Börn og bækur - 01.11.1985, Page 26

Börn og bækur - 01.11.1985, Page 26
STEFÁN JÚLÍUSSON Stefán Júlíusson er fæddur þann 25. sept. 1915 að Þúfukoti í Kjós, en ólst upp í Hafnarfirði frá barnæsku. Hann varð gagnfræðingur frá Flensborgar- skóla árið 1932 og lauk síðan kennaraprófi árið 1936. Stefán var við framhaldsnám í Bandaríkjunum og við Háskóla íslands. Þá lauk hann einnig B.A. prófi í ensku og bókmenntum í Northfield í Minnesota árið 1943. Stefán kenndi við Barnaskóla Hafnarfjarðar 1936-1955 og við Flensborgarskóla 1955- 1963. Hann var forstöðumaður Fræðslumynda- safns ríkisins 1963-1969 og síðan bókafull- trúi ríkisins 1969-1977. Hann hefur starfað sem bókavörður og blaðamaður og haft mikil afskipti af félagsmálum og stjórnmálum. Stefán var í stjórn Félags ísl. rithöfunda frá 1956, formaður 1958-1961. í stjórn Rithöfundasambands íslands frá 1958, formaður 1961, 1963, 1965 og 1967. Þá var Stefán ritstjóri Skinfaxa 1945-1956. Auk þeirra barnabóka sem Stefán hefur samið hafa komið út eftir hann ýmis þáttasöfn, skáldsögur og smásögur. Þá hefur Stefán þýtt rúmlega 30 barnabækur. Hann hefur auk þessa skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Nokkrar bækur Stefáns hafa verið þýddar á dönsku, t.d, Kárabækurnar og Sólarhringur. 24

x

Börn og bækur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og bækur
https://timarit.is/publication/921

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.