Dagsbrún - 01.06.1989, Side 1
Reglugerð
Styrktarsjóðs Dagsbrúnarmanna
1. gr.
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Dagsbrúnarmanna.
2. gr
Markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar er missa vinnutekjur vegna sjúkdóma eða slysa
með því að greiða þeim dagpeninga í slysa- og sjúkdómstilfellum
svo og þátttöku í sjúkrakostnaði.
3. gr.
Tekjur sjóðsins eru.
a) Samningsbundin gjöld atvinnurekenda til sjóðsins hlutfalls-
lega af samningsbundnum heildarlaunum verkamanna.
b) Gjöld einstaklinga samkvæmt 4. b-lið.
c) Vaxtatekjur.
4. gr.
Rétt til dagpeninga úr sjóðnum eiga þeir fullgildir Dagsbrúnar-
menn sem:
a) Vinna hjá atvinnurekendum er greiða gjald til sjóðsins af
a) kaupi þeirra.
b) Vinna hjá öðrum en greiða sjálfir reglulega gjald til til sjóðs-
b) ins er nemur sömu upphæð og atvinnurekendum ber að
b) greiða af kaupi hvers verkamanns.
Réttur til dagpeninga fellur ekki niður þó að félagsmaður vinni
tímabundið á starfssvæði annarra verkalýðsfélaga, enda greiði
atvinnurekandi gjald til sjúkrasjóðs viðkomandi verkalýðsfélags.
Aðrir félagsmenn, er vinna hjá atvinnurekendum sem ekki falla
undir a-lið þessarar greinar, missa rétt sinn til dagpeninga þegar
sexmánuðir eru liðnir frá því að þeir hætta störfum, sem greitt er
af til sjóðsins, nema þeir greiði sjálfir til hans samkvæmt b-lið
þessarar greinar.