Börn og bækur - 01.04.1997, Blaðsíða 3
| ‘3<in*c oy &œÁurt
Pistill
m esendur góðir!
m Böm og bækur, vorblað
/ 1997, er komið og ber
ykkur margvís-
legt eftii til
fróðleiks og skemmtunar.
Við birtum upplýsingar
um verðlaunaveitingar til
bamabóka og bamabóka-
höfunda, segjum ýmsar
íréttir og ljóðskáld barn-
anna er á sínum stað. Það
er að þessu sinni Þor-
steinn Erlingsson.
Nokkuð var um það
rætt í vetur að vegna að-
ildar okkar íslendinga að
Evrópusambandinu
þyrftum við að færa til
frídaga á árinu. Að
minnsta kosti einn frídag
þyrfti að flytja frá vori til
hausts. Þá þótti sumum
ráðandi mönnum best
hæfa að fórna frídegi á
Sumardaginn íyrsta.
Margir mætir menn urðu
til að mótmæla þessu og
koma sumardeginum
okkar til vamar og að öll-
um líkindum er Sumar-
deginum fyrsta bjargað
að þessu sinni. Af þessu
tilefni þótti ritstjóra
ástæða til að rifja hér
ritstjóra
upp ýmislegt um þennan
gamla hátíðisdag.
Lesendur munu ef til
vill sakna þess að Böm og
bækur birta ekki í þetta
skipti umsagnir um nýút-
komnar bamabækur. Það
er m.a. vegna tímaskorts.
Við, aðstandendur blaðs-
ins, höfum ekki haft tíma
til að lesa nógu mikið af
bamabókum síðasta árs
hvað þá að skrifa um þær.
Bókatíðindi koma á hvert
heimili íyrir jólin og ef til
vill er því óþarfí fyrir
Böm og bækur að birta
umsagnir um nýútkomnar
bækur. Hvað ftnnst les-
endum?
í síðustu blöðum höf-
um við gagnrýnt harð-
lega skort á barnaefni í
fjölmiðlum, einkum út-
varpi. Blaðið hafði sam-
band við Jón Karl Helga-
son settan dagskrár-
stjóra Ríkisútvarpsins
og spurði hann hvað
þessum málum liði. Hann
sagði að litlar breytingar
hefðu ennþá orðið á dag-
skrá fyrir börn en í vetur
hefði þó bæst við nýr
þáttur í umsjón Önnu
Helga K. Einarsdóttir
Pálínu Árnadóttur, Salt-
fiskur með sultu, sem
þeir væru mjög stoltir
af. Þátturinn er fluttur
á föstudagskvöldum og
endurtekinn síðdegis á
laugardögum. Ýmislegt
bama og unglingaefni er
í athugun, bæði talað orð
og tónlist, og líka er ver-
ið að athuga um að hafa
bamaefni á Rás 2. Þetta
er í samræmi við nefnd-
arálit frá 1996 um út-
varpsefni fyrir börn. Jón
Karl telur ástæðu til að
menn séu bjartsýnir á
vöxt og viðgang barna-
efnis í útvarpi. Botninum
hafí verið náð og héðan í
frá séum við á uppleið.
Heilshugar óskum við
þessum fyrirætlunum
góðs gengis og munum
fylgjast með fram-
kvæmdinni.
Helga K. Einarsdóttir