám og handahafaskrám,
söfnun á birgðaskýrslum, einstak-
lingsskýrslum, álagningu gjalda
samkvæmt V. kafla búvömlaga,
framkvæmd á reglugerð um út-
flutning á kindakjöti og útreikning-
ar á vaxta- og geymslugjaldi. Allar
fjárreiður verða hins vegar á hendi
fjármálasviðs Bændasamtakanna
sem Gunnar Hólmsteinsson veitir
forstöðu. Fjórir af fyrrverandi
starfsmönnum Framleiðsluráðs
komu til starfa á félagssviðinu.
Auk Emu em það þau Ómar S.
Jónsson, Guðrún S. Sigurjónsdóttir
og Jóhann Ólafsson.
Auk þeirra verkefna, sem þau
unnu við hjá Framleiðsluráði, sinna
þau öðmm verkefnum sem em á
vettvangi félagssviðs. Ómar tekur
við umsjón með handhafaskrá
vegna beingreiðslna og Ema heldur
utan um aðilaskipti að greiðslu-
marki ásamt Jóni V.
Jónmundssyni, sem mun áfram
vinna við þetta verkefni. Rafn
Guðmundsson mun einnig vinna
áfram við ýmsa útreikninga. Ema
sagði að skipulagningu félagssviðs
væri ekki endanlega lokið og
einhveijar breytingar gætu enn
orðið á skiptingu verkefna milli
starfsmanna. Einnig sé í ráði að
semja við Landssamtök slátur-
leyfishafa um framkvæmd til-
tekinna verkefna. Auk verkefna
Framleiðsluráðs hefur félagssvið
síðan það hlutverk að standa vörð
um rekstrarskilyrði og ímynd ís-
lensks landbúnaðar og annast hvers
konar upplýsingaöflun um starf-
semi og hag landbúnaðar í þeim til-
gangi að styðja hagsmunabaráttu
bænda.
Nánar er fjallað um nýtt
skipurit Bœndasamtaka Islands
á bls. 6