Bændablaðið - 01.01.1988, Síða 5
BÆNDA
BLAÐIÐ
/ grein sinni reynir A ndrés að gertf lítið úr málflutningiþeirra Stefáns Sigfússonar hjá Landgrœðslunni, Ólafs Dýrmundssonar
landnýtingarráðunauts og Bjarna Helgasonar jarðvegsfrœðings í Grafningsmálinu. Ennfremur hefur beitarþolssérfrœðingur-
inn uppi dylgjur um að viðtölin séu rangt eftir höfð, sem ekki er nokkur fótur fyrir.
sumar var vitnað í skýrslu beitar-
þolssérfræðings Landgræðslunnar
um Grafninginn en Andrés Arnalds
er skráður aðalheimildarmaður
fréttamanns. í samtali við mig stað-
festi Andrés að umrædd skýrsla
hafi aldrei verið skrifuð og í 1 grein
nú segir hann að það hafi ,£nnþá“
ekki verið gert. Mér er forvitni á að
vita hvort það standi yfirleitt til?
Þegar ég spurði í viðtalinu forðum
um þessa skýrslu afhenti umrædd-
ur Andrés mér eigin samantekt
undir heitinu „Kommentar um
Grafninginn“. Umrætt blað er birt
hér á síðunni.
Þrátt fyrir að skýrslan sé engin til
segir Andrés nú að þekkingin á
Grafningi sé yfrið nóg og tíundar
heimildir. Sú fyrsta er ágætis grein
eftir skógarvörð á Vesturlandi sem
birtist í Morgunblaðinu fyrir nærri
20 árum. Af lestri þeirrar greinar
get ég ekki séð að þar sé kominn
grunnur undir allt það sem segir í
punktunum um Grafninginn sem
ég birti hér á síðunni. Auk þess er
grein þessi fyrst og fremst skoðanir
eins manns frekar en afrakstur
beinna rannsókna.
Aðrar heimildir eru skýslur
RALA sem sumar hafa ekki verið
birtar en aðrar fjalla um mjög af-
mörkuð svæði sveitarinnar. Andrés
vitnar í Nesjavallaskýrsluna á þann
hátt að með eindæmum er:
„Ástæður eyðingarinnar má lesa
í Nesjavallaskýrslunni: „Jarðvegur-
inn er oftast laus í sér og auðrofinn,
og því er traust gróðurhula nauð-
synleg til að vernda jarðveginn fyrir
vatni og vindum.“ Mikið beitarálag
rýfur þennan skjöld."
í tilvitnaða textanum segir ekkert
um ástæður eyðingarinnar eins og
Andrés gefur sér ranglega en til að
bæta úr því þá bætir hann þeirri
setningu við að það sé beitarálagið,
— sem hann náttúrlega veit að er
mjög mikið án þess að þurfa að
benda á neina heimild því til stuðn-
ings! Ef sú heimild væri til kæmi
væntanlega fram að beitarálag í
Grafningsafrétti hefur stórlega
minnkað á seinustu áratugum með
því að sauðfjárbúskapur er að
mestu aflagður í Ölfusi. En það er
önnur saga. Það er ekki að sjá af
þeim heimildum sem Andrés vitnar
í að þær styðji fullyrðingar hans í
hinu einstaka plaggi, „Kommentar
um Grafninginn".
Allt umdeilt
og sumt ósatt
í stuttu máli er staðan þessi: Þær
skoðanir sem Andrés og fleiri hafa
á Grafningnum eru mjög umdeild-
ar meðal manna sem hafa jafn-
sterkan fræðilegan og praktískan
grunn að byggja á. Á liðnu sumri
var því komið inn hjá fréttamönn-
um velflestra fjölmiðla að ofbeit í
Grafningi væri næsta óumdeilt atr-
iði og ástandið einna verst hjá
bóndanum á Villingavatni. Auk
þess að til væru nýjar skýrslur sem
sýndu þetta og sönnuðu að skjótra
úrbóta væri þörf. Allt þetta er mjög
umdeilt og sumt ósatt. Ástæðan
fyrir þessu upphlaupi var alls
óskyld sumarbústaðaþræta.
Bændablaðið birti m.a. viðtöl við
menn sem voru ósáttir við þessa
einhliða mynd sem fjölmiðlar
höfðu verið fengnir til að draga
upp. Til þess að verja eigin hendur
grípur aðalheimildarmaður fjöl-
miðlanna, Andrés Arnalds til þess
að segja að ég hafi logið þessum
viðtölum upp eða fært þau í stílinn.
