Dagsbrún - 01.10.1989, Side 9
vera í lífeyrissjóði?
eru samtrygging
fólks
fn Magnússon,
istjóra SAL
sjötugur og byrjar að taka þinn lífeyri,
þá þarftu að ákveða hversu lengi þú ætl-
ar að lifa, hversu lengi greiðslurnar eiga
að endast. Slíkt veðmál um lífslíkur er í
hæsta máta ógeðfellt og niðurlægjandi
hverjum einstaklingi. í almennum líf-
eyrissjóði þarf ekki að reikna út lífslíkur
sínar - menn fá lífeyri greiddan svo lengi
sem þeir lifa.
í frumvarpi til laga um starfsemi líf-
eyrissjóða, sem er búið að liggja í skúffu
þriggja fjármálaráðherra í tvö ár, er
gert ráð fyrir að allir lífeyrissjóðir muni
greiða örorku- og makalífeyri. Þegar
það kemur til framkvæmda verður
Frjálsi lífeyrissjóðurinn ekki lengur líf-
eyrissjóður heldur viðbótartrygging og
um hana er allt gott að segja.
Þá er annar ókostur við svona „einka-
lífeyrissjóð“ og hann er sá, að viðkom-
andi nýtur ekki samtryggingarinnar. Ef
hann verður til dæmis öryrki á miðjum
aldri þarf hann að ganga í sinn eigin
sjóð. í almenna lífeyrissjóðakerfinu fær
hinsvegar fertugur öryrki lífeyrisréttindi
sín framreiknuð eins og hann hefði
greitt allt til sjötugs.“
Staða fertugs Dagsbrúnarmanns
En tökum nú dæmi af fertugum Dags-
brúnarmanni, sem hefur greitt í Lífeyr-
issjóð Dagsbrúnar og Framsóknar frá
stofnun hans, segjum 20 ár til hægðar-
auka. Samkvæmt gildandi kerfi gefur
hvert ár í sjóðnum lífeyrisréttindi upp á
1,8% af launum. Á tuttugu árum hefur
þessi fertugi Dagsbrúnarmaður því unn-
ið sér inn 36% lífeyrisréttindi, eftir tíu
ár verður hlutfallið komið upp í 54%.
(Þó er sá varnagli hafður á hér, að
vegna þess að svokallaður reiknigrund-
völlur sjóðanna er talinn rangur gerir
áðurnefnt frumvarp um starfsemi sjóð-
anna ráð fyrir að árleg réttindi verði
lækkuð í 1,45% á ári.)
Gefum okkur að þessi fertugi Dags-
brúnarmaður vinni til sjötugs og borgi
mánaðarlega í lífeyrissjóðinn. Þá verð-
ur hann búinn að vinna sér inn 72% líf-
eyrisréttindi, það er að segja: Hann fær
72% af launum sínum í lífeyri.
Gefum okkur ennfremur að hann hafi
lágmarkslaun, sem í dag eru um 40 þús-
und krónur á mánuði. Þá fengi hann
sjötugur 26 þúsund krónur á mánuði úr
lífeyrissjóðnum, 10.600 krónur í ellilíf-
eyri og tekjutryggingu upp á 16.400
krónur. Full tekjutrygging er í dag
22.400 krónur en hún er tekjuháð. Frí-
tekjumarkið er 12.800 krónur, skerð-
ingin 45% á tekjur umfram þessar
12.800 krónur og því fengi hinn ímynd-
aði Dagsbrúnarmaður sjötugur alls um
53 þúsund krónur á mánuði í lífeyris-
greiðslur úr sínum eigin sjóði og
almannatryggingakerfinu.
„Þetta dæmi er til marks um að þeir
sem eru á lágum launum sinn starfsferil
eru sæmilega settir þegar þeir eru
komnir á aldur,“ sagði Hrafn Magnús-
son. „Þeir sem eru á hærri launum ná
hinsvegar aldrei því, sem þeir höfðu
áður - séu þeir ekki ráðherrar og hæsta-
réttardómarar - því tekjutrygging þeirra
skerðist meira eða fellur alveg niður.“
— Þú nefndir áðan að reiknigrund-
völlur lífeyrissjóðanna væri rangur og
að þeir lofuðu meira en þeir gætu staðið
við. Ertu með því að segja að lífeyris-
sjóðirnir séu á hausnum?
Vextir munu lækka
„Ekki beinlínis... en það er alveg
ljóst að iðgjöld og ávöxtun sjóðanna
verða að geta staðið undir skuldbinding-
um þeirra og eins og nú horfir munu
þeir ekki allir geta það þegar fram líða
stundir. Þrennt kemur til greina til að
leysa þennan vanda. í fyrsta lagi að
lækka lífeyrinn, sem ekki þykir góður
kostur, í öðru lagi að hækka iðgjöldin
og í þriðja lagi þurfa sjóðirnir að leita
leiða til að ávaxta sitt pund betur en þeir
hafa gert. Með því að lækka reiknig-
rundvöllinn úr 1,8% lífeyrisréttindum á
ári niður í 1,45% og ná 3,5% raun-
ávöxtun á ári umfram lánskjaravísitölu
er talið að hægt verði að leysa þennan
vanda sjóðanna.“
— En nú er ávöxtunin miklu meiri en
3,5%...
„Já, í augnablikinu er hún miklu
hærri en hún hlýtur að lækka í framtíð-
inni. Með núverandi ávöxtun er að
hluta til verið að leysa fortíðarvanda
sjóðanna, sem skiptir milljörðum í allt.
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Fram-
sóknar hefur til dæmis tekið á sig miklar
byrðar vegna verðtrygginga samkvæmt
lögum um eftirlaun til aldraðra. Sömu-
leiðis er þessi hærri ávöxtun núna notuð
til að rétta af hallann af því mikla tapi,
sem sjóðirnir urðu fyrir á tímum
óðaverðbólgu og neikvæðra vaxta.“
6 milljarðar í lífeyri
í landinu eru nú starfandi um 85 líf-
eyrissjóðir. Verði frumvarp um starf-
semi lífeyrissjóða (samið af Endur-
skoðunarnefnd lífeyriskerfis með 8-
manna nefnd og 17-manna nefnd) að
lögum er gert ráð fyrir að sjóðunum
fækki verulega. Sjóðunum hefur fækk-
að nokkuð á undanförnum árum- þeir
voru um 100 fyrir áratug eða svo.
Fimm stærstu sjóðirnir eru með um
45% af heildareignum lífeyrissjóðanna
í landinu og 20 stærstu sjóðirnir eru
með um 75% af heildareignunum. Líf-
eyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins,
næst á eftir lífeyrissjóðum ríkisstarfs-
manna, SÍS og verslunarmanna.
Árlega greiða lífeyrissjóðirnir um 6
milljarða króna í lífeyri. Þar af greiða
SAL-sjóðirnir urn einn milljarð til um
tíu þúsund félagsmanna og á fjárlögum
fyrir þetta ár er gert ráð fyrir öðrum
milljarði í lífeyrisgreiðslur til ríkis-
starfsmanna.
DAGSBRÚN 9