Dagsbrún

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagsbrún - 01.12.1941, Qupperneq 8

Dagsbrún - 01.12.1941, Qupperneq 8
öðruvísi um semjist þegar sérstaklega stendur á. 9. gr. Vinnuveitendur taka að sér að greiða árgjöld verkamanna til Dagsbrúnar eða hluta af þeim, af ógreiddum en kræfum vinnulaunum þeirra, gegn stimplaðri kvitt- un undirritaðri af starfsmanni félagsins. 10. gr. Slasist verkamaður vegna vinnu, skal hann halda óskertu kaupi eigi skemur en 6 virka daga. Vinnuveitandi kostar flutning hins slasaða til heimilis eða sjúkrahúss, ef læknir telur slíkt nauðsyn- legt. 11. gr. Rísi ágreiningur milli samningsaðilja skal sá aðiljinn, sem telur sig órétti beitt- ann, bera fram kvörtun við stjórn hins aðiljans og skulu þær rannsaka ágrein- ingsatriðin og ráða þeim til lykta ef unt er. Hafi stjórnir beggja aðilja eigi komið sér snman am endanlega lausn ágrein- ingsins innan tveg'gja sólarhringa frá því kvöitu iin var sett fram, ber þegar að skjóta málinu ii) sáttanefndar er sé bann- ig skipuð að hvor aðilji tilnefnir einn mann og' annan til vara, en lögmaðurinn í Reykjavík þann þriðja og skulu þessir menn þá reyna að jafna deiluatriðin. Skal nefndin hafa lokið störfum innan tveegja sólarhringa, frá þvi þriðji maður var skip- aður. 12. gr. Samningurinn gildir frá 1. janúar 1941 til 1. febrúar 1942. Sé honum ekki sagt upp fyrir 1. nóvember framleng'ist hann um eitt;ár í senn. 13. gr. Samningur þessi er gerður í tveimur samhljóða frumritum, og heldur hvor að- ilji sínu eintaki. Reykjavík, 9. janúar 1941. VerkamannafélagiS Dagsbrún. Vinnuveitendafélag Islands. Það tilkynnist hér með, að um leið og undirskrifaður var samningur vor, dags. 9. þ. m., varð jafnframt að samkomulagi, að dýrtíðaruppbót ó borgun fyrir vagnhesta skyldi vera ki'. 0,25 á klst., þannig að í stað kr. 0,75 yrði greidd kr. 1,00 — ein króna — um klst. fyrir vagnhesta, án frekari hækkunar vegna dýrtiðarinnai'. Reykjavík, 13. jan. 1941. Vinnuveitendafélag Islands. Verkamannafélagið Dagsbrún. Samningur Dagsbrúnar og Vinnuveitenda félags Islands um sumarleyfi verkamanna. Vinnuveitendafélag, íslands og Verka- mannafélagið Dagsbrvín hafa í fram- haldi samnings félaganna, dags. 9. jan. 1941, kornið sjer saman um svofelldan við- auka við tjeðan samning: Verkamenn eiga rétt á að fá sumarfrí með fullu dagvinnukaupi frá vinnuveit- endum og fer fjöldi frídaga eftir því, hversu mikið verkamaðurinn hefir unnið hjá vinnuveitanda, talið frá 1. desember næstkomandi. Fjöldi frídaga skal ákveðinn þannig: Þegar vinnuveitendur greiða vikukaup verkamanna skulu þeir láta hvern verka- mann, sem síðastliðna viku hefir unnið hjá sama vinnuveitanda minnst 31 — þrjá- tíu og einn dagvinnutíma fá skírteini fyrir því að verkamaðurinn hafi unnið eina viku til grundvallar útreikningi sum- arfrís á næsta tímabili sumarfría. Gegn afhending' slikra skírteina skal vinnuveitandi greiða verkamanni sumar- frískaup, sem sje fullt dagvinnukaup á þeim tíma, sem frí er tekið, fyrir daga- tölu þá er hér skal greina: Skírteini fyrir: minnst 8 vikur allt að 15 vikur 2 fridagar 16 — 25 — 3 — 26 — 35 — 4 — 36 45 — 5 — 46 — 52 — 6 — Að sjálfsögðu hefir verkamaður ekki rétt til þess að fá sumarfrí gagnvart DAGSBRÚN 8

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/935

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.