Bændablaðið - 16.05.2000, Qupperneq 24
24
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. maí 2000
Fyrirspurn á Alpingi um stanfsgrundvöll
inila iönfyrirtækja á landsbyggöinni
Sigríður Jóhanncsdóttir alþing-
ismaður flutti á dögunum fyrir-
spurn á Alþingi ti! iðnaðar- og
viðskiptaráðherra um starfs-
grundvöll lítilla iðnfyrirtækja á
landbyggðinni. Hún spurði
hvort ráðherra hyggðist beita
sér fyrir því að reynt yrði að láta
þessi iðnfyrirtæki njóta ákveðins
forgangs þegar útdeilt er verk-
efnum sem þarf að vinna fyrir
opinbera aðila.
Sigríður nefndi sérstaklega
sem dærni saumastofuna Pryði á
Húsavík sem árið 1997 fékk 500
þúsund króna styrk vegna átaks til
atvinnusköpunar til að hanna og
markaðssetja vörur úr líni í heil-
brigðisstofnanir. í framhaldi af því
hefur hún síðan unnið verkefni fyr-
ir þvottahús Rfkisspítalanna sem
hafa gjörbreytt rekstri hennar.
Saumastofa þessi var nýlega beðin
um að faxa í snatri tilboð í 3.000
sett af starfsmannafatnaði. I fram-
haldi af þessu óformlega útboði var
lægsta tilboði tekið, frá fyrirtæki
sem hyggst láta sauma fatnaðinn í
Litháen. I máli Sigríðar mátti skilja
að þetta gæti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir saumastofuna og að
hún gæti jafnvel þurft að segja upp
fólki vegna verkefnaskorts. Þetta
gagnrýndi Sigríður harðlega og
sagði þetta ekki vera til marks um
þá stefnu að stöðva lands-
byggðarflóttann og bæta kjör fólks
í hinum dreifðu byggðum.
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra svar-
aði því til að verið væri að styrkja
Háskólann á Akureyri með því að
færa allmörg vísindaverkefni
þangað. Þegar vísindamenn með
mismunandi faglegan bakgrunn
komi þannig saman skapi það
möguleika á nýjum rannsóknar-
verkefnum sem leiði af sér ný störf
og ný fyrirtæki. Með þessu móti sé
byggð upp þekking á lands-
byggðinni og þannig verði sam-
keppnisstaða hennar sterkari þegar
kemur að því að bjóða út verkefni á
vegum hins opinbera. Þá nefndi
Valgerður að ríkisstofnanir hafi í
auknum mæli sótt þjónustu sína út
á land fyrir smærri verkefni.
Um saumastofuna Prýði sagði
Valgerður að vissulega yrði það
mikið áfall ef fækka þyrfti störfum
þar. Hún telur þó ekki útséð með
að hægt verði að veita þeim fleiri
verkefni frá ríkisstofnunum. Þá tók
Valgerður einnig fram að um
bráðabirgðaútboð hafi verið að
ræða og hið raunverulega útboð
hafi ekki farið fram, ef það fer þá
fram.
Nokkrir fleiri þingmenn tóku til
máls og lýstu flestir yflr mikilvægi
þess að halda í störf á lands-
byggðinni.
Staðalbúnadur
ABS hemiakerfi
Öryggispúði
Hátt og lágt drif
Byggður á grind
Öflug dísilvél
Rafknúin stjórntæki
ásamt fleiru
Langar þig í öflugan 7 manna jeppa sem hefúr allt en kostar lítió?
Calloper er svarið. Hann hefur allt sem hægt er að hugsa sér í
lúxusjeppa og kostar sáralítið miðað við sambærilega jeppa á
markaðnum. Galloper er stór, rúmgóður og rfkulega búinn jeppi
sem hentar fjölskyldufolki afár vel. Það besta við Galloper er verðið,
aðeins 2.290.000 krónur! Hafðu samband við sölumenn HEKLU
eða næsta umboðsmann og kynntu þér kosti Galloper.
1.820 kfló af GALLOPER kosta aóeins
2.290.000 kr.
leugivegur • Stmt S69 SS00 * Helmatlba www.heilt.ls • Netfeng heklaf9hekle.it
HEKLA
-ifHysmáMfrriM!
Frá uppboði i Kaupmannahöfn.
Hækkandi verð
en lækkandi
gengi á skinna-
uppbnði í Kaup-
mannahöfn
Á nýafstöðnu skinnauppboði í
Kaupmannahöfn hækkuðu bæði
refa- og minkaskinn í verði frá
uppboðinu á sama stað í mars.
Alls voru seldar rúmlega 2
milljónir minkaskinna og um
80.000 refaskinn. Minkaskinnin
hækkuðu mismikið eftir litaaf-
brigðum en að jafnaði um 5%.
Blárefaskinnin hækkuðu hins
vegar um 17%. Verð hvítu refa-
skinnanna hækkaði líka en á
síðustu misserum hefur verð
þeirra verið hærra en á blá-
rcfaskinnunum.
Að sögn Einars Einarssonar
ráðunautar í loðdýrarækt tókst
uppboðið vel. Um 300 kaupendur
mættu sem telst vera ágætt.
Stærstu kaupendumir voru frá
Hong Kong og Kína en Rússar
voru einnig meira áberandi á
þessu uppboði en öðrum á þessu
sölutímabili. Gefur það góð fyrir-
heit um framhaldið.
Einar segir að meðalverð allra
seldra minkaskinna (undirtegundir
meðtaldar) hafi verið 211 danskar
krónur. "Öll minka- og refaskinn
seldust sem verður að teljast mjög
jákvætt. Það að salan er svo góð
undirstrikar áhuga kaupenda á
skinnum fyrir tískuheiminn. Ljóst
er þó að gengi gjaldmiðla spilar
hér inn í og hefur staða íslensku
krónunnar gagnvart Evrópu-
myntunum neikvæð áhrif á af-
komu bænda. Sem dæmi má
nefna að danska krónan hefur
fallið mjög mikið, þ.e. um ca. 5%
á síðustu 2 vikum eða því sem
nemur þessari hækkun á minka-
skinnunum. Þetta eru því ekki
peningar í vasann fyrir íslenska
framleiðendur. Það verður þó að
teljast jákvætt að skinnin skuli
hækka í dönskum krónum. Einnig
er álit sérfræðinga um framhaldið
jákvætt en það gefur manni von
um að staðan batni með réttri
skráningu gengisins," sagði Einar
að lpkum,
GALLOPER
Aðeins
1.258
kr. kílóið
iSÉÍfii '