Dagsbrún - 01.06.1989, Síða 3
sama hlutfalli og laun gera.
h) Stjórn sjóðsins er heimilt að víkja frá reglum um bótarétt
ef sérstaklega stendur á fyrir félagsmanni, svo sem ef hann
á í verulegum fjárhagsörðugleikum, hefur ekki stundað fulla
vinnu sl. 6 mánuði, t.d. vegna verkmenntunar, eða önnur
atvik réttlæta bótagreiðslur.
Bótafjárhæð skv. þessu ákvæði skal ákveðin sérstaklega
fyrir hvert tilvik.
6. gr.
Dagpeningar greiðast 1/2 mánaðarlega samkvæmt þeim
ákvæðum sem sett eru í reglugerð þessari.
7. gr.
Allar umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð er sjóðstjórn
lætur umsækjendum í té.
Skylt er umsækjanda að leggja fram læknisvottorð með
umsókninni er tilgreini þann dag er slysið eða veikindin bar að
höndum. Þá er bótaþega skylt að leggja fram læknisvottorð er til-
greini þann dag er hann varð aftur vinnufær.
Heimilt er stjórn sjóðsins að krefjast þess að umsækjandi um
dagpeninga eða bótaþegi leggi fram vottorð frá sérstökum trúnað-
arlækni sjóðsins.
8. gr.
Greiðsla dagpeninga fyrnist sé hennar ekki vitjað innan 6 mán-
aða frá því að bótaréttur skapast.
9. gr.
Þegar farsóttir geisa getur sjóðstjórnin leyst sjóðinn frá greiðslu-
skyldum sínum um stundarsakir. Sjóðstjórnin getur einnig ákveðið
að lækka upphæð dagpeninga um stundarsakir, en þó ekki yfir
skemmri tíma en 6 mánuði, ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.
10. gr.
Afgreiðsla sjóðsins skal vera í skrifstofu Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar.
Allan beinan kostnað vegna reksturs sjóðsins greiðir hann
sjálfur. Árlegan kostnað vegna afgreiðslu og skrifstofu skal