Dagsbrún - 01.11.1975, Side 3
--------------------------------------------------N
Til Dagsbrúnarmanna
Við lifum í vaxandi mæli í þjóðfélagi tækni, sérmennt-
unar og sérhæfingar. Sú kenning heyrist oft, að al-
menn störf séu meira og minna úrelt og jafnvel dregið
úr gildi þeirra. Verkamaðurinn á því í vök að verjast.
Hann nær með samtakamætti sínum ákveðnum ár-
angri eftir harða baráttu og sá árangur færist síðan,
meir og minna sjálfkrafa, yfir á aðra þegna þjóðfélags-
ins, sem flestir búa við mun betri kjör en hinn almenni
verkamaður.
Ef verkamenn slaka á í sínum stéttarfél., þá magn-
ast enn sú stéttaskipting, sem þegar er orðið meir en
nóg af í þjóðfélaginu. Við höfum dæmi um það er-
lendis frá, að það má sjá af klæðnaði barna hvort for-
eldrar þeirra eru almennt verkafólk eða sérhæfður
vinnukraftur, og börnum er mjög mismunað hvað
skólagöngu snertir. Ef við ætlum að búa við það þjóð-
félag jafnaðar og öryggis, sem er grunnnstefnuatriði
verkalýðshreyfingarinnar, þá verða verkamenn að
gera sér fulla grein fyrir því að félög hinna ýmsu sér-
fræðinga eru orðin mjög skipulögð og harðsnúin í
kröfum sínum og lífskjarabaráttu. Gífurlegur launa-
mismunur í landinu og gífurleg hækkun á kaupi sér-
fræðinga verður á kostnað hins almenna launamanns.
Menn skulu varast hatur og illindi, en hin dimmu ein-
kenni ójafnaðar, sem eru staðreynd í ýmsum þjóðfé-
lögum nálægt okkur, er hætta sem sífellt vofir yfir hér
heima. Auðvitað má þó aldrei gleyma því, að höfuð-
óvinurinn er ætíð fjandsamlegt ríkisvald og sterkt at-
vinnurekendavald.
Verkamenn þurfa nú, ekki síður en áður, að þjappa
sér saman um stéttarfélög sín og hafa fulla gát á að
verða ekki undirstétt sneydd framtíðarmöguleikum
fyrir niðja sína. Dragi úr samtakamætti láglaunafólks
gengur þessi þróun eins og flóðbylgja yfir okkur.
Forysta verkalýðsfélaganna hefur orðið fyrir harðri
gagnrýni að undanförnu. Við biðjumst á engan hátt
undan gagnrýni, og þó hún sé oft stóryrt og öfga-
kennd, þá er þess ekki að dyljast að tengsl forystunn-
ar við hina almennu félagsmenn eru ekki nægilega
mikil. Við hljótum að breyta um starfshætti til sam-
ræmis við breytta tíma. Einn þátturinn til að bæta hér
um er regluleg útgáfa þessa blaðs.
Guðmundur J. Guðmundsson.
V_________________________________________________y
DAGSBRUN
7. tölublað - nóvember 1975
Utgefandi Verkamannafélagið
Dagsbrún.
Ritnefnd: Guðmundur J. Guð-
mundsson (ábm.), Andrés Guð-
brandsson og Baldur Bjarnason.
Efni m. a.:
Uppsögn kjarasamninga . 4
Hver er réttur þinn . 8
Dagsbrún og skáklistin . 13
Lífeyrissjóðurinn . 15
Byggingar á félagslegum grund-
velli . 17
Orlofsheimilin . 21
Setning, prentun og bókband:
Prentsmiðjan Hólar hf.
Myndamót: Myndamót hf.
Forsíðumyndina gerði Benedikt
Gunnarsson, listmálari. Þessi snjalla
teikning er af Stefáni Illugasyni,
verkamanni hjá Ríkisskip. Hann
varð sjötugur í vor og kvaðst ætla
að starfa eitthvað enn hjá Ríkis-
skip, en þar hefur liann starfað í 35
ár, eða síðan hann fluttist suður
frá Grundarfirði þar sem hann var
borinn og barnfæddur. Stefán hefur
verið félagsmaður í Dagsbrún síðan
hann kont suður og hefur átt sæti í
trúnaðarráði í mörg ár.
DAGSBRÚN
3