Bændablaðið - 27.06.2000, Side 21
Þriðjudagur 27.júní2000
BÆNDABLAÐIÐ
21
A myndinni eru, talið frá vinstri: Sæmundur Þorvaldsson, Edwin P.
Brown, Ann R. Klee og Zófonías Þorvaldsson. Ljósm. ÁS
ÆOardúnn lil
BandarDqanna
Búnaðarþingskosningar hjá BSSL:
Slisti fekk Ijóra
fuilirua en U-listinn tvo
íslenskur æðardúnn hefur lengi
verið verðmæt útflutningsvara.
Hins vegar hefur verð og eftir-
spurn oft verið breytileg og
sveiflast býsna mikið. Síðustu
áratugi hefur meginhluti
dúnsins farið til Þýskalands og
Japans. Þótt eflaust hafl margt
verið gert til þess að leita nýrra
markaða, þá fór um 90% af
útflutningi íslendinga á æðar-
dúni á síðasta ári til þessara
landa. Sveiflur á þessum tveim
megin mörkuðum hafa því sagt
mjög fljótt til sín hjá íslenskum
æðarbændum. Það er álit
margra að mikilvægt sé að finna
góða markaði víðar, því að það
mundi skapa meiri stöðugleika í
verði.
í umræðunni um markaðsmál
æðardúns hefur á síðustu áratugum
oft verið horft til N - Ameríku, en
þrátt fyrir einhvem útflutning
þangað fyrr á árum og einstaka til-
raunir síðar, hefur ekki náðst sá
árangur sem vænst var. Fyrir
tveimur ámm hugðist áhugasamur
bandarískur aðili hefja sölu á ís-
lenskum æðardúni í BNA og bauð
hann gott verð. Þegar æðardúnn
héðan kom síðan vestur um haf
fékkst dúnninn hins vegar ekki
leystur út úr tolli vegna þess að í
bandarískum lögum em ákvæði
sem banna verslun með afurðir af
friðuðum farfuglum. Þrátt fyrir
ítrekaðar útskýringar íjölmargra
aðila og stofnana á eðli æðardúns-
tekju hérlendis og að hún sé full-
komlega lögleg samkvæmt ís-
lenskum lögum, fékkst dúnninn
ekki tollafgreiddur og var endur-
sendur til Islands. Eftir að utan-
ríkisráðherra Islands tók málið
formlega upp við yfirvöld í Banda-
rfkjunum var ákveðið að sendiráð
þeirra hér á landi, ásamt fulltrúum
að vestan, kynntu sér málið með
heimsókn til nokkurra íslenskra
æðarbænda, en skoðun á aðstæð-
um hérlendis ætti að auðvelda far-
sæla og viðunandi lausn á þessu
máli. Til þess að kynnast íslenskri
æðardúnstekju fóra síðan tveir
fulltrúar frá Bandaríska sendi-
ráðinu í Reykjavík og fulltrúi frá
Öldungadeild Bandaríkjaþings í
heimsókn til nokkurra íslenskra
æðarbænda í maí sl. Farið var um
nágrenni Reykjavíkur og norðan-
verða Vestfirði. Gestimir kynntust
flestum þáttum íslenskrar dún-
tekju, allt frá lifnaðarháttum æðar-
fuglsins, aðstæðum í varplöndum,
hvemig dúnninn er tekinn og með-
höndlaður þar til hann er full-
hreinsaður og tilbúinn til útflutn-
Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Þór Þorbergsson, Magnea Mar-
inósdóttir og Ann R. Klee.
Ljósm. ÁS
ings. Ekki var annað að sjá en að
erlendu gestunum hafi litist vel á
æðarbúskapinn hér á landi og þær
aðferðir sem viðhafðar era við
dúntekju og hreinsun. Því ríkir full
bjartsýni á að á næstu misseram
muni takast að finna leið sem gerir
það mögulegt að bjóða fram ís-
lenskan æðardún í Bandaríkjun-
um.
ÁS
S-listinn, Sunnlenski bændalist-
inn, bar sigur úr býtum í
kosningu búnaðarþingsfulltrúa
Búnaðarsambands Suðurlands.
S-Iistinn fékk 541 atkvæði eða
63,5% atkvæða og fjóra menn
kjörna en U-Iisti umbótasinna
fékk 295 atkvæði eða 34,6%
atkvæða og tvo menn kjörna.
Auðir seðlar voru fjórtán og
ógildir tveir.
