Dagsbrún - 13.06.1975, Qupperneq 8
VINNA í SÍLDAR- OG FISKIMJÖLSVERKSMIÐJUM
Byrjunar- Eftir
laun 1 ár
Grunnlaun, 8 klst. vakt................ 2.113,11 2.197,63
Vaktavinna, 8 klst. vakt .............. 3.083,00 3.172,00
Dagvinna á klst.......................... 290,70 299,10
Eftirvinna á klst.................... 407,00 418 70
Nætur- og helgidagavinna á klst...... 523,30 538,40
Fast vikukaup......................... 11.628,00 11.964,00
Kaupgreiðsla í
veikinda- og slysatilfellum o. fl.
Slasist verkamaður vegna vinnu eða flutnings til
og frá vinnustað, skal hann halda kaupi eigi skem-
ur en 7 virka daga. Verði ágreiningur um bóta-
skyldu vinnuveitanda, skal farið eftir því, hvort
slysatrygging ríkisins telur skylt að greiða bætur
vegna slyssins. Vinnuveitandi kostar flutning hins
slasaða til heimilis eða sjúkrahúss.
1 veikinda- og slysatilfellum skal verkamaður,
sem unnið hefur skemur en eitt ár hjá sama at-
vinnurekanda fá greiddan einn dag fyrir hvem
unninn mánuð (150 klst.). (1 slysatilfellum þó
aldrei skemur en allt að 7 virkum dögum).
Verkamenn, sem unnið hafa hjá sama atvinnu-
rekanda í eitt ár eða lengur, skulu halda óskertu
kaupi í allt að 4 vikur.
Vinnuveitandi getur krafist læknisvottorðs mn
veikindi verkamanns.
Vinnuveitandi greiði læknisvottorð að því til-
skildu, að veikindi séu þegar tillcynnt til atvinnu-
rekanda á fyrsta veikindadegi, og að starfsmönn-
um sé ávallt skylt að leggja fram læknisvottorð.
Greiðslur í veikinda- og slysatilfellum skulu
greiddar með sama hætti og á sama tíma og aðrar
vinnulaunagreiðslur, enda hafi læknisvottorð bor-
ist í tæka tíð vegna launaútreiknings.
Verði verkamenn fyrir tjóni af völdum vixmu-
slysa, á fatnaði og munum, svo sem gleraugum,
úrum o. s. frv., skal það bætt að fullu. Sama gildir,
ef verkamenn verða fyrir fatatjóni af völdum
kemískra efna.
Verði ágreiningur um ofangreindar bótagreiðsl-
ur, eru menn beðnir að snúa sér til félagsins.
8