Bændablaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 29. febrúar 2000
BÆNDABLAÐIÐ
13
SS sigrar í umbúðasamkeppni Samtaka
iðjnaðarins fyrir helgarsteikina:
„Leinium mlda
Muá
vdruliröun"
- segin Bjarni Úlafur Guðmundsson, deildarsQóri sdludeildar SS
Þann 18. febrúar frunisýndi
leikdeild Ungmennafélags
Biskupstungna Spanskfluguna,
gamanlcik með söngvum eftir
Arnold og Bach í félags-
heimilinu Aratungu.
Leikstjóri er Björn Gunn-
laugsson, aðstoðarleikstjóri í Þjóð-
leikhúsinu. Björn er nýfluttur
heim til Islands eftir langa dvöl
erlendis, síðastliðin 5 ár bjó hann í
London og starfaði við leikhús vítt
og breitt um Bretland. Hann lærði
leikstjórn í Bandaríkjunum og
Bretlandi, en leikhúsfræði í
Svíþjóð.
A undan sýningum er boðið
upp sérstakan leikhúsmatseðil í
Aratungu með léttum réttum og
tilheyrandi veigum. T.d. ofn-
bakaður hrísgrjóna-, grænmetis-
réttur, Gratin Tiedermeyer og ný-
bakað hunangs-, sinneps- osta-
brauð að hætti Lúðvíks Klinke,
svo fátt eitt sé nefnt. Borða-
pantanir í Aratungu s: 486-8811.
Frumsýning var föstudaginn
18. febrtiar en næsta sýning verður
í kvöld, þriðjudaginn 29. febrúar.
Næstu sýningar verða svo sem hér
segir: 7. sýning föstudaginn 3.
mars, 8. sýning laugardaginn 4.
mars, 9. sýning miðvikudaginn 8.
mars, 10. sýning föstudaginn 10.
mars og 11. sýning laugardaginn
11. mars
Smá-
auglýsinga
wjvkJ1 síminn er
563 0300
Sláturfélag Suðurlands bar sigur
úr býtum í umbúðasamkeppni
Samtaka iðnaðarins, en úrslitin
voru kynnt fyrir skömmu. Það
var vörulína frá SS þ.e.
Helgarsteikur, sem þótti vera
með glæsilegustu umbúðirnar,
en að mati dómnefndar er þetta
glæsileg umbúðalína, vel fram
sett og freistandi, sem sýnir
innihaldið vel og gefur
neytandanum góða hugmynd
um hvers er að vænta. Það var
auglýsingastofan Fíton sem
hannaði umbúðirnar.
Bjami Olafur Guðmundsson,
deildarstjóri söludeildar SS, segir
þetta styrkja Sláturfélagið í þeirri
trú að verið sé að gera vel. „Við
höfum unnið í vöruþróun í tölu-
verðan tíma og helgarsteikin er
hluti af henni. Hún er búin að vera
á markaði í tvö ár og neytendur
hafa tekið henni vel. Þetta veitir
okkur aukið sjálfstraust."
Bjami segir fyrirtækið leggja
mikla áherslu á vöruþróun og að
halda markaðshlutdeild lamba-
kjötsins. „Þetta hefur t.d. hjálpað
okkur í að bjóða nýjar lausnir fyrir
neytendur í nútímasamfélagi sem
tekur sífelldum breytingum. Þessar
lausnir eru einfaldar og þægilegar
fyrir alla fjölskylduna og eru ekki
síður vænlegar til að ná til yngri
neytenda. Þeir hafa að sjálfsögðu
alist upp við lambakjötið og muna
eftir sunnudagslærinu og sunnu-
dagshryggnum hjá mömmu og
ömmu en þessar lausnir eru
Wvnuö
ovmi|\c
HUNANGS-
gljAduk
SAUOVIíáLEOINN
einfaldari og þægilegri."
Bjami segir að m.a. sé SS að
þróa nýjar vörur í filmupakkaðri
vöm. Meðal nýjunga þar em
léttkryddað lambagúllas og lamba-
strimlar. „Þar er komin enn ein
nýjungin sem felst í að þetta er
kryddað og þar af leiðandi tilbúið
beint á pönnuna. Við emm einnig
að koma með nýja rétti í 1944
skyndiréttunum og vomm þar t.d.
að setja aftur á markað kjötsúpuna
en þessir gömlu íslensku réttir em
að gera það gott þar.“
Bjami nefnir einnig Aldamóta-
steikina sem þeir settu á markað
fyrir síðustu jól og er kampa-
vínslegin. „Viðtökumar voru mjög
góðar sem varð til þess að við
ætlum að halda henni áfram á
markaði. Við erum í raun stöðugt
að leita leiða til að bjóða upp á
skemmtilegar nýjunar í lamba-
kjöti.“ Púrtvínslínan er svo nýjasta
línan sem fyrirtækið hefur sett á
markaðinn og þar er að finna, auk
Púrtvínshelgarsteikur, ýmsa
spennandi lambakjötsnýjungar, til
dæmis Púrtvínslambalæri..
Þess má geta að lokum að SS
er að vinna í nýjum vef sem er
ætlað að bæta þjónustu til neyt-
enda. Sláturfélagið heldur einnig
úti vefsíðu með margvíslegum
upplýsingum um fyrirtækið og
vörurnar sem það býður upp á.
Slóðin er www.ss.is.
G.Skaptason & Co. bjóða nú ítölsku
Landini dráttavélarnar frá einum af
stærstu dráttavélaframleiðendum í heimi
-1
* •
ÆgKiOiPTASON^Gg
TUNGUHÁLS 5 • REYKJAVÍK SÍMI577 2770
* fjgt
é'\ -»r“ Ji 1
1 íflB
u il H 1 IjfB
1 m\\m 11 * 9®^ - * , ■•■ :