Dagsbrún - 01.11.1975, Side 23

Dagsbrún - 01.11.1975, Side 23
Auglýsing frá Lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar Reglur um lánveitingar: 1. Umsóknir um lán úr sjóðnum eru afgreiddar aðeins tvisvar á ári, vor og haust. Umsóknir vegna vorúthlutunar þurfa að berast skrifstofu sjóðsins fyrir 1. apríl og vegna haustúthlutunar fyrir 1. október. 2. Rétt til 100% lánsupphæðar (hámarkslán) úr sjóðnum á sjóðfélagi sem greitt hefur til sjóðsins í 5 ár og öðlast a. m. k. 5 stig. 3.100% lánsupphæð þ. e. hámarkslán fær hver sjóðfélagi aðeins einu sinni. 4. Það er skilyrði fyrir iántöku að viðkomandi hafi greitt til sjóðsins s.l. sex mánuði. 5. Lágmarksrétt hefur sá sjóðfélagi, sem greitt hefur til sjóðsins í 3 ár og öðlast a. m. k. 1,2 stig. 6. 100% iánsupphæð getur sjóðfélagi náð með mörgum lán- veitingum. Þ. e., þegar sjóðfélagi tekur lán í fyrsta sinn, sem ekki er 100% lánsupphæð, hefur hann fengið ákveðna % af hámarksláni og getur hann fengið lán aftur að þrem árum liðnum, ef hann hefur áunnið sér meiri réttindi, eða þar til hann hefur fengið jafngildi 100% lánsupphæðar. 7. Lánastigi: 5 ára réttindi og 5,0 stig veita rétt til 100% lánsupph. 5 — — — 4,5 — — — — 90% 5 — — — 4,0 — — — — 80% 5 — — — 3,5 — — — — 70% 3 — — — 3,0 — — — — 60% 3 — — — 2,5 — — — — 50% 3 — — — 2,0 — — — — 40% 3 — — — 1,2 — — — — 24% 8. 100% lánsupphæð (hámarkslán) er sú upphæð, sem fæst með því að margfalda grundvallarlaun með 2,5. Grund- vallarlaun er jafnt og árslaun miðað við 2. taxta Dags- brúnar eftir fulla starfsaldurshækkun. Vorúthlutun miðast við grundvallarlaun næstliðins árs. Haustúthlutun miðast við grundvallarlaun næstliðins tíma- bils frá 1. júlí til 30. júní. Hámarkslaun við haustúthlutun 1975 var kr. 1.200.000,00. 9. Sjóðfélagi, sem ekki hefur náð 5 ára réttindatíma en greitt hefur til sjóðsins í 3 ár, getur ekki fengið hærri upphæð en 3 stig veita. 10. Þrjú ár þurfa að líða frá því að sjóðfélagi fékk Ián og þar til hann getur fengið lán aftur. 11. Lán úr öðrum lífeyrissjóði verður metið eins og um lán hafi verið að ræða úr þessum sjóði. 12. Ekki er heimilt að greiða iðgjöld fyrir tímabil, sem ekki hafa sannanlega verið unnin. 13. Lánið er til 15 ára. 14. Umsækjandi þarf að vera félagi í Dagshrún eða Framsókn. 15. Fasteignaveð: Aðeins er lánað gegn veði í húseignum allt að 50% af brunabótamatsverði (þ. e. það lán, sem lífeyr- issjóðurinn veitir, að viðbættum áhvílandi forgangsveð- skuldum má ekki vera hærri upphæð en sem nemur helmingi brunabótamatsverðs) eða sé það ekki fyrir hendi þá af matsverði, sem ákveðið er af 2 matsmönnum, sem fjármálaráðherra hefur tilnefnt. 16. Vextir eru nú 17%. 17. Veð, sem tryggja skuldabréf sjóðsins, hafi forgang fyrir veðum, sem tryggja skuldabréf í eigu handhafa. 18. Lántökugjald er 1% af lánsupphæð en þó aldrei lægra en kr. 3.000,00. 19. Greitt er tvisvar á ári af láni, sem er hærra en kr. 300.000,00, þann 1. apríl og 1. október. 20. Umsókn verður ekki tekin til greina nema eftirfarandi gögn fylgi: 1. Nýtt veðbókarvottorð, þar sem tilgreindur er eignarhluti (hundraðshluti) í húseign. 2. Veðleyfi, sé þess þörf. Sjá skýringar við liðinn fast- eignaveð hér að framan. 3. Veðheimild frá þinglýstum eiganda, sé umsækjandi eða maki ekki þinglýstur eigandi þeirrar húseignar, sem veðsetja á. 4. Vottorð um brunabótamatsverð, ef húseign er fullsmíð- uð. 5. Matsgjörð, ef húseign er í smíðum. Umsókn er ekki tekin til greina, nema húseign sé fokheld. 6. Vottorð um að húseign í smíðum sé brunatryggð. 21. Athygli skal vakin á, að ekki verður auglýst eftir umsókn- um um lán úr sjóðnum. 22. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu sjóðsins Lauga- veg 77, simi 28933. 23. Skrifstofan er opin: mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 12-15 miðvikudaga ................................. — 12-18 Sjóðjélagar eru hvattir til að jylgjast með því, að atvinnu- rekendur gerí skil á iðgjöldum til sjóðsins, og ennjremur að tilkynna skrifstojunni, ej atvinnurekendur halda ekki ejtir iðgjöldum af launum. DAGSBRÚN 23

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.