Skátinn


Skátinn - 01.07.1935, Síða 1

Skátinn - 01.07.1935, Síða 1
V. árg. — 3. tbl. — júlí 1935 ÚTGEFANDI: SKÁTAFÉLAGIÐ »ERNIR« Ábyrgðarmenn: Haraldur Sigurðsson og Axel Sveins — Herbertsprent prentaði. Landsmót skáta á Akureyri. í sumar var lialdið landsmót skáta að Ak- ureyri. betta mun vera í fjórða sinn, sem slíkt mót er haldið. Arið 1925 var fyrsta mótið haldið í Þrastarskógi, annað í Laugadal árið 1928, þriðja að Þingvöllum árið 1930, og loks í fjórða sinn nú í sumar að Akureyri. Þáttak- endur voru um 75, frá 5 félögum. Hóðan úr Reykjavík voru 35 þátttakendur úr félögun- um „Ernir“ og „Væringjar". „Skátinn" hefur snúið sér til Þór. Björns- sonar, sem var í fararsljórn Reykjavíkurskát- ■anna ogforingi „Arna“ og beðið hann um upp- lýsingar um mótið. Þórarni sagðist svo frá: Við fórum héðan úr Reykjavík um kl. 3 föstudaginn 21. júní i tveimur stórum hílum. Um kl. 1 e. m. var tjaldað í túninu í Grænu- mýrartungu. Næsta morgun, að loknum morg- unverði var haldið af stað með litlum töfum að Akurevri. Þangað komum við kl. 10 e. m. á laugardag. Við fórum úr bílunum skamt fyr- ir utan bæinn og gengum undir fána niður á Ráðbústorg. Þar tóku „Fálkarnir“ á móti okk- ur. Eftir að hafa heilsað Akureyrarskátum var haldið að tjaldstað, sem bafði verið ákveðinn á Gleráreyrum. Tjaldstaðurinn liggur vel við en jarðvegurinn er barður og örðugt að koma fyrir tjaldbælum. Eftir að bafa kynnt okkur dagskrá mótsins, var gengið til svefns, því næsta morgun skvldi baldið að Goðafossi og i Vaglaskóg. Áður en lagt var af stað næsta morgun, fórum við í bað í binni nýju sund- laug á Akureyri. Að því loknu mættust allir skátarnir á Ráðhústorginu og stigu í kassahíla þá, sem fengnir höfðu verið til fararinnar. „Fálkarnir" skiptu mönnum mjög sniðuglega niður í bilana, þannig að ámótamargt var al' Sunnlendingum og Norðlendingum i bverjum bíl. Reyndist þetta bið mesta snjallræði, því um leið og farið var af stað voru allir orðnir mestu mátar, eins og skátum sæmir, því, „Meíin kynnast fljótt i kassabíl", segir eilt okkar nýjasta máltæki. Við konnnn að Goða- fossi snæddum þar mjólk og hrauð, og var mikið horðað, enda voru margir munnarnir. I Vaglaskógi var staðið við um klukkustund, og þegar komið var að hilunum aftur, voru margir lil í að dvelja þar eins lengi og fríið levfði. Um kvöldið var skemmtun i Good- templarahúsinu til ágóða fyrir mótið. Skemmt- unin fór vel fram og var skátunum til sónia. Næsta morgun var tjaldbúðin flutt út í Svarf- aðardal. Þann dag liafði verið ákv^ðið að fara til Dalvíkur og skemmta bæjarbúum, en sök- um rigningar varð ekki úr því, en skemmt sér heima í stóra tjaldinu í staðinn. Að morgni næsta dags skein sól í heiði og var þá haldið til Dalvíkur, sem er um klukkustundargang- ur. Að afloknum miðdegisverði þann sama dag var baldið lil Akureyrar og var þar lítil við- staða því B. S. A. bafði boðið okkur í bílferð að Grund. Þaðan komum við um kl. 10, en um II leytið var haldið að Fálkafelli hústað

x

Skátinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátinn
https://timarit.is/publication/918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.