Dagsbrún - 01.11.1975, Qupperneq 13
Börn á þessum aldri skulu leita til viðkomandi skóla-
tannlæknis, ef unnt er, enda þótt þau séu ekki í skóla.
2. Börn á aldrinum 3-5 ára og 16 ára unglingar
fá helming af tannviðgerðarkostnaði endurgreiddan
hjá sjúkrasamlagi. Framvísa ber reikningi tannlækn-
is og sjúkrasamlagsskírteini.
3. Ellilífeyrisþegar fá sömu endurgreiðslu gegn
framvísun sömu gagna. Gervitennur eru einnig
greiddar að hálfu, enda séu liðin þrjú ár síðan þær
voru greiddar síðast, nema sérstaklega standi á.
4. Þeir sem njóta fulls örorkulífeyris, þ. e. eru
75% öryrkjar eða meira, fá einnig hálfa endur-
greiðslu gegn framvísun reiknings frá tannlækni,
sjúkrasamlagsskírteinis og sérstaks örorkuskírteinis,
sem fæst hjá Tryggingastofnuninni.
Atliugið, að þurfi langlegusjúklingur, sem þó er
ekki öryrki á tannlækningum að halda, þarf að út-
vega honum örorkuskírteini.
5. Vanfærar konur fá einnig helming tannvið-
gerða endurgreiddan gegn framvísun sjúkrasam-
lagsskírteinis og vottorðs læknis um þungann eða
fæðingarvottorðs barnsins sé reikningi framvísað
eftir fæðinguna.
Aðgerðin skal hafa farið fram meðan konan var
vanfær.
Endurgreiðsla samkvæmt greinum 2-5 miðast við
það, að viðgerðin hafi farið fram eftir 1. jan. 1975.
Athuga ber, að fyrir hópana, sem taldir eru í
greinum 2-5 er ekki greiddur kostnaður við gull-
fyllingar krónu- eða brúargerðir.
Athugið, að ganga þarf úr skugga um, að viðkom-
andi tannlæknir hafi samið við Tryggingastofnun-
ina, vegna þess að annars er reikningurinn ekki
endurgreiddur. Langflestir tannlæknar hafa þó gerst
aðilar að samningunum en ekki sérfræðingar í tann-
réttingum og eru aðgerðir þeirra því ekki greiddar.
Athuga ber, að þar sem í grein þessari er vitnað í
samninga Dagsbrúnar, er átt við abnenna samninga,
en ekki hina ýmsu sérsamninga, sem oft veita mönn-
um ítarlegri rétt.
í næsta hefti Dagsbrúnar veröur væntan-
lega fjallað nánar um réttindi húsmæðra í
veikindatilfellum. Þá verður einnig birtur úr-
dráttur úr dómi bæjarþings Reykjavíkur um
launagreiðslur í veikindaforföllum.
Það er von Dagsbrúnar, að grein þessi auð-
veldi mönnum að komast að raun um réttindi
sín, þau, er hér er um fjallað.
Dagsbrúnarmenn eru eindregið hvattir til
þess, að leita þegar til félagsins, ef þeir eru
í einhverjum vafa um rétt sinn.
Hajsteinn Einarsson, lögfrœðingur tók saman.
Dagsbrún og
skáklístín
Dagsbrún hefur löngum átt á
að skipa harðsnúnu liði skák-
manna. 1 febrúar sl. fór fram
Skákkeppni verkalýðsfélaga og
sendi Dagsbrún þrjár sveitir. Fóru
leikar svo að sigurvegari varð A-
sveit Dagsbrúnar; hlaut 19 vinn-
inga af 28 mögulegum og varð
21/2 vinningi fyrir ofan næstu
sveit, sem var A-sveit Trésmiða-
félags Reykjavíkur. I sigursveit-
inni voru eftirtaldir:
DAGSBRÚN
1. borð: Gylfi Magnússon
2. horð: Sigurður Jónsson
3. horð: Sturla Pétursson
4. borð: Kristján Sylveríusson.
Fyrirliði sveitarinnar var Guð-
mundur J. Guðmundsson.
I mars var síðan haldin hrað-
skákkeppni verkalýðsfélaga og þá
var það C-sveit Dagsbrúnar sem
hreppti efsta sætið, A-sveitin varð
í öðru sæti. Röð efstu sveita varð
þessi:
1. Dagsbrún C-sveit 46 v.
2. Dagsbrún A-sveit 42% v.
3. Múrarafél. Rvk A-sveit 35% v.
4. Hið ísl. prentarafélag 35 v.
Skákkeppni verkalýðsfélaga
hófst fyrst árið 1971 og þá sigraði
A-sveit Dagsbrúnar, en næsta ár
13