Bændablaðið - 05.09.2000, Síða 1
14. tölublað 6. árgangur Þriðjudagur 5. september 2000 ISSN 1025-5621
Unnið nð stfiðlum
til að koma í veg
fyrip að óhpeinip
gpipip knmi ðl
slátrunar
Embætti yfirdýralæknis vinnur
að því þessa dagana að fínna
leið til að koma í veg fyrir að
óhreinir gripir séu lagðir inn til
slátrunar. Að sögn Sigurðar
Arnar Hanssonar aðstoðaryf-
irdýralæknis er verið að vinna
að staðli sem sláturleyfíshafar
eiga að fara eftir þegar ákveðið
er hvort gripir séu of óhrcinir
til að hægt sé að leggja þá inn.
í reglugerð um slátrun, mat og
meðferð sláturafurða, segir:
„Óheimilt er að flytja búfé til
slátrunar sé það áberandi óhreint
að mati flutningsaðila en skjóta
má ákvörðun hans til héraðs-
dýralæknis." Að sögn Sigurðar
Arnar hefur þetta ákvæði ekki
nýst sem skyldi. „Það getur verið
erfitt fyrir bílstjórann að taka
ákvörðun um hvort gripir séu
áberandi óhreinir eða ekki. Einnig
geta áætlanir sláturhúsa og
bóndans um slátrun á gripum
farið verulega úr skorðum ef stór
hluti gripa á viðkomandi bæ er
óhreinn,“ segir hann.
í annarri reglugerð, sem fjallar
um eftirlit í sláturhúsum og
kjötpökkunarstöðvum þeirra, er í
viðauka ákvæði um móttöku- og
afhendingareftirlit. Þar segir að
hafa skuli eftirlit með því hvort
sláturdýr séu hrein og að yf-
irdýralæknir skuli útbúa staðla
fyrir mat á óhreinindum. Þessa
staðla er verið að vinna núna sögn
Sigurðar.
í þessu ákvæði kemur einnig
fram að ef sláturdýr eru óhrein
skuli útbúa frávikaskýrslu og að
kjötskoðunarlæknir skuli stað-
festa hana með undirskrift sinni.
Sláturleyfishafi á síðan að til-
kynna innleggjanda niðurstöðuna
og fara fram á úrbætur. „Við mun-
um vinna með þessum hætti til að
byrja með og síðan má í framhaldi
af því taka ákvörðun um það
hvort beri að verðfella gripi sem
koma frá viðkomandi bónda séu
þeir áfram óhreinir."
Ekki er ljóst hvenær þessir
staðlar verða tilbúnir eða hvenær
farið verður að vinna eftir þeim.
Skóganeigendun
velja fulltPúa á
búnaðapþing
Landssamtök skógareigenda,
LSE, hafa valið Sigurð Jónsson,
Ásgerði, Hrunamannahreppi,
sem fulltrúa LSE á búnaðar-
þingi. Þetta var gert á þriðja
aðalfundi LSE, sem haldinn var
á Hvanneyri, í ágúst. Vara-
maður Sigurðar er Jóhann Þór-
hallsson, Brekkugerði, Fljótsdal.
Þetta er í fyrsta skipti sem
skógarbændur fá sérstakan
fulltrúa á búnaðarþing.
Hún Rannveig Agústa Guðjónsdóttir fékk það hlutverk að sýna Búbót - og það leynir sér ekki að Rannveig er ákveðin í að koma Búbót, sem er frá
Skeiðháholti, á leiðarenda. Búbót er undan Þverteini 97032 og Rósa 254, móðurfaðir Örn 87023.
