Dagsbrún - 01.11.1975, Side 15

Dagsbrún - 01.11.1975, Side 15
LÍFEYRISSJÓÐURINN Lífeyrissjóður Vmf. Dagsbrúnar og Vkf. Framsóknar var stofn- aður i ársbyrjun 1970 á grundvelli samnings, sem samtök vinnuveitenda og samninganefnd ASI gerðu með sér 19. mai 1969. I júlíbyrjun var endanlega gengið frá uppgjöri fyrir árið 1974, og sést af þeim tölum, að sjóðurinn vex hratt. Niðurstöðutöl- ur voru þær, að tekjur umfram gjöld á árinu námu rúmum 246 milljónum króna og niðurstöðutala eignamegin á efnahags- reikningi var kr. 553.768.618,00. Verðbólgan uggvænleg I spjalli við Karl Benediktsson, sem ráðinn var starfsmaður hjá sjóðnum í byrjun, kom m. a. fram, að hann er uggandi um hag sjóðs- ins er tímar líða fram, þar sem verðbólgan rýrir mjög getu sjóðs- ins til að greiða mannsæmandi ellilífeyri. Nefnd á vegum Sam- bands almennra lífeyrissjóða hef- ur þetta mál til athugunar og á að gera tillögur til úrbóta. Við fyrstu lánveitingar árið 1970 var hámarkslán 250 þúsund krónur, en í vor var hámarksláns- upphæðin ákveðin 750 þúsund krónur. Má af þessum tölum marka óðaverðbólguna í landinu, en þessar upphæðir eru nokkurn veginn í samræmi við hækkun byggingarvísitölunnar á þessum árum. Lán eftir 3 ár — Vextir 17% núna Hámarkslán fá þeir, sem hafa greitt óskert til sjóðsins í 3 ár og hafa nauðsynleg veð. Þeir sem hafa greitt iðgjald af 70% launa fá nú 500 þúsund og þeir sem hafa greitt iðgjald af 40% launa fá 350 þúsund. Það eru einkum ræstinga- konur og konur í fiskvinnu, sem ekki hafa fulla atvinnu. Greitt er af lánunum tvisvar á ári. Lánin eru til 15 ára og þau eru vissulega dýr fyrir láglauna- fólk. Vextir eru núna 17% og sá sem í ár tók 750 þúsund króna lán greiðir um 177 þúsund krón- ur í vexti og afborganir strax á fyrsta ári. Lánin eru veitt vor og haust og verða umsóknir að berasi fyrir 1. apríl eða 1. október. Enn hefur Karl Benediktsson, starfsmaður lífeyrissjóðsins. ekki verið veitt heimild til svo- nefndra endurlána, en það mál er nú í athugun. Mestur hluti atvinnurekenda greiðir vel og skilvíslega, en þar sem alltaf eru einhverjir sem fær- ast undan að greiða í sjóðinn, er besta tryggingin að sjóðfélagar fylgist með því að féð sé greitt og láti vita í síma 14477 ef greiðslur dragast. Sjóðurinn veitir að sjálf- sögðu allar upplýsingar um láns- hæfni og réttindi félagsmanna. Það skal tekið fram, að engum, sem uppfyllt hefur öll skilyrði, hefur verið neitað um lán. Lágur ellilifeyrir Þeir sjóðfélagar, sem greitt hafa til sjóðsins í 5 ár og áunnið sér 3 stig, eiga rétt á ellilífeyri, en greiðslur geta hafist eftir að sjóðfélagar hafa náð 67 ára aldri. Það hefur komið mörgum á ó- vart hve þessi upphæð er lág, en hún er reiknuð út eftir fastmótuðu kerfi. Reiknaðar eru út meðal- tekjur síðustu 60 mánaða, miðað við 2. taxta Dagsbrúnar eftir 1 ár, og er ekki fjarri lagi að sú upphæð sé í dag 22 þúsund krón- ur á mánuði. Tekin er ákveðin prósentutala (5,4%) af þessum meðallaunum. Ef dæmi er tekið um upphæð elli- lífeyris miðað við lágmarksrétt- indi, þ. e. 5 ár og 3 stig, þá fær viðkomandi tæpar 1200 krónur. Að sjálfsögðu má greiða hærri upphæð ef áunnin réttindi eru meiri en 3 stig. Ef viðkomandi er DAGSBRÚN 15

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.