Tónlistin - 01.12.1945, Qupperneq 7

Tónlistin - 01.12.1945, Qupperneq 7
TÓNLISTIN 37 vallt frumkvæðið með liermilögum einum saman, og getur það valdið þekkingarskorti, sem síðar háir börnunum mjög, er þau koma í framhaldsskóla, og orðið að van- máttarkennd, sem þá oftast kem- ur fram sem áhugaleysi og tómlæti og jafnvel óbeit á efnum tónlistar. Slíkt ástand er stórhættuleg tálm- un allri framför í tónmenningu þjóðarinnar, og verður það aldrei nógsamlega brýnt fyrir öllum hlut- aðeigendum, en þeir eru jafnmarg- ir öllum íbúuni Islands, hve nauð- synlegt er, að komizt sé fyrir upp- tök meinsins. Að vísu eru þeir til, sem andvigir eru allri fræðilegri og tæknilegri vinnu i söngtímum barna- skólanna, en réttnefni fyrir tónlist- arþroska þeirra manna, er liarna- skapur og fávisi. Tónlestur er sjónaræfing en ekki beyrnar. Hann er fólginn í ])ví að lesa röð af nótum, skapa sér hug- mynd um tónana, sem nóturnar tákna, og mynda hljóm rittáknanna. Hugarstarfið við nótnalestur fer þá fram í þessari röð: Sjón — hug- mynd — hljómur. Heyrnin staðfest- ir siðan hljóminn, sem sprottinn er af réttri hugmynd. Tónlínan, sem lesa á, kemur fram í margskonar bljóðfalli (taktliðum), sem sífellt breytist á leið sinni gegnum lagið. Þessu breytilega ldjóðfalli er skip- að i samstæðar siendurteknar deild- ir (lakta); og þessar deildir skipt- ast svo í reglulegar og óbreytanleg- ar einingar (taktslög). "Við tónlest- ur verður því að greina allt í einu: tón, bljóðfall, takthluta og taktslag. Aðalvandi tónlestrar er þá tviþætt- ur: Tónhæð og dvalargildi. Við greiningu tónliæðar er aðallega um að ræða tónbil, stökklínu, skreflínu og endurtekna tóna. Tónhreyfing, sem lileypur yfir einn eða fleiri tóna tónstigans, nefnist stökk, annars skref. Tónbil getur bæði verið stökk og skref. Ef tvö eða fleiri stökk fara hvert á eftir öðru í sömu átt, nefn- ist það stökklína (sbr. upphafið að „Ó, fögur er vor fósturjörð“ — að undanskildum upptaktinum •— eða byrjunina á „Mér um bug og lijarta nú“). Skreflína er sú breyfing lags- ins kölluð, þegar tvö eða fleiri skref fara bvert á eftir öðru í sömu átt (bein skreflína). Krómatískir tón- ar eru lesnir sem tónbil (stækkuð einund, lítil tviund), en ekki sem endurteknir tónar. Dvalargildi tóns- ins ákvarðast af gerð nótunnar, stöðu liennar i taktinum og ýms- um rittáknum (punktur, tengibogi o. s. frv.), ennfremur af takttegund og hraðafyrirskrift. Mikill skortur er á góðu efni til tónlestraræfinga, en bezta bókin, sem enn hefir kom- ið út bér á landi til þeirra nota, mun vera „Söngkennslubók“ Jón- asar Helgasonar fyrir byrjendur, 1. befti B (verklegar æfingar), 3. útg. aukin 1895, 4. prentun 1904. Það er báskalegt fyrir tónlistar- uppeldi þjóðarinnar, hve margir kennarar láta sér nægja að nota að- eins hermilög en engin lestrarlög við söngkennsluna. Það er marg- revnt, að vilji til nótnalestrar er til- tölulega auðvakinn, og tónlistar- reynslan á ekki að nema staðar við hermilögin ein. Almenn fáfræði i efnum tónlistar, mun dafna svo
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tónlistin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.