Dagsbrún - 01.05.1989, Blaðsíða 5
BRÉF FORSÆTISRÁÐHERRA TIL AS(
Reykjavík, 30. apríl 1989
Alþýðusamband íslands
Grensásvegi 16
108 Reykjavík
f því skyni að greiða fyrir kjarasamningum milli Alþýðusambands íslands ann-
ars vegar og Vinnuveitendasambands fslands og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna hins vegar hefur ríkisstjórnin eftir viðræður við fulltrúa Alþýðu-
sambandsins ákveðið eftirfarandi:
1. Atvinnumál
Ríkisstjórnin mun skipa sérstaka nefnd með fulltrúum ASÍ, VSÍ og VMS auk full-
trúa stjórnvalda til að fjalla um ástand og horfur í atvinnumálum og móta lang-
tímastefnu um atvinnuuppbyggingu í landinu. Fyrst í stað skal nefndin þó ein-
beita sér að þróun atvinnumála á næstu misserum.
2. Atvinnuleysistryggingar
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að á yfirstandandi þingi verði lögum um
atvinnuleysistryggingar breytt þannig aö heimilt verði að lengja bótatímabil
atvinnuleysistrygginga úr 180 dögum í 260 daga. Jafnframt verði kannað með
hvaða hætti megi tryggja verkafólki við landbúnaðarstörf rétt til atvinnuleysis-
bóta.
3. Verðlagsmál
Ríkisstjórnin mun sporna eins og frekast er kostur við verðhækkunum á næstu
misserum. Verðstöðvun verður sett á opinbera þjónustu þannig að verðlagning
hennar miðist við forsendur fjárlaga fyrir árið 1989 og ríkisstjórnin mun beita sér
fyrir aðhaldi að verðákvörðunum einokunafyrirtækja og markaðsráðandi fyrir-
tækja. í samstarfi við samtök launafólks verði unnið öflugt verðkönnunar- og
kynningarstarf. Jafnframt mun ríkisstjórnin verja 500—600 miiijónum króna til
aukinna niðurgreiðslna á verði landbúnaðarvara frá 1. apríl til ársloka, þannig
að þær verði óbreyttar í krónutölu út árið, eða grípa til annarra jafngildra
aðgerða til lækkunar á verði nauðsynjavöru.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir sérstakri lækkun á verði dilkakjöts.
4. Skattamál
Ríkisstjórnin mun hafa samráð við samtök launafólks um úrbætur í skattamál-
um meðal annars um aðgerðir til að koma í veg fyrir skattsvik. Þá mun ríkis-
stjórnin láta kanna skattlagningu lífeyrisiðgjalda meðal annars með tilliti til tví-
sköttunar. Ríkisstjórnin mun hafa samráð við samtök Jáunafólks um undirbúning
og framkvæmd virðisaukaskattsins sem tekinn verður upp um næstu áramót,
meðal annars um hugsanleg tvö þrep í skattinum.
5