A kjörskrá vora 1475. Atkvæði
greiddu 852 eða 57,8%. Rétt-
kjörnir búnaðarþingsfulltrúar eru
því eftirtaldir:
Fyrir S-listann:
Sveinn Ingvarsson, Reykjahlíð
Sólrún Ólafsdóttir,
Kirkjubæjarklaustri
Eggert Pálsson, Kirkjulæk
Sigríður Jónsdóttir,
Gýgjarhólskoti.
Fyrir U-listann:
Egill Sigurðsson, Berastöðum
Arnar Bjarni Eiríksson,
Gunnbjamarholti.
Sveinn Ingvarsson, efsti maður
á S-listanum, segist sáttur við
niðurstöðuna og að hún sé í
samræmi við það sem hann hafi
búist við. „Við hefðum náttúralega
gjaman viljað fá fimm eins og við
höfðum í síðustu kosningum en
mynstrið á móti okkur var alll
öðravísi núna. Eg reiknaði því
með þessu og er í raun sáttari við
þessa niðurstöðu en ef að við
hefðum öll farið inn á búnaðarþing
án kosninga.“
Sveinn telur helstu skýringuna
á dræmri kjörsókn vera almennt
áhugaleysi. „Það er mikil deyfð í
þessum málum og margir skipta
sér því miður hreinlega ekkert af
þessu. Þetta er ekki einskorðað við
bændur heldur virðist kjörsókn í
slíkum kosningum oft dræm, t.d. í
verkalýðsfélögum.“
Sveinn segist ekki í vafa um
að þessar tvær fylkingar muni
vinna mjög vel saman á
búnaðarþingi. „Ég þekki þessa
menn af engu nema góðu í
félagsstörfum og ég kvíði ekki
samstarfinu við þá.“
Egill Sigurðsson, efsti maður á
Umbótalistanum, sagðist þokka-
lega sáttur við þessa útkomu. „Ég
taldi okkur vera með sterka
málefnanlega stöðu og var því að
gæla við að ná þriðja manninum
inn. Það er þó vel viðunandi að fá
tæp 35% miðað við að við eram að
bjóða okkur fram í fyrsta skipti
gegn afli sem hefur setið á
búnaðarþingi í sex ár.“
Sveinn Ingvarsson.
Mestu vonbrigðin hefðu hins
vegar verið dræm kjörsókn.
„Miðað við að þetta var póst-
kosning þá er kjörsóknin ansi
léleg. Ég er ekki viss um hver
ástæðan er fyrir því en mér sýnist
hún þó vera vantrú manna á
búnaðarþingi eða áhugaleysi.“
Egill er bjartsýnn á að listanum
takist að koma stefnumálum sínum
á framfæri með þessa tvo fulltrúa.
„Hinn listinn var allaf að færa sig
meira og meira yfir á okkar stefnu
þannig að ég held að það gangi
vel. Það var þó slæmt að hafa ekki
náð Elvari inn líka. Þá hefðum við
haft ennþá sterkari fylkingu. Ég er
hins vegar ekki í nokkram vafa um
að þessir fulltrúar Sunnlendinga
muni geta starfað saman á
búnaðarþingi."
Egill Sigurðsson.
Bændur Bændur
Munið 25 ára afmælistilboðið
á sérvöldum heyvinnuvélum
og dráttarvélum.
Sannkölluð verðsprengja
Hafið samband við sölumenn
okkar og fáið nánari upplýsingar
Þekktir fýrlr þjónustu í 25 ár
VÉLAR&
Þjónusia í ,Ah
PJCíNUSTAhf
www.velar.is
Járnhálsi 2, Reykjavík,
sími 5 800 200, fax 5 800 220
Útibú á Akureyri,
sími 461 4040, Óseyri 1a
SÆLUANCE
Mmi rintr ocmomw. iro
SUMARTILBOÐ
A BUVELA- OG VINNUVÉLADEKKJUM
&ÆLUANCE
• ■ nw (X5«ffM»rr* M41 tro
r *
FJÓRHJÓLADEKK Á TILBOÐI:
verðdæmi: fúllt verð tilboð án vsk
22-8X1 fl KlNinSTVRir 5 46ÍÍ.- 4 448 -
HVETJUM ALLA TIL AÐ KOMA
VIÐ HJÁOKKURÁ
verðdæmi: fullt verð tilboð án vsk
22-8X1Í1 MAYYIS r«67 #í.287.- * fno.- 4 040-
verðdæmi: fullt verð tilboð án vsk
22-11X10 MAYYIS fSM lft.1^7.- 8.126.- 6.^26.-
b ia
2000
í LAUGARDALSHÖLL 6.-9. JULI
EINSTÖK SÝNINGARTILBOÐ
AKUREYRl, S. 462-3002 FELLABÆ, S. 471 -1179