Dagsbrún - 01.11.1975, Blaðsíða 9
lækka dagpeningar hans um % eða % eftir því
hvort hann hefur fyrir fjölskyldu að sjá eða ekki.
Dagpeningar vegna barna lækka þó ekki.
5. Sjúkradagspeningar geta aldrei numið hærri
upphæð en % hlutum þeirra launa, sem féllu niður.
Húsmæður njóta þó ætíð fullra dagpeninga hafi þær
algerlega lagt niður vinnu, enda sé það sannað, að
aðrir vinni störf þeirra, þ. e. a. s. aðkeyptur vinnu-
kraftur.
6. Rétt er að geta þess, að örorkustyrkur og elli-
lífeyrir dragast frá sjúkradagpeningum, þannig að
sjúkrasamlagið greiðir mismuninn, ef dagpeninga-
upphæðin er hærri. Sama gildir um mæðralaun, ef
sjúkradagpeningar eru greiddir vegna húsmóður-
starfa.
7. Sjúkradagpeningar greiðast að jafnaði ekki
lengur en 52 vikur á hverjum 24 mánuðum. Þó er
samlagsstj órn heimilt að greiða bætur lengur, ef
lækningatilraunum er ekki lokið og óvíst um varan-
lega örorku.
C. Dagpeningar jrá Styrktarsjóði Dagsbrúnar
Styrktarsjóður Dagsbrúnar greiðir Dagsbrúnar-
mönnum dagpeninga í veikinda- og slysatilfellum,
enda sé sótt um slíkt á skrifstofu sjóðsins.
Til að njóta dagpeninga úr sjóðnum, þurfa menn
að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Vera fullgildir félagsmenn í Dagsbrún, þ. e. aðal-
félagar.
2. Hafa unnið vinnu, sem greitt er af til sjóðsins, a.
m. k. síðasta mánuðinn fyrir veikindin.
3. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð, sem
segi til um frá hvaða tíma umsækjandi hefur ver-
ið óvinnufær. Einnig þurfa að fylgja umsókninni
upplýsingar um vinnustað, eða vinnustaði, a. m.
k. síðasta mánuðinn, sem umsækjandi var vinnu-
fær.
Greiðslur úr sjóðnum hefjast strax og kaup-
greiðslum lýkur. Sjóðurinn greiðir dagpeninga í
allt að 84 daga á hverjum 6 mánuðum og greiðir allt
að 2 tímabil vegna sömu veikinda.
II. kaflí-. Vínnuslys
A Vinnulaun
Réttur verkamanns til óskertra vinnulauna vegna
vinnuslyss er hinn sami og vegna veikinda að öðru
leyti en því, að sá er verður fyrir vinnuslysi skal
jafnan fá greidd laun í a. m. k. 7 virka daga, án til-
lits til þess hvað lengi hann hefur unnið hjá sama
atvinnurekanda. Með vinnuslysi er einnig átt við
slys á eðlilegri leið milli heimilis og vinnustaðar.
B. Dagpeningar frá Tryggingastofnun
Segja má, að nánast allir launþegar og atvinnu-
rekendur, sem starfa að eigin atvinnurekstri séu
tryggðir hjá Tryggingastofnun ríkisins, ef vinnu-
slys ber að höndum. Þó ber að geta þess, að til þess
að þeir, sem heimilisstörf stunda, njóti þessarar
tryggingar þurfa þeir að skrá nöfn sín í sérstakan
dálk á skattaframtali hvers árs, og er iðgjaldið þá
innheimt með öðrum gjöldum.
Menn eiga almennt rétt á dagpeningum frá Trygg-
ingastofnuninni ef vinnuslys ber að höndum sam-
kvæmt eftirfarandi reglum:
1. Nauðsynlegt er að tilkynna Tryggingastofnun-
inni eða umhoðsmanni hennar um slysið sem allra
fyrst. Atvinnurekanda ber að tilkynna slysið, og
skal það gert á sérstöku eyðublaði frá Trygginga-
stofnuninni. Enda þótt tilkynningarskyldan hvíli á
atvinnurekanda, verður það aldrei ofbrýnt fyrir
starfsmönnum að sjá til þess, að öll alvarlegri vinnu-
slys séu tilkynnt réttum aðilum, það er Oryggiseftir-
lili ríkisins og rannsóknarlögreglunni, auk Trygg-
ingastofnunarinnar, og verður nánar fjallað um það
hér á eftir.
2. Læknisvottorð þarf einnig að herast Trygg-
ingastofnuninni á sérstöku eyðublaði frá henni.
3. Slysadagpeningar greiðast frá og með 8. degi
eftir slysið. Athuga ber, að meðan sjúklingur nýtur
launa frá atvinnurekanda sínum, renna dagpening-
arnir til atvinurekandans.
4. Upphæð dagpeninga fer eftir því, hversu mörg
börn sjúklingurinn hefur á framfæri sínu eða greið-
ir meðlag með.
5. Dagpeningar greiðast að jafnaði ekki lengur
en 52 vikur. Þó getur Tryggingaráð framlengt þá,
ef meðhöndlun er ekki lokið.
Athugið, að Tryggingastofnunin greiðir sjúkra-
kostnað vegna slyssins samkvæmt reikningum að
hluta eða að fullu eftir ákveðnum reglum. Athugið,
að það er Tryggingastofnunin, en ekki atvinnurek-
andinn, sem á að greiða þennan kostnað.
DAGSBRÚN
9