Tónlistin - 01.12.1945, Síða 19

Tónlistin - 01.12.1945, Síða 19
TÓNLISTIN 49 vilji verða eins — eins og sú fyrri.1) Hér virðist það vera þörfin á að endurtaka, sem gerir vart við sig, en endurtekningar og eftirlíkingar eru, svo sem kunnugt er, notaðar mikið í allri tónlist, þó að það eigi ekki við liér. 2. „Syngjum glaðir göngusöng“ eftir sama liöfund. Þar er það þessi kafli, sem veldur örðugleikunum: Vill verða svona: Það virðist vera tilbreytingarþörf- in, sem gerir vart við sig á kostn- að lagsins. (Sbr. setninguna „fleyg- ir burt gullhörpu fossbúinn grár' í laginu „Svifur að baustið"). 3. „Sól er hnigin í sæ“ eftir Sig- fús Einarsson. Það þarf að bafa alla aðgæzlu við, til þess að fá endinn réttan; bann vill verða svona: 1) I þeim dæmúm, sem ég tek í grein- arkorni þessu, styðst ég yfirleitt við reynslu mína úr Ansturbæjarskólanum i Rvík. En undir þetta renna þó fleiri stoð- ir. Um þetta lag vil ég leyfa mér að geta þess, að mér hefir sagt Brynjólfur Þor- láksson, að hann hafi rekið sig ó sömu villurnar eða örðugleikana i Miðbæjar- skólanum og einnig vestur i Ameríku, þar sem hann hefir kennt fjölda mörgum börnum lagið. Þetta virðist vera sönnun fyrir því, að það séu sömu kaflarnir, sem valda örðugleikunum, næstum því hver sem í hlut á. Að vísu virðist vera ástæðulaust að breyta laginu þannig, en menn at- bugi 7. takt í laginu. Líklega er þar að finna orsökina.1) Eins og þegar liefir verið benl á, eru sumt af þessu gegnumgang- andi villur, ef svo mætti segja, örð- ugleikar, sem endurtaka sig æ of- an í æ, þegar verið er að kenna byrjendum. Ekki skal nú neitt full- yrt umfram það, sem þegar er sagt, af bverju þelta stafar. (E.t.v. væri það út af fyrir sig rannsóknarefni). En víst brýnir það fyrir kennurum vandvirkni og samvizkusemi eða trúmennsku i starfinu gagnvart þvi verkefni, sem verið er með. Þess- vegna að endingu þetta: Kennar- ar! Hlaupið ekki fram lijá örðug- leikaköflunum. Gefið gaum að örð- ugleikunum, atbugið, í bverju þeir liggja, oft getur það verið til bóta fyrir bæði kennara og nemendur. Atbugið, hvernig bægt er að yfir- vinna örðugleikana. Endurtakið og æfið erfiðu kaflana sér. Ivallið ekk- ert verkefni fullæft, fvrr en það er rétt. 1) Allt það, sem hér hefir verið tek- ið fram, sýnir okkur, að það er sannar- lega tími til kominn að fara að hætta að kenna söng eins og verið sé' að kenna páfagaukum. Það er vitanlega að þekkja og skilja nóturnar og kunna að notfæra sér þær, — nótnalestur, — sem fyrst þarf að læra. En út í það verður ekki farið nánar að þessu sinni.

x

Tónlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.