Dagsbrún - 01.11.1975, Page 17

Dagsbrún - 01.11.1975, Page 17
Byggingar Ó félagslegum grundvelli Nú, þegar verkamannabústaðirnir eru að risa i Breiðholti 2, er rétt að rifja upp helstu at- riðin i samkomuiagi þvi sem gert var milli verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstjórnarinnar árið 1965 um byggingarframkvæmdir á fé- lagslegum grunni, og fræðast um stöðuna í byggingarmálum I dag. Tiðindamaður Dags- brúnar bað Guðmund J. Guðmundsson að gera grein fyrir helstu atriðum málsins. — I samningunum 1965 sömdu verkalýðsfélögin sitt í hvoru lagi og verkfall Dagsbrúnar, Verka- kvennafélagsins Framsóknar og félaganna í Hafnar- firði var á þann hátt að öll yfirvinna var bönnuð. Þá var skipuð samninganefnd frá ASI er átti að fjalla um húsnæðismál við rikisstjórnina. I þessari samninganefnd áttu sæti Oskar Hallgrímsson, Hannibal Valdimarsson og ég. Af ríkisstjórnarinn- ar hálfu sátu í nefndinni Eggert Þorsteinsson, Þor- valdur Garðar og Jóhannes Nordal. I viðræðunum kom fljótlega upp sú skoðun, sem haldið var mjög stíft fram af fulltrúa Dagsbrúnar, að hækkun á húsnæðismálalánum væri ekki einhlít fyrir Dags- brúnarmenn vegna þess að þeir hefðu lægstu laun- in og gætu ekki eignast eigið húsnæði miðað við þáverandi verðlag og lánakjör. Bent var á, að stór hluli af tekjum Byggingasjóðs væri lán úr atvinnu- leysistryggingasjóði, sem Dagsbrúnarmenn hefðu verið ötulastir að ná fram, og launaskatti sem verka- lýðshreyfingin hefði samið um áður. Þetta lág- launafólk greiddi stórar fúlgur í byggingar, sem síðan stæðu því til boða í mynd kjallaraíbúða, ris- íbúða, eða til leigu fyrir hátt verð, eða sem verst væri, stæði þessu fólki alls ekki til boða fyrir sann- gjarnt verð. Því var spurt hvort menn gætu ekki fallist á félagslega lausn á húsnæðisvanda láglauna- fólks. Viðræðurnar urðu nokkuð langar og ítarleg- ar, og niðurstaðan varð sú að skipuð var sérstök byggingarnefnd er hlaut nafnið Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar. Samið var um byggingu 1250 DAGSBRÚN 17

x

Dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.