Dagsbrún - 01.11.1975, Qupperneq 10
C. Dagpeningar frá Styrktarsjóði Dagsbrúnar
Um dagpeninga frá Styrktarsjóði Dagsbrúnar
vegna vinnuslyss gildir sama og segir í c lið I. kafla.
D. Almennar skaðabœtur, miskabœtur og þjáninga-
bœtur
Samkvæmt almennum skaðabótareglum getur
starfsmaður, sem verður fyrir vinnuslysi átt kröfu á
bótum frá atvinnurekanda sínum, og fer um slíkt í
megindráttum eftir því hver á sökina. Ekki eru tök
á, að ræða það nánar hér, en Dagsbrúnarmönnum
er bent á að hafa samband við skrifstofu félagsins
vegna slíkra mála, ef þörf krefur.
III. kafli: Örorkubcetur
Ororkumat: Allar greiðslur vegna örorku eru
ákveðnar eftir örorkumati, sem tryggingayfirlæknir
annast.
Æskilegt er, að umsækjandi um örorkumat af-
hendi tryggingalækni vottorð frá heimilislækni, eða
læknum, sem kunnugastir eru heilsufari lians.
A. Varanleg örorka vegna veikinda
Sé um varanlega örorku að ræða vegna veikinda,
greiðir Tryggingastofnun ríkisins örorkubætur sem
hér segir:
1. Sé örorka metin minna en 50%, eru ekki
greiddar örorkubætur. (Sjá hins vegar um örorku
vegna vinnuslysa).
2. Ef örorka dæmist 50%-74%, er heimilt að
greiða örorkustyrk, sem metinn er hverju sinni með
tilliti til efnahags og félagslegra aðstæðna sjúklings.
(Sjá hins vegar örorku vegna vinnuslysa).
3. Sé örorka metin 75% eða meiri á sjúklingur
rétt á örorkulífeyri. (Sjá um örorku vegna vinnu-
slysa.)
4. Hjón, sem bæði njóta örorkulífeyris fá 90%
af lífeyri tveggja einstaklinga.
5. Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri
en 17 ára, ef annað foreldri er 75% öryrki eða
meira. Barnalífeyrir tvöfaldast, sé hitt foreldrið
líka öryrki eða látið.
6. Ileimilt er að greiða maka örorkulífeyrisþega
makabætur, allt að 80% einstaklingslífeyris, ef sér-
stakar ástæður eru fyrir hendi, t. d. ef hann getur
ekki stundað atvinnu vegna sjúkleika makans.
7. Hvað snertir tekjutryggingu, uppbót á lífeyri,
vasapeninga og undanþágu frá greiðslu ákveðinna
gjalda, vísast til V. kafla um ellilífeyri, en um þessi
atriði gildir hið sama og þar segir. Sjá greinar 2-5
í A-lið, V. kafla
8. Tryggingastofmmin greiðir eða tekur þátt í
kaupum á gervilimum og hjálpartækjum eftir sér-
stökum reglum, og greiðir styrk til fatlaðra vegna
nauðsynlegra hjálpargagna.
B. Varanleg örorka vegna vinnuslyss
I sambandi við greiðslu örorkubóta vegna vinnu-
slysa gilda eftirfarandi reglur:
1. Sé örorka metin minni en 15% er Trygginga-
stofnunin ekki bótaskyld.
2. Sé örorka metin 15^19% er heimilt að greiða
í einu lagi örorkubætur, sem jafngilda lífeyri hlut-
aðeiganda um tiltekið árabil, og er greiðslan þá
reiknuð út af tryggingafræðingi.
3. Sé örorka metin 50%, fær hinn slasaði helm-
ing af fullum örorkulífeyri og síðan 2% til viðbótar
fyrir hvert örorkustig, þannig að ef örorkan er t. d.
metin 60% mundi viðkomandi fá 70% af fullum
örorkulífeyri, en sé örorkan metin 70%, fengi við-
komandi 90% af fullum örorkulífeyri.
Sé örorkan metin 75% eða meiri, fær viðkom-
andi fullan örorkulífeyri.
4. Greinar 4^-8 í lið a um varanlega örorku vegna
veikinda gilda einnig um örorku vegna vinnuslysa
og þá einnig greinar 2-5 í A-lið V. kafla um ellilíf-
eyri, en auk þess er þar getur, greiðist hlutfalls-
legur barnalífeyrir með börnum 51%-74% öryrkja,
sem eru það vegna vinnuslysa. Sé viðkomandi 51%
öryrki, greiðist 4% af barnalífeyri og síðan hækkar
það hlutfall um 4% við hvert örorkustig.
C. Skyldutrygging atvinnurekenda á starfsmönnum
Samkvæmt samningum Dagsbrúnar er atvinnu-
rekendum skylt að tryggja alla verkamenn fyrir
dauða og varanlegri örorku af völdum slysa í starfi
eða á eðlilegri leið milli heimilis og vinnustaðar.
Trygging þessi er eins konar húftrygging (kaskó),
þannig að sök skiptir ekki máli í sambandi við
greiðslu bótanna, nema auðvitað ef viðkomandi
hefur slasað sig af ásetningi, eða stórkostlegu gá-
leysi, eða undir áhrifum nautna- eða eiturlyfja.
Til þess að viðkomandi tryggingarfélag greiði
10
DAGSBRÚN