Bændablaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 6
6
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. september 2000
Sauðfjárbændur fá styrk úr Umhverfissjóði verslunarinnar
ÁPlega lýkur uppgræðslu á um
800 hekturum lands
Umhverfissjóður verslunar, sem
á stundum er nefndur poka-
sjóðurinn, hefur afhent styrk til
Landssamtaka sauðfjárbænda
vegna verkefnisins, „Bændur
græða landið“. Tekjur Umhverf-
issjóðs verslunar er hagnaður af
seldum burðarpokum í verslun-
um á íslandi. Það var Ingi Már
Aðalsteinsson, kaupfélagsstjóri,
sem afhenti styrkinn á aðalfundi
LS í liðnum mánuði. Umhverfis-
sjóður verslunar hefur ákveðið
að úthluta 1.5 milljón króna til
þessa verkefnis, „Bændur græða
landið“. Á þessu ári úthlutar
sjóðurinn alls 26 milljónum
króna og er stærsta verkefnið í
ár uppgræðsla undir Hafnar-
fjalli, en í það fara 6,5 milljónir
en þar taka bændur fullan þátt í
verkefninu, t.d. með því að friða
ákveðin svæði þannig að hægt sé
að græða mela og illa farin
svæði. Ingi Már sagði að þessu
verkefni miðaði vel og að tekist
hefði tekist góð samvinna milli
sjóðsins, bænda á svæðinu og
Landgræðslu ríkisins.
I umsókn Landssamtaka sauð-
fjárbænda til Umhverfissjóðs
Verslunarinnar kom meðal annars
fram að LS sótti um fjármagn
vegna samstarfsverkefnis bænda
og Landgræðslu ríkisins í upp-
græðslu. Verkefnið hófst 1990.
Um fimm hundruð bændur í flest-
um sveitarfélögum landsins vinna
að uppgræðslu mela, rofabarða,
fjagmóa og annars ílla farins lands.
Árangur hefur verið mjög góður
og á hverju ári lýkur uppgræðslu á
um 800 hekturum lands. Ingi Már
sagði að verkefnið skilaði mikilli
bindingu koltvísýrings og væri því
mikilvægur liður í að mæta skuld-
bindingum Islands gagnvart Kyoto
bókun loftslagssáttmálans.
I umsókn LS kom eftirfarandi
fram. „Miklu máli skiptir fyrir
sauðfjárbændur að hraða upp-
græðslu heimalanda sinna og bæta
um leið landkosti fyrir komandi
kynslóðir. Til þess hafa hvorki þeir
né Landgræðslan, sem hefur verið
meginbakhjarl verkefnis, bolmagn
án viðbótarstuðnings." Mikill
fjöldi bænda hefur óskað eftir
aðild að „Bændur græða landið“.
Umsóknin miðar að því að geta
mætt þessum óskum og gríðarlega
áhuga með því að fjölga þátttak-
endum í ár um 150.
Bændablaðið
er fyrir þá sem vilja
fylgjast með málefnum
íslensks landbúnaðar
Askriftarsíminn er
563 0300.
Notaðar
búvélar &
traktorar
CASE 1394, 4x4
87 hö, árg '84, 4800 vinnustundir,
Case ámoksturstæki.
CASE 1394, 4x4
Árg. '86, 87 hö, 4800 vinnustundir,
Alö ámoksturstæki.
CASE 885, 4x4
Árg. '89, 87 hö, 4500 vinnustundir,
VETO FX-16 ámoksturstæki.
DEUTZ AgroTron, 4x4
Árg. 80 hö, árg '97, 80 hö, Trima
ámoksturstæki.
JOHN DEERE 6300, 4x4
Árg. '95, lOOhö, 3600 vinnustundir,
Trima 1490 ámoksturstæki.
JOHN DEERE 6200 SE, 4x4
Árg. '98, 84hö, 650 vinnustundir,
Trima 3.60 ámoksturstæki.
MF 390, 4x4
Árg. '96, 90hö, 1170 vinnustundir.
Trima 1790 ámoksturstæki.
MF 6150, 4x2 Dynashift
Árg. '96, 95hö, 500 vinnustundir.
New Holland L85, 4x4
Árg. '96, 85hö, 2400 vinnustundir.
Alö 620 ámoksturstæki.
ZETOR 7340 T, 4x4
Árg. '95, 80hö, 1616 vinnustundir,
Álö 640 ámoksturstæki.
ZETOR 7341, 4x4
Árg. '98, 80hö, 200 vinnustundir.
ZETOR 7711, 4x2
Árg. '91, 70hö, 2600 vinnustundir.
