Bændablaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 19
18 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 12. desember 2000 Þriðjudagur 12. desember 2000 BÆNDABLAÐIÐ 19 Hlynur Snær Theodórsson bóndi á Voðmúlastöðum , Kaupir þriðjunginn í nýju tegundunum r Líst vel á fjölkorna áburöinn frá Aburðarverksmiðjunni Hlynur Snær Theodórsson, bóndi á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum, hefur þegar gengið frá kaupum á um 40 tonnum af áburði frá Áburðarverksmiöjunni í Gufunesi. í ár ætlar hann að reyna nýju fjölkorna áburðartegundirnar, Fjölgræði og Fjölmóða, sem nýkomnar eru á markaðinn. Af þeim 40 tonnum af áburði, sem hann kaupir, er upp undir þriðjungur af nýju tegundunum. „Mér líst afar vel á þennan valkost og vænti góðrar uppskeru næsta sumar," segir Hlynur Snær. Bóndinn á Voðmúlastööum er ungur að aldri, aðeins þrltugur, en hann tók við buinu fyrir fimm árum. Hlynur Snær rekur þar myndarbú ásamt konu sinni, Guölaugu Björk Guölaugsdóttur, og börnum þeirra, Valtý Frey 8 ára, Brynju Sif, 6 ára og Sæbjörgu Evu, sem er á ööru aldursári. Afsláttur og hagræði „í landbúnaði tekur maður ekki áhættu með því að sulla einhverjum útlenskum efnasamsetningum á túnin. Þó þau gagnist einhvers staöar í Evrópu er ekki sjálfgefið að þau gagnist sem áburður við íslenskar aðstæður," segir Hlynur Snær. „Meö því að kaupa áburöinn núna er ég að ná mér í verulegan afslátt. Yfirleitt er maður aö kaupa áburöinn í mars og fær hann ekki fyrr en í lok apríl eða byrjun maí. Nú get ég tekið áburöinn til mín fyrr og er þvi klár í slaginn i vor. Ef vorar vel þá getur það skipt sköpum að hafa áburðinn viö hendina og geta byrjaö snemma." Árangur með íslenskum áburði Hlynur Snær segir afar mikilvægt fyrir bændur aö vita hvers konar áburð þeir hafi. Hann segir íslenska áburöinn frá Áburöarverksmiðjunni hafa hentaö sér vel enda hafi hann veriö þróaður í góðu samstarfi við bændur og ráðunauta. Hlynur Snær talar af reynslu i þessu sambandi. Meö góðum aöbúnaöi og næringarriku heyi hefur honum tekist að framleiða mjólk upp i 135 þúsund lítra framleiðslukvóta með aöeins 23 kúm. Er það með því besta sem gerist i íslenskum mjólkurbúskap. „Til að ná góðum afuröum er mikilvægt aö kýrnar séu við góöa heilsu, að túnin séu góö og heyiö sé kjarngott. Eg er ekki í neinum vafa um að íslenski áburðurinn sé þar stór þáttur. I kúabúskap er heyiö aðalmálið." Hlynur Snær segir að i nútímabúskap ríði á að fýlgjast vel með heygæðum með rannsóknum og skýrsluhaldi. Árlega sendir hann heysýni í rannsókn til aö kanna efna- og næringarinnihald þess og á fimm ára fresti tekur hann jarðvegssýni. Á grundvelli þessa ákvaröar hann síöan áburðar- þörfina. Aðeins 2% raunhækkun á veröskrá Áburðarverksmiöjunnar til áramóta Áburðartegund Einkorna áburður Tonnaverð í 600 kg sekk án vsk. Meö 3% Meö 5% Meö geymslu- og geymsluafsl. verksmiöjuafsl. verksmiöjuafsl. Áburðarkalk 30% Ca 14.496 14.061 13.771 13.358 Kjarni 33%N 20.782 20.159 19.743 19.151 Magni 1 26%N 19.767 19.174 18.779 18.215 Magni 2 20% N 17.836 17.301 