Skátinn - 01.06.1935, Page 1
\I. árg. — 2. tbl. — júní 1935
Skáíinn
ÚTGEFANDI: SKÁTAFÉLAGIÐ »ERNIR«
Ábyrgðarmenn: Haraldur Sigurðsson og Axel Sveins — Herbertsprent prentaöi
Axel V. Tulinius, sjötugur.
1 dag. (5. júní, er Axel Tulinius skátaliöfð-
ingi sjötíu ára að aldri. í dag berast honum
hamingjuóskir frá ættingjum og vinum hæði
hér á landi og erlendis. I dag færa skátarnir
honum þakkir sínar fyrir það mikla og merki-
lega starf, sem liann hefur unnið í þágu skáta-
hreyfingarinnar og þá um leið í þágu æsku-
lýðsins í landinu og þjóðarinnar í heild. Það
var hann, sem stofnaði fyrstu skátafélögin á
Islandi og stjórnaði þeim. Hann var einn af
stofnendum B. í. S. og formaður þess nær
óslitið síðan. Hann var kosinn skátahöfðingi
17. júní 1927.
Bandalag íslenzkra skáta
10 ára.
Fyrir 10 árum siðan, 6. júní 1925, var Banda-
lag ísl. skáta stofnað. Þeir tveir menn, sem
aðallega beitlu sér fyrir stofnun handalags
milli allra skátaféléaga á landinu, voru þeir
Henrik Thorarensen og Ársæll heitinn Gunn-
arsson. Þriðji maðurinn, sem að stófnuninni
stóð, var A. V. Tulinius skátahöfðingi.
Fyrsti fundur þess var haldinn á heimili
skátahöfðingjans, einsog svo ótal margir aðrir,
sem áhrifaríkaslir hafa orðið fyrir vöxt og
viðgang skátahreyfingarinnar á Islandi. Þessir
þrír menn skipuðu fyrstu stjórn B. í. S. og fór
þar sem máltækið segir: „að lengi hýr að
fyrstu gex-ð“, því það. sem þeir hafa gert hefur
reynst ómetanlegt fyrir félagsskapinn. Að visu
naut Ársæls ekki svo lengi við sem skyldi, en
í hans sæti kom sá maður, sem vísastur var
lil þess að halda áfram starfi lians, félags-
skapnum til heilla. Þessi maður var Sigurður
Agústsson.
Margir góðir skátar hafa unnið bæði mikið
og gott starf fyrir B. í. S. siðan það var stofn-
að. Meðal þeirra má nefna þá Carl H. Sveins,
sem var innanlandsritari í mörg ár, Þórarinn
Björnsson, sem verið hefur gjaldkeri banda-
lagsins í mörg ár.
Jón Oddgeir Jónsson kom í stjórnina
skömmu eftir stofnun bandalagsins, og litlu
síðar Henrik W. Ágústsson. Báðir þessir menn
liafa unnið mikið og gott starf í þágu B. í. S.