Bændablaðið - 01.09.1990, Side 3
Gód rád eru til ai
fara eftir þeim!
Eftireinn
-ei aki neinn
UMFEROAR
RAÐ
GOODYEAR
TRAKTORSDEKKsSíös'
gera kraftaverk
Til kraftaverka sem þessa þarf gott
jarðsamband.
Það næst með Goodyear hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hljólbarða auðveldar
alla jarðvinnu.
Hatið samband við umboðsmenn okkar.
GOODfYEAR
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
BÆNDABLAÐIÐ &
LANDSBYGGÐIN
Utgefandi:
Ritstjóri og ábm.:
Blaðamenn:
Prófarkir:
Póstfang:
Sími:
Auglýsingar:
Sími auglýsinga:
Setning og umbrot:
Prentun:
Félagið Bændasynir hf.
Bjarni Harðarson.
Þórður Ingimarsson/
Sigurður Bogi Sævarss.ofl.
Inga Lára Baldvinsdóttir.
Einarshöfn 820 Eyrarbakka.
98-31376.
Örn Bjarnason.
91-17593.
Bændasynir hf.
Dagsprent, Akureyri.
8. TBL. 4. ÁRG. SEPTEMBER 1990
Hyndin sú arna þarf væntanlega engra skýringa vifi nú á haustdögum þegar íslenskir sauðfjárbændur
fara á fákum sínum til fjalla, f fjallferS eða göngur eftir því hvar f sveit þeir búa. Heim komnir
setjast sumir undir réttarvegg meft Svarta-dauöaflösku og láta sig dreyma... Mynd þessa og þá sem
prýöir forsíðu blaðsins gerði teiknari blaðsins, Torfi Harðarson.
FREKAR KANADA
Lokaþáttur álversfarsans stendur nú yfir og því er
haldið fram að valið standi nú milli Kanada og Keilis-
ness, sem er miðja vegu milli Keflavíkur og Hafnar-
fjarðar. Sé svo er líklegast mun hagkvæmara fyrir
íslendinga að því verði valinn staður í Kanada. Þetta
er ekki sagt vegna óvildar gagnvart Suðurnesja-
mönnum eða Hafnfirðingum heldur vegna þess að
stórfelld þensla í atvinnulífi á Suðvesturhorninu nú
mun að líkindum verða efnahag þessa lands til meira
ógagns en ábata. Álver á þessum stað mun stórauka
fólksflóttann af landsbyggðinni á suðvesturhornið og
er hann þó nægur fyrir.
Við fólksflóttann á Suðvesturhornið glatast verð-
mæti sem einstaklingar og ríki hafa byggt upp á
undanförnum áratugum út um allt land. Og í stað
þessa sem glatast þarf að byggja upp nýtt á Suð-
vesturhorninu. Við atgervisflótta úr byggðum glatast
einnig menning héraða, lífsþróttur þeirra og ágæti.
Höfuðborgarsvæðið er þegar orðið það stórt að 50
þúsund manna byggð þar til viðbótar bætir í fáu eða
engu úr menningu eða reisn þess staðar. En með
auknu fjölmenni er aftur á móti hætt við að skugga-
hliðar mannlífsins í borginni verði dekkri, vandamálin
meiri og slysin fleiri. Þjóðflutningar og eyðing heilla
héraða orsakar einnig rótleysi þeirra sem fyrir verða
og vantrú einstaklinga á mátt sinn og megin.
Sumir landar okkar álíta að það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær þessir miklu fólksflutningar muni
eiga sér stað,- fyrr eða síðar muni nær allt mannlíf
þjappast saman í Landnám Ingólfs og nánasta ná-
grenni. Ef því er trúað má einu skipta hvort flóttinn
verður núna strax eða eftir fáein ár.
Allar staðreyndir benda aftur á móti til að verðmæti
okkar lands séu svo mikil að innan fárra ára verði
leikur einn að byggja það allt, hvern fjörö og hvert
annes. Umhverfiskreppa vofir yfir heiminum og mögu-
leikar jarðarinnar til að brauðfæða allt mannkyn fara
þverrandi. Því er mikilvægt að halda íslandi öllu í
byggð, þannig að við getum, þegar sá tími kemur nýtt
allt okkar gjöfula land til fæðuframleiðslu fyrir okkur
og aðrar þjóðir heimsins á sem hagkvæmastan máta.
Eyðing byggða er
sársaukafull og það
verður dýrt að byggja
sveitir upp að nýju ef
að þær eyðast nú
vegna skammsým
ráðamanna og
ójöfnuðar milli lands-
hluta.
-b.
BÆNDABLAÐIÐ &
LANDSBYGGÐIN
NÝR PIPARKÖKUSÖNGUR
Þegar þjóéarsáttir semjast
sáttargerðarmaður tekur
fyrst af öllu lægstu launin
og Ijóta svarta þjóðhagsspá.
Laekkar kaupið ennþá meira.
Lætur síðan alla heyra
að hann telji eigin loforð
ofboðslega kjarabót.
Þegar öllu þessu er lokið
hellast ótal útreiknaðar
ambögur með greinargerðum
oní blaða- og fréttamenn.
Síðan ber að eyða öllum
illum grun með talnarugli.
Svo skal ræða tungum tveimur
um tæpa stöðu þjóðarbús.
Þessi ágæti söngur þarf engra skýringa við en höfundurinn er
Atli Harðarson framhaldsskólakennari á Akranesi. Sjá
ennfremur vfsur sem tengjast pólitík samtímans í vísnaþætti
Ólafs Hannibalssonar inni í blaðinu.