Bændablaðið - 14.06.2000, Page 1
11. tölublað 6. árgangur Miðvikudagur 14. júní 2000 ISSN 1025-5621
Hólmfríður A. Sigurðardóttir lét nú
af störfum sem kennari við
skólann eftir farsælt starf til
margra ára.
Hólmfoíöur hæfflr hjá
Garöyrkjuskólanum
Þegar Sveinn Aðalsteinsson,
skólameistari Garðyrkjuskóla
ríkisins sleit skólanum fyrir
skömmu kvaddi hann sérstaklega
Hólmfríði A. Sigurðardóttur,
kennara og sérfræðing við skólann
en hún lætur nú af störfum vegna
aldurs. Hólmfríður útskrifaðist frá
danska landbúnaðarháskólanum
árið 1961 sem garðyrkjukanditat
og hóf störf við Garðyrkjuskólann
árið 1985. Hólmfríður hefur
áunnið sér óblandna virðingu allr-
ar garðyrkjustéttarinnar og meðal
almennings fyrir skrif sín, kennslu
og fræðistörf. Hólmfríður hefur
verið afar farsæl í sínu starfi og af-
skaplega vel liðin sem kennari,"
sagði Sveinn. - Sjá nánar um
Garðyrkjuskólann á bls. 23
Merkl erfðabreytl matvæli
fara að sjást á næsta ári
Reglugerð um merkingu erfðab-
reyttra matvæla verður gefin út í
umhverfisráðuneytinu síðar á
þessu ári. Innflytjendum þessara
matvæla verður gefinn sex
mánaða aðlögunartími tii að
fara eftir reglugerðinni þannig
að neytendur geta átt von á að
sjá sérstaka merkingu á erfðab-
reyttum matvælum snemma á
næsta ári. Þetta kemur fram í
svari umhverfisráðherra við fyr-
irspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur um erfðabreytt
matvæli.
I svarinu kom einnig fram að
til standi að breyta reglugerð um
sleppingu eða dreifingu og
markaðssetningu erfðabreyttra
lífvera í samræmi við tilskipun
Evrópusambandsins. Meðal breyt-
inga verða að leyfisveitingar til
slíks verða tímabundnar og þeir
sem markaðssetja erfðabreyttar
lífverur eigi að fylgjast með og
vakta áhrif þeirra á umhverfið. Þá
verða sett inn í reglugerðina
ákveði um rekjanleika slíka
lífvera.
Þá kom fram að Hollustuvemd
ríkisins og ráðgjafanefnd um
erfðabreyttar lífverur hafi lagt til
að ísland hafni markaðssetningu á
yrki af erfðabreyttri repju með þol
gegn glufonísat ammonium.
Ástæðan er sú að repjan getur
vaxið á íslandi og víxlast við
skyldar nytjajurtir, svo sem
fóðurrófur, fóðumæpur og ýmsar
káltegundir.
Ráðherra skýrði einnig frá því
að nýverið hafi verið gengið frá
bókun um lífvemd (Protocol on
Biosafety) á grundvelli 15. gr.
samningsins um líffræðilega
fjölbreytni. Bókunin fjallar um
notkun, flutning, dreifingu og
aðgerðir til að draga úr hættu af
völdum erfðabreytta lífvera,
matvæla og fóðurs og var lögð
fram til undirritunar á aðild-
arríkjaþingi samningsins í Nairobi
í Kenýa 24. maí sl.
í byrjun sumars í Eyjajirði
Heimsráóstefna Alþjóóasamtaka búvöruframleiðenda:
Hlutup búndans í búvttruverðinu minnkar stöðugt
Á heimsráðstefnu Alþjóðasamtaka bú-
vöruframleiðenda (IFAP), sem haldin
var í Hannover í Þýskalandi um
mánaðamótin, var eitt umfjöllunarefnið
þáttur bænda í „fæðukeðjunni“, þ.e.
ferli matvælaframleiðslunnar frá bónda
til borðs. Sigurgeir Þorgeirsson, sem sat
fundinn ásamt Ara Teitssyni og Herði
Harðarsyni telur þessa umræðu hafa
verið hvað athygliverðasta á dagskrá
fundarins.
Annars vegar fiuttu erindi fulltrúar
neytenda, náttúruvemdarsinna og kaup-
manna, sem allir lögðu áherslu á fæðu-
öryggi, merkingu og rekjanleika mat-
vömnnar, náið samstarf og samráð allra
hlutaðeigandi hagsmunaaðila, sjálfbæra
framleiðsluhætti, dýravemdunarsjónarmið
og fjölbreytta gæðaframleiðslu. Neytenda-
fulltrúinn lagði að auki áherslu á að efla
þyrfti gagnkvæmt traust milli framleiðenda
og neytenda, og ekki fór á milli mála, að
þetta traust hefur beðið hnekki við öll þau
hneykslismál sem upp hafa komið á mat-
vælamarkaðnum í Evrópu á síðustu ámm.
Virðisauki til úrvinnslu og söluaðila
Hins vegar var fjallað um þátt bænda í
verðmyndun búvara, og drógu fulltrúar
bænda upp ófagra mynd af því, hvemig
þeirra hlutur hefur farið síminnkandi,
meðan virðisaukinn hefur færst yfir til úr-
vinnslu og söluaðilanna. Formaður banda-
rískra bænda talaði tæpitungulaust:
„Markaðurinn hefur brugðist bændum, og
það er að gerast alls staðar í heiminum.
Hann skilar ekki sanngjömum eða nægum
hluta neytendadollarans til bænda og þar
með ekki viðunandi endurgjaldi fyrir
vinnu, stjómun eða ávöxtun á eigin fé.“ Og
hann bætti við: „Þessi brestur í markaðnum
er auðskiljanlegur. Hann stafar af stórfelldu
ójafnvægi milli fjölþjóðarisa í matvæla-
iðnaði og fjölskyldubændanna, sem þurfa
að skipta við þessi fyrirtæki. Samþjöppun
iðnaðarins á æ færri hendur er áhyggjuefni
fyrir bændur um heim allan og neytendur
ekki síður.“
Bœndur verða að efla sín afurðafélög
Formaður sænsku bændasamtakanna,
Hans Jonsson sagði það staðreynd, að
virðisaukinn í fæðukeðjunni hefði færst
nær neytendunum, og hnattvæðingunni
fylgdi mikil samþjöppun. „Það sem allt of
víða hefur gerst og er enn að gerast, er að
bændur hafa gefist upp við rekstur afurða-
sölufélaga /samvinnufélaga sinna og veikja
nú stöðu sína með sífelldum undirboðum <
hver gegn öðrum, jafnt innanlands sem í
milliríkjaviðskiptum. Þessu verður að
linna, og lausnin liggur ekki hjá stjóm-
völdum eða í lagasetningu. Bændur verða
einfaldlega að efia sín afurðafélög og
standa saman að úrvinnslu og markaðs-
færslu afurðanna. Einungis með þeim hætti
geta þeir vænst þess að bera úr bítum sann-
gjaman hluta neytendakrónunnar.“
Sigurgeir segir þessi sjónarmið eiga
jafnt við hér sem annars staðar, þótt að-
stæður séu mismunandi milli landa. „Is-
lenskir bændur hafa dæmin fyrir sér og
hljóta að leggja megináherslu á öfiug af-
urðasölufyrirtæki og að styrkja eignarhald
sitt á þeim, þar sem því er öðmvísi háttað."
Sjá nánar á bls. 4.