Bændablaðið - 01.03.1992, Side 10
VÉLAR OG ÞJÓNUSTA
2. TBL. 6. ARG. MARS 1992
Viðtal við B.L.J Buckley sölustióra hiá Bonar Polythene Films í Bretlandi:
GÆÐAFÓÐUR
KREFST GÆÐAFILMU
Blaðið hitti sölustjóra Bonar þegar hann var á ferð
hér nú nýlega. Einnig var hann á ráðstefnu um
rúlluverkun, sem haldin var hérlendis s.l. haust, en
Bonar í Bretlandi hefur verið leiðandi í filmutækni
og rúlluverkun fóðurs á undanförnum árum.
Ég heyri að þú hefur komiö oft
til íslands?
Já, ég hef komið hingað alloft
á undanförnum 4 árum og haft
mikla ánægju af að kynnast starfi
þeirra á Hvanneyri svo og bænd-
um, fyrir utan aö sjá ykkar fallega
land.
Gaman er að sjá hve rúllu-
pökkun er vinsæl hér en f miðju
Bretlandi þar sem ég bý er rúllu-
pökkun hvað mest í heiminum,
þótt þiö náiö hærri hlutfallstölu,
því mér skilst að um helmingur
heyfóöurs hér sé f rúllum nú. Það
undirstrikar framfarasókn ís-
lenskra bænda að hafa áttaö sig á
kostum aðferðarinnar svo fljótt.
öll rök hníga aö þvf aö rúllu-
verkun og pökkun er bæði fljót-
legri - gefur meiri fóðurgæöi og
lægri tilkostnað en aörar aðferðir.
Það nýjasta f þessu er aö menn
fara í stórbagga með risabindi-
vélum sem eru enn fljótlegri og
lægri í tilkostnaði, sé um stór-
búskap að ræða.
í hverju felast tæknitök ykkar á
filmunni?
Við vorum frumherjar í aö
framleiða svokallaöa þriggja laga
filmu - polyethelene blásin þriggja
laga filma gcfur betri eiginleika og
jafnari styrk og viðloöun til þess
að tryggja hámarks þéttleika.
Þarf bóndinn ekki að gera fleiri
kröfur?
Jú, meöan á pökkuninni
stendur þarf hann að athuga
eftirfarandi:
1. Filman verður aö
strekkjast jafnt.
2. Hún veröur aö þola vel
strekkingu og slitna ekki.
3. Ilún rekist vel af rúllunni
og loði ekki við
strekkibúnaöinn.
4. Strekking sé jöfn og
hæflleg (50-70%) en oftogni
ekki eða veröi laus á
bagganum.
5. Sjálftengibúnaöur
pökkunarvéla haldi henni
vel.
Einnig ættu bændur að at-
huga aö eftir pökkun þarf ftlman
aö standast kröfur um; 1) Aö hún
dragist saman eftir pökkun til að
þétta. 2) Hafi stöðugleika fyrir
útfjólubláum geislum sólarinnar.
3) Styrkleika til að þola högg og
álag sem rúllan verður fyrir.
4) Límist vel svo hún loki þétt.
Við pökkun ættu bændur aö
athuga sérstaklega að ftlman
leggist rétt á baggann, þ.e. ytra
borö hennar leggist að heyinu og
vefjist yfir miðju baggans.
Hvernig fylgist þiö með fllmu-
gæöum?
í verksmiðjum okkar er sér-
stök gæðaeftirlitsdeild með há-
tæknibúnaöi. Þannig getum viö
þróað framleiðsluna, auk þess
sem viö erum með sffellt eftirlit
með sýnishornatöku sem við
sendum út til verktaka í rúllu-
pökkun sem pakkar um 28000
rúllum á ári og er í gangi stóran
hluta ársins. Þannig fáum við
samanburð á þvf sem gerist hjá
bændum og f rannsóknarstofunni.
Þannig fylgist gæðadeildin með
framleiðslunni. Þeim sem þekkja
hámarks gæðakröfur þykir vænt
um aö heyra að við fylgjum
gæðatryggingu eftir stöölum BS
5750 og ISO 9002.
Er eitthvað sem kemur þér
spánskt fyrir sjónir hérlendis?
Já, þaö væri þá kannski helst
að á Spáni nota þeir nær ein-
göngu svarta filmu. Það er ekkert
á móti Ijósu fílmunni, en frá 1986
notum viö nær eingöngu svarta
ftlmu f Bretlandi og kýrnar eru
hraustar og mjólka vcl. Ég er
sannfærður um að svört filma
bæti árangur og auki gæöi pökk-
unar viö veðurskilyrði og lofthita
um daginn og sátu hátt f rútunni
sáu ekkert nema svartar rúllur -
sem varð til þess aö margir ætla
aö prófa svarta ftlmu næsta sum-
ar. Hröö þróun í rúllupökkun hér
á landi sannar eins og f Bretlandi
þann góða árangur sem náöst
hér á landi. Aukin varmataka
svörtu filmunnar vinnur meö lím-
ingunni í aö gefa betri lokun.
