Börn og bækur - 01.04.1997, Síða 19
'&örut ay foeúun
Heimspeki og bókmenntir
~w~ grein sem birtist í síð-
M asta „Bookbird" - (34 -
M no.3), skrifaði þýski rit-
*- höfundurinn og kennar-
inn Peer Olsen um bókina
„Heimur Soffiu“ og með
hana að leiðarljósi hvemig
við getum lært eða rætt
um spuminguna hvaðan
við komum og hver sé
meiningin með lífinu.
Peer Olsen hefur
kannað álit unglinga á
bókinni. Þar kemur í ljós
að þeir hafa meiri áhuga á
sjálfri atburðarásinni
heldur en hinni heim-
spekilegu umræðu. Þeir
em spenntari fyrir því
hvað gerist hjá Soffíu og
Alberto. Þessvegna
minnkar heimspekiáhug-
inn eftir fyrstu 200 síð-
urnar og það sem á eftir
kemur finnst þeim vera
flókið og' óaðgengilegt
efni.
Olsen heldur því fram að
„Heimur Soffiu“ sé ekki
bamabók, heldur eins og
Gaarder segir sjálfur, bók
fyrir 14 ára og eldri.
En getur bókin kennt
okkur eitthvað um lffið og
hina miklu heimspekinga?
Peer Olsen heldur nám-
skeið í heimspeki fyrir ungt
fólk sem enga reynslu hef-
ur á því sviði.
Hann hefur komist að
því að erfitt sé fyrir það að
skilja heimspekilegt efni
nema í félagi við aðra þar
sem tækifæri er til um-
ræðna. Því getur bókin og
efni hennar haft þýðingu
fyrir lesendur ef slíkar að-
stæður em fyrir hendi.
En hvemig má kenna
litlum bömum heimspeki?
Níels Chr. Saner kennari
í Danmörku svarar spum-
ingunni þannig að hafa beri
í huga að heimspeki sé ást
á þekkingu. Lítil böm em
forvitin, undrandi og sífellt
að uppgötva eitthvað nýtt.
Að þjálfa heimspekilega
hugsun með bömum felst í
því að vekja áhuga og
löngun til að skoða hlutina
frá mörgum sjónarhornum
og huga að öðm en því
sem umlykur þau hvers-
dagslega.
Verkfæri heimspekinnar
er hið talaða mál. Sá sem
kynnir litlum bömum
heimspeki verður að kunna
að nota það á fágaðan og
einfaldan máta. Nauðsyn-
legt er að hinn fullorðni
þekki vel efnið sem rætt er
um og getir vegið og metið
hvaða orð séu áhrifaríkust í
samræðunum. Því yngri
sem bömin em, því
vandasamara erþetta.
Níels Chr. Saner mælir
með aó segja sögur í þessu
skyni. Þar hefur hinn full-
orðni „beint samband“ við
hlustendur. Þá er hægt að
af og til og spyrja bömin
um svipaða reynslu eða
hvetja þau til að taka af-
stöðu til persóna og eftiis
sögunnar, kreijast þess að
þau útskýri afstöðu sína og
færi rök fyrir henni. Forð-
ast skal þó spumingar eins
og „Hvað meinar þú -
hvers vegna finnst þér
það?“ Það er t.d. hægt að
taka afstöðu með skúrkin-
um og athuga viðbrögðin!
Sá sem vill fá böm til að
tjá sig um heimspekileg
eftii getur litið á sig sem
nokkuiskonar hljómsveit-
arstjóra. Hlutverkið ki-efst
hlustunar, tilfínninganæmi,
þolinmæði, áhuga og gleði.
Þetta er ekki alltaf auðvelt
en skemmtilegt.
Þýtt og endursagt wr
Skolestart 2/92
Margrét Gunnarsdóttir
>------------------------©