Börn og bækur - 01.04.1997, Qupperneq 7
“Sön*t (U v&cci
mælda degi. í Austur-
Skaftafellssýslu var sá
leikur mönnum kær að
hver stúlka í hrepp átti
sinn sumardag eftir boð-
leið í bæjaröð. Sú sem bjó
austast átti t.d. fyrsta
sumardag o.s.frv. Síðan
skemmtu menn sér við
það um alla sveit að finna
samsvörun milli veðurs
þann dag og lundarfars
stúlkunnar sem í hlut
átti.
SUMAR OG VETUR
FRJÓSA SAMAN
Hvarvetna á landinu
var eftir því tekið hvort
frost væri aðfaranótt
sumardagsins fyrsta svo
að vetur og sumar frysu
saman. Þótt menn legðu
mismikinn trúnað á, var
slíkt með fáum undan-
tekningum talið góðs viti.
BARNADAGUR 1921
Árið 1921 má segja að
sumardagurinn fyrsti geri
opinbera innreið sína í
höfuðstað íslands þegar
fyrsti bamadagurinn er
haldinn þar með fulltingi
margra þekktra karla og
kvenna, fyrilestri, ræðu,
einsöng, kvæðalestri, leik-
sýningu, hljómsveit, leik-
fími og listdansi.
Sumardagurinn fyrsti
er einn af 11 löggiltum
fánadögum lýðveldisins.
Ámi Bjömsson:
Saga daganna
SUMARDAGURINN FYRSTI
Það var venja á mínu heimili frá því ég
man fyrst eftir, að reyna að hafa einveja
tilbreytingu í mat á sumardaginn fyrsta.
Oftast held ég að móðir mín hafi bakað
pönnukökur eða steikt kleinur og haft
með eftirmiódagskaffinu. Ekki tíðkaðist
að gefa sumargjafír í þessari sveit eftir
því sem ég best veit.
Á sumardaginn fyrsta var unnið af
kappi sem aðra daga. Hins vegar er
fyrsti dagur hörpu bjartur í minning-
unni, hann vakti okkur gleði og vorhug.
Nú var líka vetur úr bæ.
Stúlkurnar áttu dag í hörpu eins og
bændur áttu dag í þorra, húsfreyjur dag
í góu og piltar dag í einmánuði. Dögum
þessum var skipt niður á fólk á bæjum,
byrjað á öðrum enda sveitarinnar og
endað á hinum. Sumir sögðu að veður
þessa daga sýndi skaplyndi þeirra sem
daginn áttu og til ar að menn vildu
skipta um dag ef þeim líkaði ekki veðrið.
Ragnar Stefánsson
í Skaftafelli
►
o