Þannig mundu menn sjá aö svarta
filman heldur enn bctur saman
eftir veörun. Einnig er vert að
geta þcss að svarta filman er 5%
ódýrari. Norskir bændur sem
voru á ferö hjá okkur f Bretlandi
hefur f fóöurgæöum, hagræöingu
og sparnaði, og við hjá Bonar
vinnum að stöðugri framþróun f
samvinnu við bændur um rúllu-
pökkun.
f lokin viljum við geta þess
aö viðtal þetta var tekiö viö
sölufulltrúann þegar hann var
hér nýlega f heimsókn og stóð í
samningum við Vélar & þjónustu
um aö gerast söluaöili á íslandi
fyrir þetta magnnða fílmufyrir-
tæki.
MJÓLKURKVÓTA-
JARÐIRNAR DÝRASTAR
- "en gjörbreyting hefur orðið á eftirspurn
eftir að framleiðslustjórnun var tekin upp í landbúnaði,"
segir Magnús Leópoldsson, fasteignasali í Reykjavík og fyrrum bóndi,
en hann hefur sérhæft sig í sölu jarðeigna og húsa í dreifbýli
Með framleiðslustýringunni í landbúnaöi og sam-
drætti, bæði í mjólkurframleiðslu og sérstaklega
sauðfjárrækt hafa orði verulegar breytingar á við-
skiptum með jarðir í sveitum landsins. Færri jarðir
seljast nú til heföbundins búskapar þótt alltaf sé
ákveðin eftirspurn eftir jörðum með góðan fullviröis-
rétt, einkum til framleiðslu mjólkur. En á sama tíma
hefur önnur tegund eftirspurnar orðið til. Þéttbýiis-
búar sækjast í sífellt auknum mæli eftir jörðum í sveit-
um landsins og þá skiptir framleiðslukvóti og jafnvel
húsakostur ekki máli.
Magnús Leópoldsson, fast-
eignasali hefur annast sölu margra
jaröa á undanförnum árum og því
fylgst nokkuö vel með þróun þessa
markaðar. Magnús er heldur ekki
ókunnugur landbúnaði og hefur
meðal annars starfað sem bóndi.
Hann segir aö sala á jöröum sé
mjög frábrugðin öörum viðskipt-
um meö fasteignir. Hún eigi sér
bæöi lengri aödraganda og öll
samskipti kaupenda og seljenda
séu með örðum hætti. En hver er
eftirspurn eftir jörðum sem bjóö-
ast til sölu og hverjir eru það sem
leita eftir jarðakaupum f dag.
Hefur sala á bújörðum tekið ein-
hvern kipp við aukna eftirspurn úr
þéttbýlinu?
Nóg af kaupendum
aö ódýrum jörðum
Magnús kvaðst ekki geta
merkt að neinn sérstakur kippur
hafi átt sér staö varöandi sölu
jaröa en hún aukist samt alltaf
jafnt og þétt. Ákveöin eftirspurn sé
alltaf fyrir hendi en oft sé erfitt að
samræma þaö verö, sem í boði sé,
hugmyndum manna um hvaö þeir
telja sig þurfa aö fá fyrir jaröeignir
búnir að borga hvað sem er fyrir
þær," sagði Magnús. Hann sagði
að viö kaup á jöröum velti menn
þvf oft mikiö fyrir sér hvort og
hvað mikla fjármuni þeir eigi aö
leggja f kaup af þessu tagi því f
mörgum tilfellum sé um óaröbæra
fjárfestingu að ræöa f þeim skiln-
ingi aö viökomandi eignir gefi ekki
raunverulegar tekjur af sér þegar
um jaröir án framleiðsluréttar sé
aö ræöa. "Það er til nóg af kaup-
endum en það er ekki til sölu nóg
af jöröum á því verði sem menn
eru tilbúnir til að borga," sagöi
Magnús Leópoldsson."
Góðar byggingar
geta torveldaö sölu
"Stærsti hópur þeirra er leita
eftir jöröum til kaups er þéttbýlis-
fólk, sem hefur áhuga á að eignast
land í hæfilegri fjarlægö frá þeim
staö sem þaö býr á. Þannig kýs fólk
á höfuðborgarsvæöinu helst aö
Þótt þéttbýlisbúar sækist nú f
aukni mæli eftir landi er einnig
nokkuö jöfn eftirspurn eftir jörö-
um með góöum framleiöslurétti.