DEUTZ-FAHR GP-2.50
Rúllubindivél, árg. '89, allar legur
3ja ára, gott útlit.
Verð 350.000,-
CLAAS Rolant 46
Breiðsóps rúllubindivél, árg. '98,
1600 rúllur.
Verð 900.000,-
KRONE 10-16
Fastkjarnavél, árg. '97, 6000 rúllur.
Verð 1.050.000,-
RoCo pökkunarvél
Árg. '97, barkastýrð.
Verð 900.000,-
RECO pökkunarvél
Árg. '97, tölvustýrð.
Verð 450.000,-
ÞÓR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
Reykjavík- Armúla 11 - Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka 3ími 463-1070
IslensMr bændur f
albjúfllegu umhverfi
Nýr WTO samningur
í undirbúningi
A aðalfundi alþjóðasamtaka
bænda, sem haldinn var í Þýska-
landi, í sumar var mikið fjallað
um nýjan WTO (Heimsviðskipta-
stofnunin) samning. Ari Teitsson,
formaður Bændasamtaka Islands,
gerði þennan samning að umtals-
efni í ræðu sem hann flutti á
aðalfundi Landssambands
kúabænda. Gert er ráð fyrir að
samningsgerð ljúki á árunum
2002 til 2004.1 núgildandi samn-
ingi var gert ráð fyrir að beinn
framleiðslustuðningur mundi
dragast hratt saman á komandi
árum.
Ari sagði rétt að fundarmenn
hugleiddu að íslensk stjómvöld
styðja verulega við bakið á
mjólkurframleiðslunni með bein-
um framleiðslutengdum stuðn-
ingi. „Það eru engar líkur á því
að við höldum þessum stuðningi
óbreyttum í mörg ár enn,“ sagði
Ari. „Þess vegna eigum við að
velta því fyrir okkur hvort og þá
hvemig við eigum að bregðast
við þessum vanda. Samningur
okkar við ríkið er í gildi til
ársins 2005 en hvað þá tek-
ur við er allsendis óljóst.
Þegar horft er á þá
fjárfestingu sem
hefur átt sér stað,
og ekki síst í
kvóta, þá
hljótum við að
velta því fyrir
okkur hvort við
gemm hinum
almenna kúa- '■
bónda nógu vel
grein fyrir fram-
tíðinni. Fólk verður
að átta sig á að íslend-
ingar em þátttakendur í
alþjóðastarfi sem þeir í raun
og vem hafa lítil áhrif á - hins
vegar hefur það mikil áhrif á af-
komu okkar bænda.“ Ari sagði
ljóst að á komandi öld myndu
bændur ekki ráða eins miklu um
íslenska landbúnaðarstefnu og
þeir gerðu á 20. öldinni.
Hvað gerist ef Islendingar
ganga í ESB
Ari Teitsson sagði að gengju
íslendingar í Efnahagsbandalag
Evrópu væri ljóst að þá féllu toll-
múrar og að styrkir til landbún-
aðar innan ESB væm mjög ein-
sleitir. „Finnar fengu undanþágu
til að halda hluta af sínum land-
búnaðarstyrkjum en nú er þessum
aðlögunartíma lokið. Þeir em að
reyna að fá nýja undanþágu, sem
getur reynst þeim torsótt, og
mikið hrun hefur átt sér stað í
finnskum landbúnaði."
Ari hefur átt viðræður við
forystumenn sænskra bænda en
þeir tjáðu honum að löngu áður
en innganga Svía varð staðreynd
hefði sænska bændaforystan farið
til Frakklands og aflað sér
haldbærra upplýsinga. Svíar
sögðu Ara einnig að nú væri
mjólkurverð um 30 krónur pr.
líter. „Ég spurði þá hvað þeir sem
byggju nyrst fengju mikið á líter í
styrki. Svarið var að það væm
líklega tæpar tíu krónur á líter. Ef
til þess kæmi að Islendingar
gengju í ESB þá met ég það svo
að mjólkurlítrinn mundi skila til
bónda um 40 krónum eftir
inngöngu. Þá sjáum við hvað er í
húfi og hve nauðsynlegt það er
að við
ast gegn inngöngu Norðmanna í
ESB. „Þetta varð til þess að
norskur landbúnaður lifir enn til-
tölulega góðu lífi en norskir
bændur uppskáru óvild norsku
ríkisstjómarinnar." Ari sagði að
ef sú staða kæmi upp, að hér á
landi yrði mjög hörð umræða um
inngöngu Islands í ESB þá ættu
bændur engan kost góðan. „Við
getum tekið upp harða baráttu
gegn inngöngu og uppskorið
óvild stórs hluta þjóðarinnar. En
við getum illa við það unað að
við göngum inn. Vandinn er því
margþættur og rétt að menn reyni
að gera sér grein fyrir fram-
tíðinni."