Það rétta er að allir viðmælendur
blaðsins lásu viðtölin yfir og af
samtölum við þá seinna meir veit ég
að þeir eru sáttir við efnismeðferð-
ina. Dylgjur um annað er tilhæfu-
laus atvinnurógur.
Sjálfur hef ég ekki sett fram nein-
ar skoðanir um Grafninginn og
flest það sem mér eða blaðinu er
eignað í margnefndri grein Andrés-
ar eru tilvitnanir í viðtöl. Ég — eða
blaðið — svara ekki fyrir skoðanir
viðmælenda. Það er bara ekki okk-
ar hlutverk. Það er heldur ekki mitt
hlutverk að hafa skoðun á því hvort
einstakir skikar eru ofbeittir. Til
„SKÝRSLAN“
Þessa samantekt lét Andrés Arnalds fréttamönnum á Sjónvarp-
inu, Morgunblaðinu og ef til vill víðar, í té á liðnu sumri. Fótur
fyrir því sem þarna segir virðist vandfundinn og vísindamaðurinn
hefur ekki séð ástæðu til að taka fram að beitarálag í Grafningi
fari minnkandi, — eins og hann þó kannast við i skrifi sínu í
Bændablaðinu. Annars talar skýrslan best sínu máli. Hún er birt
hér orðrétt, stafrétt og frá upphafi til enda!
KOMMENTAR VEGNA GRAFNINGS
— 19/5 1987
l. Grat'ningurinn er þvi miður eitt af fjölmörgunt dæmum um tandbúnaðarupp-
byggingu sem ekkert tillit hefur tekið til landkosta.
2. Gróður og jarðvegur á þessu svteði er ákaflega viðkvæmur. Jarðvegurinn hefur
litla bindiciginlcika og hætta á jarðvegseyðingu cr mikil ef gróðurhulan rofnar t.d.
vegna of mikillar beitar.
3. í Grafningshreppi hefur um langa hrið verið allt of margt fé miðað við landkosti.
Beitartimi fjárins hefur einnig verið lengri en tiðkast viða annarsstaðar, sem hefur
aukið enn á álag á gróðurinn.
4. Aflciðingin er hraðfara gróður- og jarðvegseyðing scm er einhver sú alvarlcgasla á
landinu. Meginhluti Grafiningsins er flakandi í jarövegssárum og viö blasir ótölu-
lcgur fjðldi ntolda og rofabarða. Það cr rétt eins og landið æpi á mann: „Gefið
gróðrinum grið".
5. Rannsóknastofnun landbúnaðarins hefur l'ramkvæmt mælingar á ástandi gróöurs
og jarðvegs sem staðfestir það hve Mælingarnar alvarlcg jarðvegseyðingin er i
mcginhluta Grafningsins. Niðurstöðurnar, sem Itafa ckki verið birtar enn, benda til
þess að skjótra aðgerða sé þörf til úrbóla. Þarna eru bændur að láta sauðfcð éta
upp höfuðstólinn i bókstaflegri merkingu og eyða þeim arli sem ætlaður cr kom-
andi kynslóðum.
6. Það sem er að eyðast er að mestu jarðvcgur sent hcfur verið að myndast siðustu
10.000 árin og eftir stendur nakin jökulurðin . Með jarðveginum hverfa lífræn cfni,
uppsafnaður næringarforði og fræ til að mynda nýjar plöntur.
7. Jarðvcgur á örloka landi cr um margt einslakur ef miðað er við önnur lönd.
Hann cr með fádæmum ól'rjór og áratugi eða öllu frekar aldir geta liðið áður cn
sambærileg landgæði og þau scm eru að eyðasl hal'a náð aö myndast á ný.
8. Grafningurinn er þvi miður ekki cinsdæmi og það cr áriðandi að landbúnaðurinn
sé lagaður bctur að landkoslum. Það virðist t. d. ckki skynsamlegt að halda uppi
ntikilli sauðfjárframleiðslu á svæðum þar sem mikil gróðurcyðing á sér stað á santa
tima og byggðir standa tæpt á svæðunt sem þola beitina beiur. LÍÚ brást á ábyrg-
ann Itátt við svörtum skýrslum um ástand fiskislofna, og nú þarf bændastéllin að
taka á á santa Itátt vcgna þeirrar auðlindar sem gróður landsins er. Taka verður rikt
tillit til ástands gróðurs og jarövegs og hættu á eyðingu vegna vcikrar jarðvegsgerðar
við þá fækkun sem verða kann á sauðfé á næstu árum.
þess skortir mig fræðilegan grunn.