Þeir sem leita eftir jörðum sækjast
oft eftir veiði og þá helst þar sem
þeir geti veitt sjálfir án þess aö vera
háðir starfandi veiðifélögum. "Að
sjálfssögöu hafa menn áhuga á aö
eignast alvöru veiðihlunnindi en
fyrir þau verður undantekninga-
laust aö borga og margir sækjast
því ekkert sérstaklega eftir þeim.
Þannig geta veiðihlunnindi veriö
kostur viö sölu jaröa en ekki er
sjálfgefið aö slík verömæti auð-
veldi alltaf sölu þeirra."
Magnús sagöi aö ýmis önnur
hlunnindi auðvelduöu gjarnan sölu
jaröa. Menn heföu áhuga fyrir
dúntekju og yfirleitt væri meiri
eftirspurn eftir jörðum sem ættu
land aö sjó. Nokkrar jaröir seljist
einnig á hverju ári yndir sumar-
húsabyggö en það er mjög Iftill
fjárfesta f jöröum fyrir austan fjall
eöa á Vesturlandi. Þá sækist fólk
úr þéttbýlinu einnig fremur eftir
nokkuö landmiklum jörðum en
húsakostur skiptir oft minna máli.
Fólk er ekki að leita eftir fimm til
sexhundruö kinda fjárhúsum eða
þrjátíu til fjöritíu kúa fjósum og því
er meiri eftirspurn eftir jöröum
sem ekki eru mikið upp byggöar.
Nýlegar byggingar hækka verð
jaröa og á þann hátt geta góö
húsakynni torveldað sölu þeirra
Ef verðlag þeirra er innan skyn-
samlegra marka er nánast hægt að
selja allar jarðir sem hafa þokka-
legan fullviröisrétt. Það er segja
nægilegan rétt til framleiðslu scm
ein fjölskylda getur lifaö almenni-
legu lífi af. Erfiðast er aö sclja vel
uppbyggöar jaröir sem fullvirðis-
réttinum hefur verið fargað af. Ef
slíkar jaröir eru auk þess langt frá
þéttbýium stööum, til dæmis
vestur á fjörðum eöa á Austur-
landi getur veriö mjög erfitt um vik
aö fmna kaupanda að þeim."
Hlunnindi
auðvelda oft sölu
Magnús sagði aö ýmis hlunn-
indi auövelduöu oft sölu jarða.
hluti af almennum viöskiptum
með jaröir. Nokkuð er einnig um
aö bændur láti skipuleggja sumar-
húsabyggð á jörðum sfnum en þá
er fremur um langtíma leigusamn-
inga á landinu aö ræða en eigna-
skipti. Nokkur brögð eru einnig að
því aö bændur vilji selja spildur af
jöröum sfnum. Magnús sagöi að
nokkrar slfkar sölur hefðu fariö
fram en stundum gripu menn til
þessa ráðs þegar f erfiöa fjárhags-
stööu væri komiö, til dæmis vegna
mikilla fjárfestinga. Þá gæti vcriö
erfiöleikum bundiö aö leysa land-
spildur undan veöböndum.
Fyrirspurnir
frá útlöndum
"í staö bygginga og ræktunar
koma nýir þættir, sem metnir eru
til veröleika. Kaupendur f dag
leggja jafnvel útsýniö til grund-
vallar verölagningu þótt þaö skipti
engu máli fyrir notagildi jaröar-
innar til heföbundins búskapar og
enginn hafi hugaö aö þeim þætti
fyrir um tuttugu árum," sagöi
Magnús aöspuröur um það hvort
jarðamat heföi í raun breyst á
seinni árum.
Magnús kvaöst hafa fengið
nokkuö af fyrirspurnum frá
íslendingum, sem búsettir séu
erlendis varöandi kaup á landi. í
flestum tilfellum sé um eldra fólk
aö ræöa sem hafi búiö lengi ytra
og hafl úr rúmum fjárhag aö spila.
Þetta fólk langi aö eignast land-
spildu og koma sér upp aöstööu
hér á landi. Magnús kvaöst einnig
stundum fá sendar söluskrár og
upplýsingar frá erlendum fast-
cignasölum um land sem væri
verið aö bjóöa til sölu erlendis. En
um áhrif hins væntanlega EES
samnings á þessa þróun vildi
Magnús ekkert segja.
VIÐTAL: ÞÓRÐUR INGIMARSSON
sfnar. "Þaö vilja margir eignast þcgar um kaup þéttbýlisbúa er aö
jaröir en menn eru ekki alltaf til- ræöa.