Dagsbrún - 01.11.1975, Blaðsíða 7
mafíuforingjar. En þið hafið kosið þessa menn yfir
ykkur. Það er ekki nema rúmt ár síðan 27 þúsund
manns í fæðingarborg minni kusu íhaldið, og svo
ætlið þið, fleiri hundruð gaukar í þessu félagi sem
kusuð íhaldið, að kenna Guðmundi J. Guðmunds-
syni og félögum hans um ósköpin, sem hafa dunið
yfir ykkur. Þið hagið ykkur eins og fáráðlingar. Svo
ætla þeir að bjarga verðbólgunni með því að reka
eina þvottakonu sem starfar á lögreglustöðinni.
Hvernig getur öðruvísi farið þegar menn kjósa yfir
sig íhald og mæðiveikiflokkinn ?
Pétur Hraunfjörð: Ég hjó eftir því áðan að ungur
maður notaði orðið „vinnuveitendur“, ég vona að
menn í þessu félagi hætti að nota þetta orð. Ég legg
til að hér verði kosin samninganefnd. Við höfum
verið óánægðir með okkar forystu, og því legg ég
til að við komum henni til aðstoðar með því að
kjósa hér samninganefnd.
Njáll Gunnarsson lagði fram tillögu um samstöðu
með háskólastúdentum vegna lánamálanna og varaði
menn við að ganga of langt í að öfundast út í aðra,
heldur spyrna gegn því að samþykkja í næstu samn-
ingum kjaraskerðingu og afnám vísitölubóta eins
og gert hefði verið tvívegis.
Olafur Stefánsson: Ég vil koma með þá ábend-
ingu til þeirra, sem fara með samningana, að nú er
höfuðatriðið að ná upp dagkaupinu, þar sem at-
vinnurekendur hafa sjálfdæmi um að svipta okkur
eftir- og næturvinnu. Við eigum að fara að læra
það sjálfir að vinna ekki nema eðlilegan vinnutíma.
Ég minni á, að ég er húinn að starfa í þessu félagi
síðan 1930 og man ekki til þess allan tímann að
atvinnurekendur hafi nokkurn tíma talið sig geta
hækkað kaupið!
Hafsteinn Hannesson: Til hvers erum við að
stytta vinnutímann, ef við getum ekki lifað af 40
stunda vinnuviku? Við þurfum í dag að berjast fyr-
ir því að fá eftir- og næturvinnu til að geta lifað.
Að auki erum það við sem vinnum mestu erfiðis-
vinnuna. Þessu verður að breyta.
Síðan tóku aftur til máls að gefnu tilefni þeir
Elías Kristjánsson, Benedikt Kristjánsson og Guð-
mundur Hallvarðsson.
Guðmundur J. Guðmundsson sagði, að umræður
núna hefðu verið mun betri en hefði tíðkast á Dags-
brúnarfundum að undanförnu og hann hefði ekki
um skeið kynnst öllu betri félagsanda. Fram hefði
komið gagnrýni, en hún hefði yfirleitt verið mál-
efnaleg og fagnaði hann því. „Ég hef ekki frekar
en þið neina patentlausn á því hvernig við eigum að
komast hjá því að kjarabætur séu teknar af okkur
aftur, og það er rétt, sem komið hefur fram, að það
er hægt að svipta okkur yfirvinnu án þess að samn-
ingar séu brotnir. Ég bendi á, að með því að á-
kveða félagsfund í næsta mánuði erum við einmitt
að treysta lýðræðið. Þar munið þið fá allar upplýs-
ingar um gang mála á þeim fundi, og þar getið þið
lagt fram tillögur til frekari stefnumótunar.“ - sj.
Aðrar samþykktir
Samþykkt var tillaga um stuðning við sjómenn í
kjarabaráttu þeirra og þeim sendar baráttukveðjur.
„Félagsfundur Dagsbrúnar, haldinn 19. okt. 1975,
fagnar útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur.
Fundurinn minnir á, að efnahagslegt sjálfstæði
þj óðarinnar er undir því komið, að vel takist til inn
verndun fiskistofnanna við strendur Iandsins, en
þeir eru þegar í geigvænlegri hættu.
Því skorar fundurinn á þjóðina alla að standa
einhuga saman um þá ófrávíkjanlegu kröfu, að ís-
lendingar einir nýti auðlindir íslenska landgrunns-
ins.“
„Fundurinn styður baráttu námsmanna fyrir full-
nægjandi námslánum. Fundurinn bendir á, að sú
kjaraskerðing, sem á sér stað nú gagnvart náms-
mönnum kemur ekki síst niður á afkvæmum lág-
launafólks. Fundurinn bendir á, að barátta náms-
manna fyrir óskertum námslánum er barátta fyrir
jafnrétti til náms. Skerðing á námslánum er því
einnig takmörkun á tækifærum láglaunafólks og því
enn ein árásin á kjör íslenskrar alþýðu.“
„Félagsfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar,
haldinn 19. okt. 1975, skorar mjög alvarlega á
hafnaryfirvöld Reykjavíkur að beita sér fyrir því,
að bæði gömlu höfninni og Sundahöfn verði lokað
fyrir allri óþarfa umferð að nóttu til vegna tíðra
slysa, er átt hafa sér stað á undanförnum árum.
Jafnframt er talin fyllsta þörf á að næturvarðmenn
á skipum hafi aðgang að litlum talstöðvum þar sem
víða er ókleift að komast í síma við höfnina.“
DAGSBRÚN
7