En þegar maður kemur með grein í
blaðið og segir við mig (í votta við-
urvist) að hann hafi tekið þá stefnu
að snúa málinu frekar upp á mig en
kollega sina í gróðurfræðunum af
því að það sé þægilegra fyrir hann
sjálfan þá set ég fram þá persónu-
legu skoðun að greinarhöfundur sé
óvandur að meðölum.
í lokin vil ég svara þeirri fullyrð-
ingu Andrésar að hann sé í blaði
okkar borinn sökum sem jaðri við
atvinnuróg. Ég held að þetta megi
til sanns vegar færa — en þessar
sakir birtast allar og aðeins svo
óyggjandi sé í viðtalinu við hann
sjálfan og eins og við Andrés vitum
báðir þá endurskrifaði hann viðtal-
ið upp í eigin tölvu og telst því höf-
undur þess til jafns við undirritað-
an.
Bjarni Harðarson
ritstjóri Bændablaðsins
Noröfjöröur:
KÆRA ÚTHLUTUN
FULLVIRÐISRÉTTAR
Harðar deilur hafa risið upp í
Norðfirði vegna úthlutunar á full-
virðisrétti í injólk sem Búnaðar-
samband Austurland hefur haft til
uinráða og hafa þrír bændur í sveit-
inni sent inn kæru vegna þessa máls
sem nú er í hönduni Landbúnaðar-
ráðuneytisins. Þá hefur Búnaðar-
samband Austurlands vísað frá sér
Landsbanki og
þingmenn....
Það er margt skrafað um áhrif -
landsbyggðarinnar í landsstjórn-
uninni. Nokkrum sinnum hefur
löggjafarvaldið stuðlað að jöfnun
atkvæðisréttar miðað við höfða-
tölu en um leið í hvert skipti rýrt
pólitíska stöðu fámennari byggð-
arlaga sem tapa fleiri og fleiri á
mölina. Fyrir löngu var það við
svona uppákomu að Dalamenn -
höfðu miklar áhyggjur af sinni
stöðuy að þeir myndu nú missa
þingmann sinn, sem og varð. En
kaupfélagsstjóri Saurbæinga sem
þá var, Einar Guðbjartsson, sagði
þeim að taka þessu létt. Næst
skyldu þeir bara lofa að Iáta allan
sinn atkvæðisrétt af hendi til
Reykvíkinga bara út á það að ein
stofnun í borginni, Landsbankinn,
flytti höfuðstöðvar sínar í Dali...
úthlutun á fullvirðisrétti fyrir þetta
ár, vegna þessa máls og kemur hún
því í hlut Framleiðsluráðs. En þar
bíða menn eftir afgreiðslu á kær-
unni frá ráðuneytinu.
Samkvæmt heimildum Bænda-
blaðsins er kæra þremenninganna í
Norðfirði þessefnis að við úthlutun
á því magni sem BA hafði til um-
ráða 1985 og síðar hafi þeir fengið
mest í sinn hlut sem mestan full-
virðisrétt höfðu fyrir og gengið hafi
verið gróflega framhjá öðrum
bændum sveitarinnar. Einkum eiga
það að vera tvö bú í Norðfirði sem
fengið hafa meira í sinn hlut. Mál
þetta hefur orsakað mjög harðar
deilur í sveitinni og samkvæmt
heimildum blaðsins innan Fram-
leiðsluráðs er það litið mjög alvar-
legum augum á þeim bæ.
Óstaðfestar heimildir herma að í
væntanlegri afgreiðslu ráðuneytis-
ins standi til að taka að minnsta
kosti hluta af kröfu þremenning-
anna sem kæra, til greina. Þeir hafa
farið fram á að allar gjörðir Bún-
aðarsambands Austurlands í út-
hlutun á fullvirðisrétti mjólkur
verði gerðar ógildar.
Deilur vegna úthlutun heima I
héraði hafa komið upp á nokkrum
stöðum þó kærumál hafi verið fá.
Framleiðsluráð hefur haft nokkur
afskipti af úthlutun í Vestur Barða-
strandasýslu og borist óánægju-
raddir víðar að.
Bændur — Varaafl
Athugið að um siöustu áramót
féllu niður 35% tollur og 24%
vörugjald.
RAFALAfí DRÁ TTARVÉLARAFALAR
NORBURlJÓShf.
RAFVERKTAKAR
FURUVÖLLUM 13-600 AKUREYRI
SÍMAR (96)25400 & 25401
Alhliða rnfverk og
rekstur verslunar
Önnumst m.a. húsarafmagn,
skiparafmagn, bílarafmagn, töflusmíði
og hönnun byggingastaðatafla.
■ BÍLARAFMAGN ■ HÚSARAFMAGN ■ SKIPARAFMAGN