Dagsbrún - 01.12.1941, Síða 6
landinu og tengja hana við r.yt-
söm störf.
Og þrátt fyrir það, þott verka-
menn hafi hundruðum saman reik-
að um götur og torg atvinnuiausiv
eða atvinnulitlir ár eftir -u e:us og
útlagar í ættlandi sínu, án þess að
atvinnuleysismálið væri tekið til
félagslegrar lausnar, er þeim áreið-
anlega kærast að vinna í þjónustu
þeirra atvinnuvega, sem framtíð Is-
lands byggist á sérstaklega. En
hinsvegar munu verkamenn ein-
dregið mótmæla því, ef það kemur
fram, að ráðstafanir íslenzkra
stjcrnarvalda um takmörkun í
Eretavinnunni skyldu miðast við
það, að skipuleggja þessi mál svo,
að af því leiði, að framboð á vinnu-
krafti verði meiri en eftirspurnin
og gera með því tilraun til þess að
þrengja að kosti launastéttanna al-
mennt, skapa atvinnuleysi að nýju,
þar sem ekkert er fyrir.
Höfuðkrafa verkamamia hlýtur
að vera nú og alltaf sú, að svo sé
fyrir málum atvinnuveganna og
þjóðarinnar séð, að vinnufús verka-
lýður þurfi elcki að líða skort vegna
atvinnuleysis. Og fjárgróða þeim,
sem nú berst upp í hendur lands-
manna, ber að verja til þess að
tryggja framtíð atvinnuveganna,
stöðuga atvinnu allra landsmanna,
og gera þeim auðveldara í heild að
fullnægja lífsþörfum og menning-
arkröfum sínum.
5SAMNINGUR
milli
Vinnuveitendafélags íslands
(í samningi þessum nefndir „vinnuveit-
endur“)
Verkamannafélagsins Dagsbrún í Reykja-
vík
(í samningi þessum nefnt ,,Dagsbrún“)
um kaup og kjör verkamanna í Reykjavík,
er tímakaup taka.
1. gr.
Vinnuveitendur skuldbinda sig tii þess
að láta verkamenn, sem eru gildir með-
limir í Dagsbrún, hafa forgangsrétt til al-
mennrar verkamannavinnu, þegar þess er
krafist og Dagsbrúnarmenn bjóðast, er
séu fullkomlega hæfir til þeirrar vinnu,
sem um er að ræða. Vinnuveitendur hafa
ávalt frjálst val um það, hvaða félaga
Dagsbrúnar þeir taka til vinnu. Nú vill
vinnuveitandi ráða til 'sín mann í vinnu,
sem ekki er félagi í Dagsbrún, og skal
Dagsbrún þá skyld til þass, að veita þeim
manni inngöngu, ef hann sækir um það
og kemur ekki í bága við samþykktir fé-
lagsins.
Dagsbrún skuldbindur sig til, ef hörgull
er á mönnum til vinnu, að láta meðlimi
Vinnuveitendafélagsins hafa forgangsrétt
á að fá gilda Dagsbrúnarmenn til vinnu,
enda skal stjórn félagsins tilkynnt um það,
að verkamenn vanti.
2. gr.
Dagvinna telst frá kl. 7 f. h. til kl. 6
e. h. Eftirvinna frá kl. 6 e. h. til 10 e. h.
Næturvinna frá kl. 10 síðdegis til kl. 7 ár-
degis. Helgidagavinna frá kl. 7 f. h. til kl.
10 e. h. Næturvinna skal ekki unnin, nema
brýn nauðsyn beri til og þá því aðeins, að
stjórn V.m.f. Dagsbrún samþykki í hvert
sinn. Dagsbrún veitir ekki undanþágur
þær, sem um ræðir i þessari grein samn-
6
DAGSBRÚN