Dagsbrún - 01.11.1975, Síða 8
r
HVER
ER RÉTTUR
ÞINN?
V--------
Starfsmenn Dagsbrúnar verða oft varir við, að
menn vita ekki nægjanlega um rétt sinn, ef
veikindi, slys eða annað slíkt ber að höndum,
né um rétt þeirra, sem njóta elli- og örorku-
lifeyris.
Hér á eftir er ætlunin að veita nokkrar upp-
lýsingar um þessi efni, enda þótt sá fróðleik-
ur geti alls ekki orðið tæmandi í grein sem
þessari.
Dagsbrúnarmenn eru eindregið hvattir til að
snúa sér til skrifstofu félagsins, ef þeir eru í
vafa um rétt sinn, eða þurfa aðstoð á annan
hátt, t. d. við að sækja um bætur, eða krefjast
þeirra.
Grein þessari er skipt niður í nokkra kafla
eftir efni og er hugmyndin að auðvelda mönn-
um með því að finna þar þær upplýsingar,
sem þá vanhagar um.
I. kaflí: Veíkíndi, sem ekkí stafa af uínnu-
slysum
Veikist verkamaður, án þess þó að um sé að ræða
vinnuslys, eru helstu réttindi hans til launa eða bóta
sem hér segir:
A. Vinnulaun
Réttur verkamanns til óskertra launa frá atvinnu-
rekanda fer eftir starfsaldri. Samkvæmt almennum
samningum Dagsbrúnar er þessi réttur sem hér
segir:
1. Ilafi verkamaður unnið skemur en eitt ár hjá
sama atvinnurekanda skal hann fá greiddan einn
dag fyrir hvern unninn mánuð.
2. Hafi verkamaður unnið eitt ár eða lengur hjá
_____________>
sama atvinnurekanda á hann rétt á allt að fjögurra
vikna óskertum launum fyrir hvert sjúkdómstilfelli.
en þó aðeins fjórar vikur samtals á hverjum 12 mán-
uðum, sé um sama sjúkdóm að ræða.
Atvinnurekandi getur krafist læknisvottorðs, sem
honum ber að greiða, að því tilskyldu, að veikindi
séu tilkynnt á fyrsta degi og að starfsmönnum sé
ávallt skylt að leggja fram vottorð.
Athugið, að menn skulu fá greidda þá yfirvinnu,
sem þeir sannanlega hefðu fengið hefðu þeir eigi
forfallast.
B. Dagpeningar jrú sjúkrasamlagi
Auk þess sem sjúkrasamlag eða sjúkratrygginga-
deild Tryggingastofnunar ríkisins greiða sjúkrahús-
vist og aðra nauðsynlega læknismeðferð, ýmist að
öllu leyti eða að hluta, greiða sjúkrasamlögin dag-
peninga skv. eftirfarandi reglum:
1. Sækja þarf um sjúkradagpeninga á sérstök
eyðublöð og þarf vottorð Iæknis að fylgja umsókn-
inni. Starfsfólk sjúkrasamlags aðstoðar við að fylla
út umsóknir. Nauðsynlegt er, að umsókn þessi ber-
ist sem fyrst, því að dagpeningar greiðast yfirleitt
ekki lengra aftur í tímann en tvo mánuði.
2. Allir samlagsmenn 17 ára og eldri, sem verða
algerlega óvinnufærir, eiga rétt á dagpeningum.
3. Sjúkradagpeningar greiðast frá og með 11.
veikindadegi, liafi veikindi varað a. m. k. 14 daga.
Athuga ber, að meðan sjúklingur nýtur launa frá at-
vinnurekanda sínum, renna dagpeningarnir til at-
vinnurekandans.
4. Upphæð dagpeninga fer eftir því hversu mörg
börn sjúklingurinn 'hefur á framfæri sínu eða greið-
ir meðlag með. Dveljist sjúklingurinn á sjúkrahúsi
8
DAGSBRÚN