Dagsbrún - 01.11.1975, Page 21
DAGSBRUN HYGGST EIGNAST
FLEIRI HÚS ÚTI Á LANDI
Við báðum Halldór Björnsson, startsmann
Dagsbrúnar, að skýra frá því helsta, sem er
á döfinni í orlofsheimilismálum, og spurðum
fyrst hvað Dagsbrún ætti mörg orlofshús.
- Þau eru fimm í Olfusborgum og eitt á Illuga-
stöðum. Nýting hefur verið mjög góð á orlofstíma-
bilinu, sem stendur frá maí til septemberloka. Húsið
á Illugastöðum nýtist þó ekki eins vel, þar sem þar
vorar seint og fólk fer yfirleitt ekki þangað eftir 1.
september. Annan tíma ársins er nýtingin ekki nægi-
leg í húsunum, og kemur þar margt til, börn komin
í skóla, og fólk meira bundið við heimili sín. Upp á
síðkastið hefur dvalartíminn verið að lengjast, sér-
staklega vor og haust, og menn hafa fengið afnot
af húsunum, ef þeir hafa viljað halda upp á afmæli
og vera út af fyrir sig.
Nýting húsanna yfir vetrarmánuðina á eftir
að aukast mikið
Þær breytingar hafa verið gerðar á skálanum í
Ölfusborgum, þar sem gæslumaður hafði aðsetur, að
þar er kominn ágætur kennslusalur sem rúmar 20-30
manns, skemmtileg borðstofa og eldhús. Með þess-
um áfanga verður nýting staðarins áreiðanlega miklu
betri. Félagsmálaskóli alþýðu mun notfæra sér þetta
nýja húsnæði í auknum mæli. Þarna var haldið nám-
skeið fyrir 15 þungavinnuvélamenn að frumkvæði
Dagshrúnar. Stóð það í tíu daga og bjuggu þátttak-
endur í húsunum þann tíma. Það var mál manna að
þetta námskeið hefði gefist mjög vel, enda tímanýt-
ing mjög góð, þar sem menn voru þarna alveg ó-
truflaðir.
Áætlað er að halda slíkt námskeið aftur í haust og
þá ekki eingöngu á vegum Dagsbrúnar, heldur verð-
ur það auglýst á vegum nefndarinnar, sem stendur
fyrir þessu, og geta allir innan verkalýðshreyfingar-
innar, sem áhuga hafa, sótt um aðild. Þá er fram-
undan aukið skólahald á vegum MFA, þannig að
ljóst er, að nýting húsanna yfir vetrarmánuðina mun
aukast mikið. Húsin eru byggð sem heilsárshús og
gefa í engu eftir bestu einbýlishúsum nema hvað
stærð snertir. Það er að sjálfsögðu draumur okkar,
sem að þessu stöndum, að húsin séu notuð allan
ársins hring.
Nýlega gáfu austurþýsk verkalýðsfélög hingað
21
DAGSBRÚN