16.944 16.436 Móði 1 26-14 23.334 22.634 22.167 21.502 Móði 3 26-7 22.101 21.438 20.996 20.366 Græöir 1b 12-14,6-17 26.139 25.355 24.832 24.087 Græöir 1a 12-19-19 26.788 25.984 25.449 24.685 Græöir 3 20-14-14 23.782 23.069 22.593 21.915 Græöir 4 23-6-6 21.409 20.767 20.339 19.728 Græðir 5 15-15-15 23.963 23.244 22.765 22.082 Græðir 6 20-10-10 22.363 21.692 21.245 20.608 Græöir 7 20-12-8 22.688 22.007 21.554 20.907 Græðir 8 18-9-14 22.191 21.525 21.081 20.449 Græðir 9 24-9-8 22.518 21.842 21.392 20.750 Græðir 7a 20-10-8 22.809 22.125 21.669 21.018 Monoammoníumfosfat 11-52 26.860 26.054 25.517 24.751 Fjölkorna áburður Fjölmóði 1 26-14 18.667 18.107 17.734 17.202 Fjölgræðir 6 20-10-10 17.890 17.354 16.996 16.486 Fjölgræðir 7 20-12-8 18.150 17.606 17.243 16.726 Fjölgræðir 9 24-9-8 18.014 17.474 17.114 16.600 Hagstætt verð til áramóta! Vegna hækkunar á erlendu hráefni mun Áburðarverksmiðjan einungis gefa út verð til skamms tíma í senn í stað einnar verðskrár með staðfestingarafslætti eins og í fyrra. í fyrstu verðskrá, sem gildir meðan fyrirliggjandi hráefnisbirgöir endast, er verðhækkunin um 7% sem aðallega stafar af hækkunum innanlands. Að teknu tilliti til 5% verðbólgu er raunhækkun aöeins um 2°/o. Frá þessari verðskrá er svo hægt aö fá 3°/o geymslu- afslátt og 5% verksmiðjuafslátt eins og í fyrra. í janúar verður birt ný verðskrá. Þá má búast við töluverðri hækkun vegna aukins hráefniskostnaðar og raunar eru horfur á aö verðskrá fari hækkandi af þessum sökum fram á vor. Það eru því hyggindi sem í hag koma að panta áburð sem fyrst. V erð á innflutt- um áburði hækkar um 20% OU Rúmr Ástbónatm. . . . . ___. _ ™ ««uuasr laaTaldar rmJoð ^Khallar líkur á að ínnOoUíir tnáli miVíi ifLri? einmg hækki am ajnk. á ver*oIíil Hins ^UirL iUgtngteraðáburðarve-ð Úr á ^aiidœ hafi hækkað á dmTiimn “T* M og sér hefÆ lertt tií ^ ** ^ tœiðam iStaSTr 0ahunboðhefÆver- *■“«*•* ^ á áburði i fyrra. JZ vjj*™ niálfgBfið að hækfcmr eriendÍH leiddu " i frétt Morgunblaðsins 29. október síðastliðinn segir að allar líkur séu á að innfluttur áburöur hækki um a.m.k. 20% á næsta ári. Nýtt! Kynningarverð á nýrri framleiöslu Fjölkorna áburður Áburðarverksmiðjan kynnir að þessu sinni nýja framleiösluvöru til viðbótar viö hefðbundnar einkorna áburðartegundir eins og Græði og Móða. Um eins árs skeið hefur verið unnið að þróun fjölkorna áburðar sem verður seldur undir vöruheitunum Fjölgræðir og Fjölmóði. Fjölgræðirer með sambærilegu efnainnihaldi, uppleysanleika og kornastærð og Græðir. Fjölmóði er sambærilegur við Móða í efnaeiginleikum. Með nýju framleiðslunni býður Áburðar-verksmiðjan bændum fleiri valkosti. Nýju áburðartegundirnar eru boðnar í takmörkuðu magni og til að byrja með aðeins í fjórum tegundum. Kynningarverð er 20% lægra en verð á einkorna áburöi verksmiðjunnar. Hreinn og vistvænn áburður fyrir íslenskan landbúnað Áburðarverksmiðjan hf. Gufunesi -128 Reykjavík - www.aburdur.is Sími 580 3232 - Fax 580 3209 - Farsœl þjónusta við bœndur í 45 ár.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.