Börn og bækur - 01.04.1997, Síða 22
‘Söntt, oy &X&6CI
Barnahellirinn
NÝJUNGAR í BARNASTARFI NORRÆNA HÚSSINS
j ýtt húsnæði fyrir
/ \/ barnastarf var tek-
' t ið í notkun í haust.
Efnt var til samkeppni
meðal barna um nafn á
húsnæðið og sigurvegari
varð Kristinn, 5 ára, sem
stakk upp á nafninu
Bamahelhi'inn.
Þegar Kúistinn var
spurður hvað nafnið
merldi svaraði hann: „Jú,
herbergi sem hefur enga
glugga en dymar eru alltaf
opnar.“
Vígsluhátíð Bamahell-
isins var haldin 11. jan. s.l.
Þar komu 130 börn. Veitt-
ur var ávaxtasafí og
múmínkex og ýmislegt
var til skemmtunar, m.a.
var lesið úr bamabókum á
öllum norrænu málunum.
Norræna húsið hefur
lengi vantað húsnæði fyrir
bamabækur, upplestur og
sögustundir. Þetta nýja
rými er málað í björtum
litum, með bókahillur og
ævintýraverur á veggjum
og dýnur á gólfum og borð
til að skrifa við. Notalegt,
en ekkert óhóf.
í ár fengum við styrk
frá Nordisk Ministerrád
til að setja upp norræna
dagskrá í nýja rýminu.
Við sendum boð til leik-
skólanna í Reykjavik á
fyrirhugaða dagskrá og
undirtektir vom frábærar.
í janúar kom brúðuleik-
hús Evu Ljungar írá Sví-
þjóð. Eva semur sjálf verk
sín. Hún kann íslensku og
sagði sögumar bæði á
sænsku og íslensku en
söngvamir vom á sænsku.
í febrúar kom Totem-
teatret frá Finnlandi, en
það er 2ja manna lát-
bragðsleikhús. Það sýndi
Grimmsævintýrið Rapun-
sel. Báðar þessar sýning-
ar vom öllum opnar og
var einkar ánægjulegt að
sjá þann skara uppábú-
inna bama sem komu í
„leikhús" með foreldmm
eða eldri ættingjum.
í mars er Hallveig Thor-
lacius með brúðuleikhús
sem heitir Minnsta tröll í
heimi og 11 maí kemur
finnski bamabókahöfund-
urinn Irmelin Sandman
Lilius og ræðir við böm og
sýnir bækur sínar.
24. apríl, 1. sumardag
verður dagskrá í sam-
vinnu Norræna hússins
og IBBY.
En hver er tilgangur
okkar með þessu nýja
bamastarfi? Við viljum
kynna börnum Norræna
húsið og sýna þeim að þar
eiga þau rúm fyrir sinn
„heim“. Þar em sagðar
sögur og gerast ævintýri-
og þeirra menning í heiðri
höfð, og það getur orðið
þeim lykill að norrænum
bókum, sögum og söng í
framtíðinni. Að þessu ætl-
um við í Norræna húsinu
að stuðla með ýmsum
móti, með norrænni dag-
skrá, útlánum á norræn-
um bamabókum, bama-
myndböndum og baraa-
lögum. Og einn „CD
Rom“ disk höfum við
fengið; hann er um
Múmínálfana.
Haustið 1997 fáum við
heimsóknir danskra og
norskra leikhópa og í nóv-
ember verður efnt til
lestrarkeppni.
Með haustinu hefjast á
ný sýningar á norrænum
kvikmyndum fyrir böm á
sunnudögum.
Lisbeth Ruth