Dagsbrún - 01.10.1989, Page 7
Aðbúnaður verkamanna á vinnustöðum:
REYKJAYÍKURBORG
TEKUR FORUSTUNA
„Á síðustu misserum hefur það gerst,
að borgin er að taka forustu í þeim mál-
um sem snúa að aðbúnaði verka-
manna á vinnustöðum," sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, þegar tíðindamenn Dags-
brúnarblaðsins fóru með honum í heim-
sókn í tvær nýjustu hverfisstöðvar
gatnamálastjóra á dögunum.
Með nýju stjórnskipulagi embættis
gatnamálastjóra var hagrætt verulega í
rekstrinum og settar upp fimm hverfis-
stöðvar sem þjóna hver sínum borgar-
hluta. í apríl var vígð hverfisstöð VI á
Stórhöfða 9 þar sem áður var Sorpeyð-
ingarstöð Reykjavíkur. Sú stöð þjónar
byggðinni austan Elliðaáa, þ.e. Grafar-
vogi, Selás og Árbæ. í vetur starfa þar
um 15 menn en þegar mest var í sumar
voru starfsmenn um fjörutíu. í húsinu,
sem er nýtt, er matsalur starfsmanna,
skrifstofur og salerni með böðum.
Það er snyrtilegt að koma inn í þetta
hús - gólf flísalögð, veggir bjartir og
menn annaðhvort á sokkaleistum eða
inniskóm. „Munurinn á þessari aðstöðu
og gluggalausa bragganum, sem við vor-
um í áður hér niður á Þórðarhöfða, er
eins og svart og hvítt,“ sagði Kjartan
Gíslason rekstrarstjóri, sem við hittum
þarna að máli. „Þar óðu menn að sjálf-
sögðu inn á stígvélum og vinnugöllum
en í þessu nýja húsi er öll umgengni allt
önnur. Það kemur jafnvel fyrir að menn
skipta um föt áður en þeir setjast til
borðs.“
Kjartan sagði að böðin í húsinu væru
heldur lítið notuð enn sem komið væri -
einstaka maður færi þó í bað að loknum
vinnudegi - en vafalaust myndi það fær-
ast í aukana að menn notuðu sér þá
góðu aðstöðu sem þarna væri.
Dagsbrúnarmenn, sem við ræddum
við, létu hið besta af aðstöðunni og
sögðust ekki hafa komið á annan vinnu-
stað verkamanna, þar sem aðbúnaður
væri jafn góður.
Sömu sögu var að segja í nýjustu
hverfisstöðinni í fallegum trjálundi á
Miklatúni, þaðan sem miðborg Reykja-
víkur er þjónað. Þar voru gerðir upp
Matsalurínn í bækistöðinni á Miklatúni: Guðmundur J. fær tíu dropa með Gísla Guðmunds-
syni rekstrarfulltrúa.
Hverfisstöð III á Miklatúni er í fallegum og friðsælum skógarlundi þar sem starfsmenn garö-
yrkjustjóra höfðu áður bækistöð.
gamlir skúrar, fyrrum bækistöðvar garð-
yrkjunnar, og lítur nú allt út eins og það
hafi verið byggt nýtt. Starfsmannafjöldi
þar er svipaður og á Stórhöfða.
Rekstrarstjóri er Hallgrímur Oddsson.
Enn eru starfsmenn í hverfisstöð III,
eins og heitir á Miklatúni, ekki farnir að
nota rúmgóð og snyrtileg böðin - en á
leið inn í matsalinn ganga þeir framhjá
röð af vöskum sem óhreinir menn voru
greinilega nýbúnir að nota óspart þegar
við fórum þarna um.
„Þetta er tvímælalaust besta aðstaða
sem ég þekki,“ sagði Hörður Hjartar-
son, fulltrúi, sem við hittum að máli í
matsalnum, „og í raun furðulegt að
þetta skuli ekki hafa verið orðið svona
fyrir löngu síðan.“
DAGSBRÚN 7