Dagsbrún - 01.10.1989, Síða 13
Hvað á að gera í Hvammi?
Uppbygging í Skorradal
er framtíðarverkefnið
„Þegar málaferlunum um Hvammsland-
ið verður endanlega lokið munum við
fara í að skipulegga svæðið og hefja síð-
an uppbyggingu þar,“ segir Halldór
Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar
og styrktarsjóðs félagsins, en sá sjóður á
helminginn í Hvammslandinu á móti
félagssjóði.
„Það var upphaflega - og er raunar
enn - ætlun okkar að byggja þarna eins
og sex orlofshús, nægilega strjált til að
menn séu þar vel út af fyrir sig,“ segir
Halldór. „Þetta verður framtíðarverk-
efni okkar. Félagið á nú þegar fjórtán
.orlofshús og íbúðir annars staðar á land-
inu og hluta í sumarhóteli að auki,
þannig að við erum mettir að þessu leyti
víða uro landið.“
Mikið verk er óunnið í landi
Hvamms. Þar er gríðarlega mikill
skógur, sem þarf að grisja verulega svo
hægt sé að komast um hann með góðu
móti og verður reynt að komast hjá að
farga þeim trjám eftir fremsta megni -
hugsanlega verður eitthvað af þeim flutt
austur í Biskupstungur, þar sem
Dagsbrún á um 17 hektara spildu í landi
Stóra-Fljóts. Það land var keypt um
1940 og var þá hugmyndin að byggja þar
sumardvalaheimili fyrir börn Dagsbrún-
armanna. Af því varð þó ekki og verður
varla úr þessu.
í Hvammslandinu er fyrir stórt og
veglegt íbúðarhús, um 160 fermetrar,
sem Dagsbrúnarmenn hafa nokkuð not-
að í sumar. Raunar er ekkert því til
fyrirstöðu að nota húsið einnig yfir
vetrartímann (sé á annað borð fært
vegna snjóa) því það er hitað með raf-
magni. Húsið stendur á steyptum grunni
og er kjallari undir því að hluta. í því
eru sex svefnherbergi og svefnloft fyrir
14 manns, tvö baðherbergi og rennandi
vatn í hverju herbergi. Vel var vaúdað
til hússins í upphafi og hafa menn á orði
hversu vegleg og vönduð öll húsgögn í
því eru. Sveitasetur væri líklega besta
lýsingin á Dagsbrúnarhúsinu í Hvammi.
• Þokkalegasta veiði er og í Skorradal-
svatni og hafa Dagsbrúnarmenn verið
að hirða þar ágæta fiska í sumar. Hægt
er að leggja net í vatnið og hefur í því
skyni verið keyptur lítill gúmmíbátur,
sem geymdur verður í húsinu.
A jörðinni Hvammi, sem er í eigu
Thors-systra, er ekki búið og hefur ekki
verið lengi. Búskapur lagðist þar niður
fyrir um hálfri öld en Skógrækt ríkisins
hefur jörðina á leigu til 1999 o^ hefur
stundað þar umfangsmikla skógrækt.
Orlofshúsið í Skorradal er fimmtánda
orlofshús Dagsbrúnar. Fyrir á félágið
fimm hús í Ölfusborgum, tvö á llluga-
stöðum í Fnjóskadal, tvö á Einarsstöð-
um á Héraði, tvö í Svignaskarði í Börg-
arfirði, -tvær íbúðir á Akureyri, eitt hús
í Vatnsfirði og þrettánda hluta í sumar-
hótelinu í Flókalundi. Að auki hefur í
sumár verið leigt eitt orlofshús í landi
Vatns á Höfðaströnd.
DAGSBRÚN 13