Slörglæsjleg kúa-
sýning í Olfushöll
Um eitt þúsund áhugasamir
áhorfendur föguðu þegar kýrin
Skrá frá Hæli II í Gnúpverja-
hreppi var útnefnd Kýr sýning-
arinnar Kýr 2000. Kusa lét sér
fátt um fínnast og vildi greini-
lega komast út hið fyrsta enda
styttist mjög í mjaltir. Útnefn-
ingin var lokapunktur á
frábærri sýningu sem Búnaðar-
samband Suðurlands stóð fyrir
ásamt Félagi kúabænda á
Suðurlandi. Dómnefndin sem
eftir miklar vangaveltur veitti
Skrá æðstu verðlaun sýningar-
innar var ekki öfundsverð,
enda sagði Jón Viðar Jón-
mundsson, sem mælti fyrir
hönd nefndarinnar, að munur
á milli gripa í efstu sætum væri
mældur í aukastöfum. AIls
voru 43 gripir skráðir til
keppni. Sýningin var margþætt
en í upphafí leiddu börn kvígu-
kálfa fram á sýningarsvæðið,
þá komu holdakálfar, síðan
fyrsta kálfs kvígur og mjólk-
urkýr en í lokin komu þrjár
kýr sem fengu sérstök heiðurs-
verðlaun - fyrir vel unnin störf.
Sýningarstjóri var Jóhannes
Símonarson. Rætt hefur verið
um að halda sambærilega
sýningu annað hvert ár.
Guðni Ágústsson, landbúnað-
arráðherra, sagði í ávarpi að hann
minntist sýninga sem Hjalti
Gestsson og Jóhannes Eiríksson
hefðu staðið fyrir. „Þeir kunnu að
kalla fólk saman, fræða það og
brýna til dáða. Nú fmn ég að
ráðunautamir og bændumir
skynja á nýjan leik að maður er
manns gaman. Til þess að þjóðin
standi með okkur þurfum við að
halda hátíð, segja hvað við emm
að gera og berjast fyrir nýjum
tíma - öflugri framtíð fyrir ís»-
lenskar sveitir. Hér em menn að
keppa innbyrðis og sýna það
besta. Allar atvinnugreinar þurfa
á slíku að halda. Mér fmnst þessi
sýning stórkostleg."
Sýningin Kýr 2000 var í
Ölfushöllinni sem er mitt á milli
Hveragerðis og Selfoss. Sveinn
Sigurmundsson, framkvæmda-
stjóri Búnaðarsambands Suður-
lands, sagði í ávarpsorðum að
upphaf sýningarinnar mætti rekja
til Jóns Vilmundarsonar, fyrrum
ráðunautar hjá BSSL, og núver-
andi bónda í Skeiðholti, en Guð-
mundur Jóhannesson, ráðunautur,
bar hitann og þungann af sýnin-
gunni. Sveinn sagði að sýningar á
kálfum og kvígum hefðu ekki
verið hér landi en ytra eru þær al-
gengar. „Eg vona að þessi sýning
verði til þess að glæða áhuga
okkar á nautgriparækt," sagði
Sveinn, „og mér finnst alveg sér-
staklega ánægjulegt að finna
áhugann meðal bamanna.“
„Sýning af þessu tagi hefur
margþættan tilgang. Hún eflir
fagmetnað þeirra sem rækta kýr
og leggur gmnninn að ákveðinni
sjálfsvirðingu. Þeir sem ekki sjá
kýr daglega fá hér gott tækifæri
til að sjá hvemig úrvals kýr og
kálfar líta út,“ sagði Þórólfur
Sveinsson, formaður LK.
„Sýningin tókst feikna vel og
þetta er gott framtak."
í flokki 1. kálfskvíga sigraði Tætla frá Stekkum. Sigurvegari
holdanauta var Naut frá Hjálmholti og í flokki mjólkurkúa
sigraði kýrin Skrá frá Hæli II í Gnúpverjahreppi. Skrá var valin
besti gripur sýningarinnar. Kálfurinn Sýning frá Dalbæ fékk
kálfaverðlaunin. Myndir frá sýningunni eru á heimasíðu
Bændasamtakanna www.bondi.is