Bændablaðið - 01.01.1988, Page 10
"Baldvin & fiorvaldur
söðlasmíðaverksiœði
AUSTURVEGI 21
800 SELFOSSI
SÍMI 99-1900
Framleiðum alls konar
reiðtygi úr leðri. Einnig
höfum við úrval af hesta-
vörum, þar á meðal reið-
buxur, stígvél, peysur
úlpur og margt fleira.
Nýkomið er Biótin bæti-
efni fyrir hross sem hafa
slæma hófa.
TÖKUM í VIÐGERÐIR
PÓSTSENDUM
Réttur
til bóta : :
Tryggingastofnunar ríkisins.
Hver er hann?
Svarið er að finna í
bæklingum okkar. Bíðjið um þá,
1 1'
ImH , —
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Blaðadeilur um lifeyrls-
sjóðl
Helgarpóstuinn og Upplýsinga-
þjónusta landbúnaðarins heyja nú
með sér sérkennilega ritdeilu sem
hófst með því að HP „fletti ofan
af“ Lífeyrissjóði bænda sem einni
spillustu stofnun landsins. Einn
alvarlegasti þátturinn í lífeyrismál-
um þessarar stéttar er að iðgjöld eru
rukkuð í gegnum vöruverðr dregið
af launalið bóndans við endanlega
ákvörðun verðs. Þetta telur HP að
þýði að margrómaðir „neytendur"
borgi fyrir bændur. Það væri for-
vitnilegt að vita hvaða iðgjöld neyt-
endur greiða ekki, samkvæmt þess-
um fræðum, því væntanlega hefur
það alltaf áhrif á verð vöru eða
þjónustu hvað fólk í viðkomandi
stétt þarf sér til viðurværis. Annars
snúast skrif HP um fleira og eftir að
Ólafur H. Torfason hjá UL svaraði
skrifunum reis blaðamaðurinn upp
að nýju og það stefnir allt í hörku-
rifrildi
Símar í ólestri
Símamál á Iandsbyggðinni eru
víða í slæmu gengi og sumsstaðar
svo að litlu skiptir hvaða númer er
valið þegar hringt err það hringir
bara einhversstaðar. Ferðaþjónusta
bænda hefur látið þetta málr eins
og fleiri hagsmunamál, sig nokkru
varða og hafa yfirmenn hjá Pósti og
síma beðið ferðabændurnar að
taka niður hvar og hvenær helst er
ólíðandi álag þannig að þeir hafi
eitthvað í höndunum þegar kemur
að úrbótum.
Bændaskógrækt ekki í
fjárlög!
Ekki tókst að koma skógræktar-
áætlun Biskupstungnamanna á
blað í fjárlögum. Bændur á níu
bæjum sem allir eiga land við þjóð-
veginn milli Laugaráss og Reyk-
holts hafa ákveðið að leggja 420
hektara undir ræktun nytjaskógar,
en kostnaður við ræktunina mun
nema 25 til 27 milljónum króna.
Bændur höfðu fyrr í vetur gengið
frá málinu af sinni hálfu og Skóg-
rækt ríkisins unnið ræktunaráætl-
un fyrir verkið. Það sem á skorti var
ekki annað en að stjórnvöld stæðu
við fögur fyrirheit um stuðning við
ræktun nytjaskóga. Mikill áhugi er
fyrir málinu í landbúnaðarráðu-
neyti og hjá Skógræktinni og ekki
þykir spilla fyrir að land þetta er
stutt frá Mosfelli í Grímsnesi þar
sem Skógræktin er að fara út í stór-
framkvæmdir og þegar búið að
herfa upp flög sem á að planta í
næsta sumar.
Borgin eignlst Skálholt
önnur tíðindi úr Tungunum eru
þau að einn framámanna í sveitinni
hefur stungið uppá að Skálholts-
staður verði færður Reykjavikur-
borg að gjöf til ráðstefnuhalds og
annarra nota, líkt og gert var með
Viðey. Þetta gerði Þorfinnur Þórar-
insson bóndi á Spóastöðum og
varaoddviti hreppsnefndar í grein í
innansveitarblaðinu Litla Bergþóri.
í sömu grein drepur Þorfinnur á að
ástand helstu sögustaða, Skálholts,
Gullfoss og Geysis, sé um margt
miklu lakara en skyldi og ástæðan
kannski sú að heimamenn hafa lítið
með stjórnun þeirra að gera og þar
til bærar stofnanir fyrir sunnan
áhugalitlar um framfarir. Það er
ekki gott að átta sig á hvort alvara
liggur á bakvið hugmyndina um að
borgin eignist Skálholtr en líkast ti)
er hér verið að skjóta á núverandi
eiganda, kirkjuna fyrir aðgerða-
leysi á hinum forna höfuðstað. Fátt
hefur mátt gera til að prýða staðinn
seinni ár, fornleifarannsóknir geng-
ið hægt eða ekkert, skólasagan öll
hin hörmulegasta og mörgum
heimamönnum þótti súrt í broti
þegar Skógræktinni var synjað um
land i Skálholti. Af Skálholtsskóla
gekk sú saga um hátiðar að honum
yrði lokað nú fljótlega uppúr ára-
mótum, vegna þess að engir nem-
endur eru eftir. Þeim hefur farið ört
fækkandi og oft verið innan við 10
á staðnum nú seinustu ár, kennarar
næstum jafn margir og rekstur
allur brösuglegur og dýr samkvæmt
heimildum Bændablaðsins...
Flytja það allt í burt...
Að friða allt vatnasvið Þing-
vallavatns er ein þeirra hugmynda
sem hefur skotið upp kollinum
öðru hvoru. Bændur við vatnið
eru ekki mjög spenntir fyrir hug-
myndinni og einn þeirra hefur
leyft sér að setja fram róttæka
athugasemd: „Ef það á að friða,
fyrir hverju á þá á að friða. Er
það ekki frá mannfólkinu sem all-
ur andskotans ófriður kemur.
Bara flytja það allt í burtu. Já og
hvert. Bara aftur til Noregs og ír-
lands og láta ekki nokkurn mann
sjá þetta svo allt sé nú í ævarandi
friði hér uppi á hjara veraldar...“
Bændur!
. •
Nú er hægt að gera
GÓÐ KAUP Á GRASKÖGGLUM
Hafið samband — við erum til
viðræðu um greiðslukjör ef tekin