Skýrsla utanríkisráðherra
Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, sagði í ræðu á aðal-
fundi LK að síðastliðinn vetur
hefði utanríkisráðherra kynnt á
Alþingi skýrslu um stöðu íslands
í Evrópusamstarfi og hugsanleg
áhrif aðildar Islands að Evrópu-
sambandinu. „Þar er að finna
sérstakan kafla
fömm að
velta fyrir okkur framtíðinni og
hvað við getum gert.“ Nú er í
umræðu innan Evrópusambands-
ins að árið 2006 verði
mjólkurkvótar afnumdir og sagði
Ari að rétt væri að bændur
íhuguðu hvað gæti gerst í
íslenskum landbúnaði ef slíkt
yrði að veruleika.
Ari sagði að norskir bændur
hefðu haft forgöngu um að leggj-
áhrif
hennar á
landbúnaðinn. Sá kafli er að
mínum dómi ömurleg lesning frá
sjónarhóli okkar sem viljum veg
landbúnaðarins hér sem mestan.
Tekjur mjólkurframleiðenda
myndu t.d. lækka um rúmlega
helming og þó búast megi við
áframhaldandi stuðningi við
landbúnaðinn úr sameiginlegum
sjóðum Evrópusambandsins þá
ríkir mikil óvissa um framhald á
stuðningi við mjólkurframleiðslu.
Um sölu unninna mjólkurafurða
segir orðrétt í skýrslunni: „Verð á
unnum mjólkurvörum myndi að
öllum líkindum lækka verulega."
Ég endurtek; lækka verulega.
Ætli það stafi ekki af því að er-
lenda stóriðjan í Mið-Evrópu yf-
irtæki að stórum hluta íslenska
matvælagerð og landbúnaðar-
framleiðslu."
Bœndur andvaralausir
„Ég get ekki að því gert að
mér finnst íslenskir bændur
furðulega andvaralausir í þessu
máli. Örfáir forystumenn bænda
hafa rætt þessi mál við mig.
Aðrir forystumenn og bændur al-
mennt virðast taka þessu létt.
Þegar ég vegna vandræða fyrri
ára gaf eftir tollalausan innflutn-
ing á 15 tonnum af osti frá Nor-
egi rigndi yfir mig skömmum frá
kúabændum og á aðalfundi LK á
síðasta ári fóru sumir hamförum
yfir þeirri ósvífni. Með einu
pennastriki yrði mjólkurfram-
leiðslan minnkuð um eitt gott
meðalbú, sögðu menn. Hvar eru
þessir menn nú og hvar hafa þeir
verið síðan í apríl að skýrsla ut-
anríkisráðherra leit dagsins ljós?
Ég er nýkominn heim af sam-
eiginlegum fundi landbúnaðar-
ráðherra Norðurlandanna. Þar
ræddi ég við finnska land-
búnaðarráðherrann um áhrifin af
inngöngu Finnlands í Evrópu-
sambandið. í stuttu máli hefur
það gerst að finnskum bændum
hefur fækkað úr 80 þús. í 45 þús.
á fimm árum. Verð á afurðum
hefur lækkað verulega og sam-
keppni aukist. Samt hefur land-
búnaðarframleiðslan í Finnlandi
staðið í stað og tekjur bænda lítið
breyst. Afköstin hafa með öðrum
orðum aukist um helming en
tekjumar ekki. Þessi fækkun í
sveitum Finnlands hefur reynst
þjóðfélaginu mjög erfið og af-
leiðingamar em enn ekki að
fullu komnar í ljós. Ég
hvet ykkur bændur til
að skoða þessa sögu.
Ég ætla ekki að
tala meira um
Evrópusambandið
nú en ég geri það
hér með að tillögu
minni að
landbúnaðarráðun-
eytið, Bænda-
samtökin, búgrein-
afélögin og af-
urðastöðvar í kjöti, mjólk
og grænmeti, leggi saman í
sjóð til að fjármagna ítarlega
úttekt á áhrifum Evrópusam-
bandsaðildar á íslenskan
landbúnað. í þeim efnum dugar
ekkert hik, heldur verður að
vinna hratt og vel. Hvort sem við
viljum eða ekki verður umræðan
um aðild að Evrópusambandinu á
dagskrá næstu árin og það er
skylda okkar að greina þjóðinni
rétt frá því hvað verður um
íslenskan landbúnað og
bændastétt ef við göngum í
Evrópusambandið. Málið snertir
einnig iðnaðar- og verkafólk í
borg og bæ,“ sagði Guðni
Ágústsson.